Málsnúmer 2606016

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

Bæjarstjórn felur fastanefndum sveitarfélagsins að setja sér starfsáætlun og markmið. Jafnframt eru nefndirnar hvattar til þess að halda fundi reglulega á fyrirfram ákveðnum tímum, yfir vetrartímann.

Skipulags- og umhverfisnefnd og skólanefnd fundi einu sinni í mánuði að jafnaði. Íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd haldi fundi á 6-8 vikna fresti að jafnaði, eins og segir í erindisbréfum.

Samþykkt samhljóða.

Íþrótta- og tómstundanefnd - 117. fundur - 30.06.2026

Ákvörðun um reglulegan fundartíma eða heppilega fundardaga nefndarinnar.
Nefndin mun að jafnaði funda á 6-8 vikna fresti. Nefndin telur ekki þörf á að ákveða fastan fundartíma, heldur mun hún koma sér saman um fundartíma hverju sinni.

Nefndin ákvað að næsti fundur yrði þriðjudaginn 28. júlí.

Fundir verða að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar kl.17:00.

Hafnarstjórn - 1. fundur - 26.08.2026

Málið rætt, farið yfir tilhögun funda hafnarstjórnar framundan.

Menningarnefnd - 55. fundur - 31.08.2026

Ákvörðun um reglulegan fundartíma og fundardaga nefndar.
Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar á sex vikna fresti. Fundartími er mánudagar kl. 16:15.