597. fundur 17. nóvember 2022 kl. 08:30 - 13:01 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2022

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2022

Málsnúmer 2202005Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-október 2022. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 10,4% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Gjaldskrár 2023

Málsnúmer 2209025Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga og yfirliti sem sýnir kostnaðarskiptingu bæjarins og foreldra.

Farið yfir þjónustugjaldskrár, samanburð og yfirlit.

Þjónustugjaldskrár fyrir árið 2023 samþykktar samhljóða og tillögum vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

4.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2023

Málsnúmer 2209033Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir sem bárust um styrki vegna ársins 2023 og samantekið yfirlit þeirra ásamt greinargerðum.
Umsóknir yfirfarnar og lagðar fram tillögur að styrkveitingum næsta árs.

Samþykkt samhljóða að vísa tillögunum til afgreiðslu í bæjarstjórn.

5.Svæðisgarðurinn Snæfellsnes - Framlög og fundargerð

Málsnúmer 2211030Vakta málsnúmer

Framlög samþykkt af fulltrúaráði Svæðisgarðsins 8. nóv. 2022.
Verður fært inní fjárhagsáætlunardrögin.
Lagt fram yfirlit yfir áætluð framlög sveitarfélaga til Svæðisgarðsins árið 2023, en áætlunin var samþykkt af fulltrúaráði Svæðisgarðsins þann 8. nóvember sl.

Einnig lögð fram fundargerð stjórnarfundar sem haldinn var 17. október sl.

6.Fjárhagsáætlun 2023

Málsnúmer 2209022Vakta málsnúmer

Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfulltrúi, var gestur fundarins. Einnig Kristín Þorleifsdóttir sviðsstjóri/skipulagsfulltrúi í fjarfundi.
Farið yfir fjárfestingatillögur með Fannari og Kristínu og þær kostnaðaráætlanir sem fyrir liggja um fasteignir og verklegar framkvæmdir.

Eftir að þau yfirgáfu fundinn var farið yfir drög að launaáætlun 2023 og kynntar helstu niðurstöður í fjárhagsáætlun 2023, til frekari úrvinnslu fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 24. nóvember nk.

Gestir

  • Fannar Þór Þorfinnsson, byggingarfulltrúi
  • Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri/skipulagsfulltrúi

7.Umhverfisstofnun - Ósk um tilnefningar í vatnasvæðanefndir

Málsnúmer 2211026Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar dags. 1. nóvember sl. þar sem óskað er eftir tilnefningu í vatnasvæðanefnd í samræmi við lög nr. 36/2011 og reglugerð nr. 935/2011 um stjórn vatnamála.
Um er að ræða einn sameiginlegan fulltrúa Vesturlands alls og leggur bæjarráð til að erindinu verði vísað til SSV.

Samþykkt samhljóða.

8.Alþingi - Áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, samráðsgátt

Málsnúmer 2211032Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur innviðaráðuneytisins dags. 7. nóvember sl., þar sem vakin er athygli á áformum um lagabreytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem hafa verið birtar í samráðsgátt stjórnvalda, sjá slóð:
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3324

Hægt er að senda umsögn um þær til 23. nóvember nk.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna tillögurnar og leggja drög að umsögn, ef þurfa þykir.

9.Alþingi - Þingsályktunartillaga um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, 84. mál

Málsnúmer 2211031Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur skrifstofu nefndasviðs Alþingis, dags. 8. nóvember sl., þar sem gefinn er kostur á umsögnum um tillögu til þingsályktunar um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, 84. mál. Frestur til umsagnar er 22. nóvember nk.

10.Leyfi til flugeldasölu áramótin 2022_23

Málsnúmer 2211017Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar gögn vegna umsóknar Björgunarsveitarinnar Klakks um leyfi bæjarins sem lóðareiganda til sölu á flugeldum í húsnæði sveitarinnar að Sólvöllum 17a. Byggingarfulltrúi, f.h. lóðareiganda, samþykkti að veita Björgunarsveitinni leyfi til sölu flugelda, í samræmi við 31. gr. reglugerðar um skotelda nr. 414/2017.

11.Björgunarsveitin Klakkur - Ársreikningur 2021

Málsnúmer 2211027Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Björgunarsveitarinnar Klakks vegna ársins 2021.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 13:01.