651. fundur 26. febrúar 2026 kl. 08:30 - 12:44 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar í janúar 2026.

Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 5,7% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Slökkvilið Grundarfjarðar - Erindi slökkviliðsstjóra um undirbúning bifreiðakaupa

Málsnúmer 2602025Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga slökkviliðsstjóra um að farið verði að skoða valkosti og undirbúa kaup nýrrar slökkvibifreiðar.

Rætt um þörf fyrir endurnýjun á nýrri slökkvibifreið og valkosti í þeim efnum.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að skoða nánar valkosti um endurnýjun slökkvibifreiðar og leggja tillögu fyrir bæjarráð í lok mars.

Einnig rætt um mögulega björgunarmiðstöð. Bæjarráð leggur til að ónefnd gata nr. 14 í deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð. Mögulega yrðu lóðamörkin færð aðeins til.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Valgeir Þór Magnússon, slökkviliðsstjóri - mæting: 08:52

4.Ný samþykkt og gjaldskrá stöðuleyfa

Málsnúmer 2505026Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn fól bæjarráði að taka yfirfarna tillögu að nýrri samþykkt um stöðuleyfi til endanlegrar afgreiðslu og auglýsa hana. Ennfremur fól bæjarstjórn bæjarráði að taka til endurskoðunar gjaldskrá fyrir stöðuleyfi og gera tillögu um breytingar á henni.



Guðmundur Rúnar Svansson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa, hefur séð um undirbúning tillögunnar.



Guðmundur fór yfir helstu breytingar sem gerðar eru með framlögðum drögum að endurskoðaðri samþykkt.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samþykkt um stöðuleyfi en gjaldskrá er í vinnslu og stefnt að því að taka hana fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Guðmundur Rúnar Svansson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa - mæting: 09:45

5.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2509012Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá fyrir námur í eigu Grundarfjarðarbæjar.



Gjald fyrir efnistöku í námu í Hrafnsá er 500 kr./m3, auk verðbóta frá setningu gjaldskrár.

Lögð er til lækkun gjalds fyrir efnistöku efst í Hrafnsá, gegnt aðstöðuhúsum Skotfélagsins, þannig að þar verði gjaldið 300 kr./m3 í stað 500 kr./m3 af efni.

Samþykkt samhljóða breyting á gjaldskrá fyrir námur.


Formaður lagði til fundarhlé kl. 10:00.

Samþykkt samhljóða.

Fundi framhaldið kl. 10:45.

6.Hrannarstígur miðjuhluti, hönnun og framkvæmdir

Málsnúmer 2511026Vakta málsnúmer

Í tillögum COWI um ofanvatnsskipulag felst að Hrannarstígurinn sé eitt meginburðarsvæði vatns niður frá efri byggðum, og að í Hrannarstíg verði að leggja hvað mestu vinnuna í að taka á móti og leiða vatn í viðtaka (þ.e. m.a. með blágrænum fráveitulausnum).

Nanna fór yfir tillögu úr skýrslu COWI að regnbeðum á Hrannarstíg. Einnig svæði á Ölkelduvegi og við Samkomuhús Grundarfjarðar.

Nanna lagði til breytta forgangsröðun blágrænna lausna í Hrannarstíg. Bæjarráð samþykkir að lögð verði áhersla á að leysa vatnsmál og að farið verði í regnbeð austanmegin á Hrannarstíg.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að Nönnu verði veitt heimild til að leggja fram hugmynd um að veita regnvatni af þaki Samkomuhúss í blágræna viðtaka. Henni er einnig veitt umboð til að undirbúa framkvæmd vestan við lóð nr. 37 við Ölkelduveg, þar sem vandamál eru til staðar út af vatnsrás

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála - mæting: 10:52

7.UMFG - Samstarfssamningur

Málsnúmer 2201005Vakta málsnúmer

Lögð fram til afgreiðslu drög að samstarfssamningi Grundarfjarðarbæjar við UMFG, en íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við fulltrúa félagsins um málið.



Einnig lagður fram listi yfir verkefni sem formaður UMFG hefur sinnt og óskar UMFG eftir stuðningi bæjarins til að ráða framkvæmdastjóra félagsins í 50% stöðu.



Lagðar fram upplýsingar um aðkomu nágrannasveitarfélaga til íþróttafélaga vegna framkvæmdastjórastöðu.

Farið yfir fyrirliggjandi drög að samningi við UMFG.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram með samningsdrögin. Bæjarráð tekur vel í að eiga samtal við fulltrúa UMFG um ráðningu framkvæmdastjóra.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 11:12

8.Lionsklúbbur Grundarfjarðar - Boð um fjárstuðning við að innrétta félagsmiðstöð unglinga

Málsnúmer 2602030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Lionsklúbbs Grundarfjarðar í tölvupósti dags. 11. febrúar 2026.
SGG vék af fundi undir þessum lið og varaformaður tók við stjórn fundarins.

Bæjarráð þakkar Lionsklúbbnum erindið og samþykkir að þiggja gott boð.

Samþykkt samhljóða.

SGG tók aftur sæti sitt á fundinum.

9.Vinnustofur fyrir innflytjendur

Málsnúmer 2602029Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Magneu Marinósdóttur varðandi fræðslu fyrir innflytjendur í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.



Magnea fékk styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála til að standa fyrir fræðsluvinnustofum fyrir innflytjendur. Verkefnið er í beinu framhaldi af fyrra verkefni sem hún var með fyrir síðustu Alþingiskosningar.



Bæjarstjóri, skrifstofustjóri og forstöðumaður menningar- og markaðsmála áttu fjarfund með Magneu sl. mánudag. Fyrsta lausa helgin hjá Magneu er 17.-18. apríl nk.



Lagt fyrir bæjarráð til ákvörðunar um að halda slíka vinnustofu.



Til skoðunar væri einnig, hvort halda ætti sérstaka kynningu fyrir fólk með annað móðurmál (helst í mars) um verkefni bæjarstjórnar/bæjarins almennt og að túlkar yrðu hafðir með.

Bæjarráði líst vel á verkefnið og samþykkir það og jafnframt tímasetningu vinnustofunnar.

Samþykkt samhljóða.

10.UMFG - Starfsskýrsla 2025

Málsnúmer 2602026Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar starfsskýrsla Ungmennafélags Grundarfjarðar mars 2025 - febrúar 2026.

11.UMFG - Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2602027Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG fyrir árið 2025.

12.Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026

Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar gögn Markaðsstofu Vesturlands um almyrkva á sólu 12. ágúst nk.



Einnig minnispunktar Pálma Jóhannssonar, forstöðumanns menningar- og markaðsmála um málefnið.



Málið er í undirbúningi og er Pálmi okkar aðaltengiliður vegna þess.

13.Umsögn bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar um heilbr.eftirlits frumvarpið

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf bæjarstjóra dags. 17. febrúar sl. í samráðsgátt um umsögn bæjarins um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

14.Umhverfisvottun Snæfellsness - EarthCheck vottun, 16 skiptið

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar staðfesting á vottun Earth Check árið 2026, en þetta er í 16. skipti sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi hljóta vottunina.



15.Heilbrigðisnefnd Vesturlands - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2602021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 200. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 12. febrúar sl., ásamt bréfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til Vegagerðarinnar og bréfi Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi.



16.Lánasjóður sveitarfélaga - Vegna aðalfundar Lánasjóðsins 2026

Málsnúmer 2602022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðsins.

17.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - Sjávarútvegsfundur 4. mars

Málsnúmer 2602014Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um Sjávarútvegsfund 2026 sem haldinn verður 4. mars nk. á Akureyri.



18.ReSource International ehf.- Ráðstefna um málefni urðunar

Málsnúmer 2602023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Resource International ehf. varðandi ráðstefnu um málaflokk urðunar á Íslandi, en ráðstefnan verður haldin 20. mars nk.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:44.