Með auglýsingu á vef Grundarfjarðarbæjar 20. nóvember sl. var íbúð sveitarfélagsins að Hrannarstíg 34 auglýst til sölu. Tilboðsfrestur var til 8. desember 2025. Engin tilboð bárust í eignina. Málið er lagt fyrir bæjarstjórn til ákvörðunar um næstu skref söluferlis.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra umboð til þess að halda söluferli fasteignarinnar áfram, bæði til þess að taka við tilboðum og gera gagntilboð vegna sölu eigna. Berist tilboð í fasteignina skal bera þau undir bæjarráð. Bæjarstjóra er falið umboð til þess að undirrita kauptilboð, gagntilboð, kaupsamning og önnur skjöl sem þörf krefur vegna sölu eignarinnar. Skjöl ber að undirrita með fyrirvara um endanlega staðfestingu bæjarstjórnar.
Kauptilboð hefur borist í íbúð fyrir eldri borgara að Hrannarstíg 34.
Íbúðin var fyrst auglýst til sölu 20. nóvember 2025 og gefinn kostur á að bjóða í íbúðina skv. skilmálum auglýsingar og innan tilgreinds tilboðsfrests, sem var til 5. desember sl. Þar sem ekkert tilboð barst innan þess frests var íbúðin auglýst til sölu með almennum skilmálum og ótilgreindum tilboðsfresti þann 7. janúar 2026.
Kauptilboðið í íbúðina hljóðar upp á 48 millj. kr.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum í samræmi við skilmála og kvaðir sem um eignina gilda.
Samþykkt samhljóða.