Málsnúmer 2606002

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

JÓK leggur til að þessi dagskrárliður haldi sér á dagskrá nýrrar bæjarstjórnar, en liðurinn hefur verið viðhafður sem fastur liður bæjarstjórna á síðustu tveimur kjörtímabilum og hefði reynst vel. Undir þessum lið ræðir bæjarstjórn málefni sem sérstaklega snerta störf bæjarstjórnarinnar sjálfrar, s.s. fundi sem bæjarfulltrúar sækja, tilhögun starfs bæjarstjórnar o.fl.



JÓK sagði frá því að hann og Garðar Svansson, oddviti L-listans, hafi í lok maí staðfest með undirritun sinni það uppgjör sem fram fer við fráfarandi bæjarstjóra, nú þegar starfstíma hennar er að ljúka. Uppgjörið sé í samræmi við ráðningarsamning gerðan 2022 milli fráfarandi bæjarstjórnar við bæjarstjóra, og í samræmi við uppgjör skv. kjarasamningum, en bæjarstjóri hafi óskað sérstaklega eftir því að oddvitar listanna beggja myndu staðfesta uppgjörið sem skrifstofustjóri tók saman.

JÓK sagði frá því að síðasti fundur stjórnar SSV hafi verið haldinn í gær, 10. júní, en í stjórn SSV hafi setið f.h. Grundarfjarðarbæjar JÓK sem forseti bæjarstjórnar og Garðar Svansson, oddviti L-listans til vara. Aukaaðalfundur SSV verður haldinn 1. júlí nk. og hefur verið boðaður, sbr. dagskrárlið 11 á fundinum.

JÓK lagði til að nefndir bæjarins setji sér fundaáætlun fyrir hvert starfsár á fyrsta fundi sínum. Einnig lagði hann til að allar nefndir myndu fara vel yfir erindisbréf sitt og siðareglur, eins og venja er á fyrstu fundum nefnda á hverju kjörtímabili. Eins væri æskilegt að nefndarmenn fengju námskeið um hlutverk sitt, a.m.k. í nefndum sem annast mikla stjórnsýslu eða eftirlit, eins og skipulags- og umhverfisnefnd og skólanefnd.

FÞÞ ræddi hæfismál, þar sem til viðbótar því að vera bæjarfulltrúi hefur hann gegnt embætti byggingarfulltrúa Grundarfjarðarbæjar. Minnisblað lögmanns er undir dagskrárliðnum. Hann velti því upp hvort einfaldast væri að hann myndi hætta sem byggingarfulltrúi.

Fram fór opin umræða um stöðuna. Til máls tóku JÓK, FÞÞ, BS og ÁE.

Lagt til að bæjarráði verði falið að finna lausn á byggingafulltrúamálum.

Samþykkt samhljóða.