Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra um þarfagreiningu, valkosti og undirbúning á kaupum á slökkvibifreið.
Lagt til að bæjarstjórn skipi fjögurra manna starfshóp, skipaðan tveimur fulltrúum bæjarstjórnar, bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra og feli honum að vinna þarfagreiningu og undirbúa kaup á slökkvibifreið. Starfshópurinn skili tillögu til bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að skoða nánar valkosti um endurnýjun slökkvibifreiðar og leggja tillögu fyrir bæjarráð í lok mars.
Einnig rætt um mögulega björgunarmiðstöð. Bæjarráð leggur til að ónefnd gata nr. 14 í deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð. Mögulega yrðu lóðamörkin færð aðeins til.
Samþykkt samhljóða.