Málsnúmer 2603015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 652. fundur - 26.03.2026

Lagt fram erindi Snæfellsbæjar um að stofnuð verði sameiginleg velferðarnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Einnig lagður fram tölvupóstur forstöðumanns FSS, frá 12. mars 2026, með frekari skýringum um málið.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tekið verði vel í erindið.

Bæjarráð leggur til að óskað verði eftir tillögu að erindisbréfi fyrir nefndina, þar sem hlutverk og verkefni nefndarinnar verði skýrð.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

Lögð fram drög Félags- og skólaþjónustunnar að erindisbréfi fyrir sameiginlega velferðarnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, sem lagt hefur verið til að stofnuð verði og bæjarstjórn hefur tekið jákvætt í.



Óskað er eftir afgreiðslu bæjarstjórnar og/eða athugasemdum við drögin.

Bæjarstjórn samþykkir nýtt erindisbréf FSS.

Samþykkt samhljóða.