652. fundur 26. mars 2026 kl. 08:30 - 10:48 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
    Aðalmaður: Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-febrúar 2026.

Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 8,6% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur

Málsnúmer 2603018Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur 31.12.2025.
Farið yfir lista yfir ógreiddar viðskiptakröfur 31.12.2025.

4.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 2603017Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 3.065.777 kr.
Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns. Bæjarráð samþykkir afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 3.065.777 kr. auk vaxta.

Samþykkt samhljóða.

5.Slökkvilið Grundarfjarðar - Erindi slökkviliðsstjóra um undirbúning bifreiðakaupa

Málsnúmer 2602025Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi bæjarráðs var lögð fram tillaga slökkviliðsstjóra um að farið verði að skoða valkosti og undirbúa kaup nýrrar slökkvibifreiðar. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að skoða nánar valkosti um endurnýjun slökkvibifreiðar og leggja tillögu fyrir bæjarráð í lok mars.

Slökkviliðsstjóri og bæjarstjóri hafa farið yfir málið.

Lagt er til að hefja undirbúning að kaupum á slökkvibifreið af minni gerðinni, 4x4, með yfirbyggingu og "Kapskerfi", þannig að bíllinn geti dælt bæði froðu og vatni. Bifreiðin myndi leysa af hólmi Iveco tankbifreið slökkviliðsins, sem er árgerð 1985, sem þörf er á að endurnýja.

Í tillögu slökkviliðsstjóra sem rædd var á fyrri fundi bæjarráðs kom fram að til viðbótar yrði keypt kerra undir lausa dælu og vatnslaug.

Ef krafist yrði innborgunar á þessu ári yrði gerður viðauki við fjárhagsáætlun ársins.

Bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra falinn áframhaldandi undirbúningur þessara kaupa, m.a. að vinna nánari skilgreiningu og skilmála kaupa, sem og gerð tillögu um aukabúnað.

Samþykkt samhljóða.

6.Framkvæmdir 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Yfirferð framvindu framkvæmdaverkefna.

Bæjarstjóri sagði frá því að útboð á klæðningu íþróttahúss sé að fara af stað, en um tveggja ára verkefni er að ræða.

Unnið hefur verið að stígamálum og skoðaðir valkostir á stígum og reiðveg að Kirkjufellsfossi, en mikill kostnaðarmunur er á þeim leiðum sem ræddar hafa verið. Sl. haust var sótt um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að vinna að stígagerð að Kirkjufellsfossi. Vegagerðin hefur gefið loforð um stuðning við stígagerð, á móti kostnaði bæjarins, en fyrir liggur að kostnaður er þó mun meiri. Málið er í vinnslu.

Undirbúningur framkvæmda á skólalóðum leik- og grunnskóla er í gangi, sem og við leiksvæði í Þríhyrningi, á Sæbóli og á Hjaltalínsholti.

Þá verður unnið að því að bæta umferðaröryggi í kringum grunnskólann.

Bæjarstjóri sagði jafnframt frá því að nýr starfsmaður í tæknimálum muni hefja störf á morgun.

7.Orkuskipti, ýmislegt

Málsnúmer 2506034Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn um rafmagnsnotkun og kostnað.





Bæjarstjóri sagði frá lækkun kyndingarkostnaðar á árinu 2025.

Kyndingarkostnaður skóla- og íþróttamannvirkja (með olíu) var allt að ca. 30 milljónir á ári (árin 2022-2024) eftir miklar olíuverðshækkanir, og það þrátt fyrir að sundlaugin hafi ekki verið kynt 5-6 mánuði yfir vetrartímann.

Árið 2025 var kyndingarkostnaður hins vegar rétt rúmar 13 milljónir króna, sem er um 44% af kostnaði áranna á undan. Samt var rafmagnsnotkun ársins mun meiri en reiknað er með og taka þarf með í reikninginn að sundlaugin var opin frá apríl og út árið og er enn opin nú í lok mars. Með viðbótarorku inná kerfið í janúar sl., og mögulega frekari ráðstöfunum, ætti rafmagnsreikningurinn að lækka enn frekar árið 2026.

Fyrir utan það að framkvæmdin sé þegar farin að skila lægri orkukostnaði, þá fela orkuskiptin í sér mun umhverfisvænni húshitun, enga kolefnislosun og ekkert sót. Auk lengri opnunartíma sundlaugarinnar.

Bæjarstjóri sagði frá því að olíutankurinn stóri, í sundlaugargarði, hafi verið fjarlægður. Ætlunin er að hafa olíukyndingu skóla- og íþróttamannvirkja (ketilinn gamla) sem varaafl. Ekki verður settur upp nýr olíutankur í sundlaugargarði, en varatankur hafður á öðrum stað í bænum, þannig að auðvelt verði að flytja hann á staðinn, ef nauðsyn ber til að grípa til varaaflsins.

8.Beiðni um þriggja mánaða einkarétt á kostgæfnisathugun á lóð í eigu Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2509008Vakta málsnúmer

Lögð fram ný gögn í málinu, eftir samskipti við fulltrúa verkefnisins að undanförnu. Haldnir hafa verið fundir til viðræðna um málið.



Halldór Jónsson hrl., lögmaður bæjarins, var viðstaddur fundinn undir þessum lið, en hann hefur ásamt Helga S. Gunnarssyni verið bæjarstjórn til ráðgjafar í málinu. Öðrum bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja fundinn undir þessum lið.



Bæjarráð ræddi málið við lögmanninn. Bæjarstjóra falið umboð til að vinna áfram að málinu og undirbúa gerð viljayfirlýsingar á þeim forsendum sem ræddar voru á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Garðar Svansson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 09:30
  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 09:30
  • Halldór Jónsson hrl. í fjarfundi - mæting: 09:30

9.Framnes - lóðarsamningar og uppbygging

Málsnúmer 2508020Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu máls.



Halldór Jónsson hrl., lögmaður bæjarins, var viðstaddur fundinn undir þessum lið, en hann hefur ásamt Helga S. Gunnarssyni verið bæjarstjórn til ráðgjafar í málinu.



Öðrum bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja fundinn undir þessum lið.



Eins og áður hefur komið fram, var aðalskipulagi Framness breytt 2023 til undirbúnings uppbyggingar fyrir verslun og þjónustu á komandi árum. Áform sem uppi höfðu verið um að deiliskipuleggja svæðið voru lögð til hliðar, þar sem það þótti eðlilegri forgangsröðun að leita fyrst að fjárfestum til að vinna að uppbyggingu, og fara í deiliskipulagsvinnu með slíkum aðilum þegar þróunarvinna væri farin af stað. Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn höfðu skilgreint grunnforsendur bæjarins við uppbyggingu svæðisins og frekari undirbúningsvinna var í gangi þegar upplýst var um áhugasaman fjárfesti undir lok síðasta árs, en á öðrum forsendum en ráðgert hafði verið. Talið var eðlilegt að hlusta á skipulagsleg sjónarmið þessa aðila áður en farið væri í frekara samtal um svæðið. Viðræður voru í gangi en nýverið var upplýst um að sá aðili hefði tilkynnt að hann ætti ekki kost á að halda þeim áfram.

Farið var yfir stöðuna með lögmanninum.

Bæjarráð áréttar fyrri stefnumörkun skipulagsnefndar og bæjarstjórnar um skipulagsforsendur svæðis, á grunni aðalskipulags, og um verklag við uppbyggingu. Ennfremur áréttar bæjarráð að í gildi er áfram umboð, sem samþykkt var á 301. fundi bæjarstjórnar 11. sept. 2025, þ.e. til Halldórs Jónssonar hrl. og Juris slf. og til Helga S. Gunnarssonar, ráðgjafa, vegna undirbúnings uppbyggingar á Framnesi.

Gestir

  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 10:12
  • Garðar Svansson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 10:12
  • Halldór Jónsson hrl., í fjarfundi - mæting: 10:12

10.Samgöngustofa - Drónabann yfir hesthúsahverfi

Málsnúmer 2508009Vakta málsnúmer

Rætt hafði verið við fulltrúa Hesteigendafélagsins, um að afmarka svæði kringum hesthúsahverfi og á reiðveginum, þar sem bannað yrði að fljúga með dróna. Það er Samgöngustofa sem þarf að staðfesta slíkt bann, en afmarkað svæði yrði þá algjörlega lokað fyrir drónaflugi.



Lögð fram tillaga að svæði sem drónabann gæti náð til. Tillagan er í umsögn hjá Hesteigendafélaginu og verður einnig lögð fyrir skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag, 26. mars.



Bæjarráð tekur vel í framlagða tillögu og felur skipulagsfulltrúa í samráði við forstöðumann menningar- og markaðsmála að vinna málið áfram með hagaðilum.

Samþykkt samhljóða.

11.FSS - Velferðarnefnd sveitarfélaga

Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Snæfellsbæjar um að stofnuð verði sameiginleg velferðarnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Einnig lagður fram tölvupóstur forstöðumanns FSS, frá 12. mars 2026, með frekari skýringum um málið.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tekið verði vel í erindið.

Bæjarráð leggur til að óskað verði eftir tillögu að erindisbréfi fyrir nefndina, þar sem hlutverk og verkefni nefndarinnar verði skýrð.

Samþykkt samhljóða.

12.Sálfræðistofan - Styrkumsókn, sterkari útí lífið

Málsnúmer 2603027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni verkefnastjóra verkefnisins "Sterkari út í lífið" um styrk til starfsemi sinnar.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkbeiðninni.

Samþykkt samhljóða.

13.Valdimar Númi Hjaltason - Fjallkonan aflraunamót

Málsnúmer 2603030Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Valdimars Núma Hjaltasonar um styrk vegna Kraftakeppninnar Fjallkonan sem haldin verður næsta sumar á Snæfellsnesi.



Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkbeiðninni að sinni.

Samþykkt samhljóða.

14.Hrannarstígur 34 - sala á húsnæði

Málsnúmer 2512011Vakta málsnúmer

Kauptilboð hefur borist í íbúð fyrir eldri borgara að Hrannarstíg 34.



Íbúðin var fyrst auglýst til sölu 20. nóvember 2025 og gefinn kostur á að bjóða í íbúðina skv. skilmálum auglýsingar og innan tilgreinds tilboðsfrests, sem var til 5. desember sl. Þar sem ekkert tilboð barst innan þess frests var íbúðin auglýst til sölu með almennum skilmálum og ótilgreindum tilboðsfresti þann 7. janúar 2026.



Kauptilboðið í íbúðina hljóðar upp á 48 millj. kr.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum í samræmi við skilmála og kvaðir sem um eignina gilda.

Samþykkt samhljóða.

15.Golfklúbburinn Vestarr - Fánasamningur 2026-2027

Málsnúmer 2603002Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar fánasamningur 2026-2027 sem gerður hefur verið við Golfklúbbinn Vestarr.

16.Skíðadeild UMFG - Ársuppgjör 2025

Málsnúmer 2603020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Skíðadeildar UMFG vegna ársins 2025.

17.Umhverfisráðgjöf Íslands - Vöktunarskýrsla vegna aflagðs urðunarstaðar í Kolgrafafirði

Málsnúmer 2603036Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. um vöktun umhverfisþátta við aflagðan urðunarstað í landi Hrafnkelsstaða í Kolgrafafirði 2025. Skýrslunni og tilheyrandi upplýsingum hefur verið skilað til Umhverfisstofnunar, í samræmi við fyrirmæli um frágang og vöktun staðarins, sem gefin voru út 5. desember 2012.



18.SSV - Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603031Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vegna ársins 2025. Reikningurinn var lagður fram og samþykktur á aðalfundi SSV í gær, 25. mars.



19.Heilbrigðiseftirlit - Varðandi áform umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið

Málsnúmer 2603032Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur heilbrigðisfulltrúa Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF), um það að frumvarp umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga muni fela í sér flóknari stjórnsýslu.

20.SSV - Úthlutun Uppbyggingarsjóðs Vesturlands 2026

Málsnúmer 2603035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla SSV um úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2026.

21.Heilbrigðisnefnd Vesturlands - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2602021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 201. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 23. mars sl.

22.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Fundarboð aðalfundar og ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603037Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV) sem haldinn var 25. mars sl., ásamt ársreikningi HeV fyrir árið 2025.

23.FSN - Skólaakstur haust 25

Málsnúmer 2603038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga um hallarekstur á skólaakstri á haustönn 2025 ásamt reikningi. Hlutur Grundarfjarðarbæjar er 1.895.794 kr. vegna annarinnar.

24.SSV - HeimaHöfn - miðlun til sveitarfélaga

Málsnúmer 2603034Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur SSV um áhugavert verkefni sem Nýheimar á Hornafirði hafa verið að vinna að undanfarin tvö ár, ásamt handbók um verkefnið HeimaHöfn.

25.Háskóli Íslands - Fagháskólanám í leikskólafræði - nýr hópur nemenda haustið 2026

Málsnúmer 2603006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Háskóla Íslands um fagháskólanám í leikskólafræði sem verður í boði haustið 2026. Um er að ræða fjögurra anna brúarnám með vinnu.

Gengið var frá fundargerð í framhaldi af fundi og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 10:48.