545. fundur 12. maí 2020 kl. 16:30 - 20:35 í Samkomuhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 2001004Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2020

Málsnúmer 2002001Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-apríl 2020. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 0,7% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur

Málsnúmer 2005010Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur 31.12.2019.

4.Útsvarsskuldir

Málsnúmer 2005011Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir stöðu útsvarsskulda auk dráttarvaxta 31.12.2019, þar sem fram kemur hversu mikið er afskrifað óbeint árið 2019. Aukning milli ára er 5,6 millj. kr.

5.Skógræktarmál, Græni trefillinn

Málsnúmer 2004006Vakta málsnúmer

Fulltrúar Skógræktarfélags Eyrarsveitar, Gunnar Njálsson, Sunna Njálsdóttir, Signý Gunnarsdóttir og Þórunn S. Kristinsdóttir, sátu fundinn undir þessum lið.

M.a. var rætt um aðalskipulag og fyrirhugað deiliskipulag fyrir ofan þéttbýli Grundarfjarðar, græn svæði í bænum og möguleg samstarfsverkefni. Bæjarstjóra falið að leita eftir tillögum frá bæjarbúum um svæði til gróðursetningar trjáa innan þéttbýlis.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð þakkar fulltrúum Skógræktarfélags Eyrarsveitar fyrir komuna og góðar umræður.

6.Viðbrögð Grundarfjarðarbæjar vegna Covid-19

Málsnúmer 2004003Vakta málsnúmer


Til viðbótar við tillögur bæjarráðs þann 30. apríl sl., aðgerðir vegna Covid-19, er lagt til við bæjarstjórn að í viðauka við fjárhagsáætlun verði gert ráð fyrir viðbótarfjármagni í eftirfarandi verkefni:

- Að mála búningsklefa íþróttahúss/sundlaugar nú í vor.
- Til menningarmála verði lagt fjármagn sem varið verði í ýmsa menningarviðburði á árinu. Menningarnefnd verði falin umsjón.
- Í brýnustu endurbætur á gangstéttum verði varið fjármagni, sbr. fyrirliggjandi samantekt verkstjóra áhaldahúss og kostnaðaráætlun skipulags- og byggingarfulltrúa.
- Til orkuskipta í íþróttahúsi og sundlaug, mótframlag við styrk úr Orkusjóði.
- Grundarfjarðarbær fékk í dag vilyrði fyrir 15 sumarstörfum frá Vinnumálastofnum. Eftir er að áætlað kostnað Grundarfjarðarbæjar vegna þeirrar viðbótar.

Samþykkt samhljóða.

7.Fjárhagsáætlun 2020

Málsnúmer 1909023Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingafulltrúi og verkstjóri áhaldahúss sátu fundinn undir þessum lið.

Farið yfir gögn um ástand gangstétta o.fl.

Lagt til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2020 vegna eftirtalinna verkefna:

- Málun búningsklefa íþróttahúss/sundlaugar nú í vor.
- Að til menningarmála verði lögð um sem varið verði í ýmsa menningarviðburði á árinu. Menningarnefnd verði falin umsjón.
- Að til orkuskipta í íþróttahúsi/sundlaug verði ráðstafað í mótframlag á móti fengnum styrk, en ekki var gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun ársins.
- Gangstéttar, viðhald, sbr. fyrirliggjandi áætlun.
- Þegar fyrir liggur kostnaður við viðbótarsumarstörf fyrir námsmenn verður lagður fram viðauki til bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Valgeir Magnússon, verkstjóri áhaldahúss - mæting: 16:30
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulags- og byggingafulltrúi - mæting: 16:30

8.Ölkelduvegur 3

Málsnúmer 2003013Vakta málsnúmer

Lögð fram uppsögn íbúðarinnar frá 1. júlí nk. og umsókn nýs umsækjanda, en íbúðin var auglýst til útleigu. Íbúðin er framleigð frá Leigufélaginu Bríet.

Jafnframt lögð fram úttekt umsjónarmanns fasteigna á íbúðinni, og tölvupóstur skrifstofustjóra til Leigufélagsins Bríetar, þar sem óskað er eftir því að leigufélagið sinni nauðsynlegu viðhaldi, svo unnt sé að leigja íbúðina.

Bæjarráð frestar útleigu íbúðarinnar þar til svar berst frá Leigufélaginu Bríeti.

Samþykkt samhljóða.

9.SSV - Staða atvinnumála í Grundarfirði vegna Covid-19

Málsnúmer 2004027Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar 3. útgáfa Hagvísis Vesturlands, sem útgefinn er af SSV.

10.Upplýsingamiðstöð í Borgarnesi

Málsnúmer 2005002Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Ljómalindar ehf. dags. 30. apríl sl., með ósk um samstarf við sveitarfélög á Vesturlandi varðandi upplýsingamiðstöð.

11.Hátíðir í sumar og 17 júní

Málsnúmer 2005003Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 4. maí sl. vegna fyrirkomulags bæjarhátíða sumarið 2020.

12.Fundur um málefni hjúkrunarheimila

Málsnúmer 2005006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fjarfundar um málefni hjúkrunarheimila sem haldinn verður 19. maí nk.

13.Samband íslenskra sveitafélaga - Fundir mennta- og menningarmálaráðherra, Covid-19

Málsnúmer 2004004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð samráðshóps um skólahald vegna heimsfaraldurs kórónaveiru (Covid-19), sem haldinn var með ráðherra, 28. apríl sl.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:35.