650. fundur 22. janúar 2026 kl. 08:30 - 11:27 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2025

Málsnúmer 2501016Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu til 31. desember 2025.

2.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu frá 1. janúar 2026.

3.Launaáætlun 2025

Málsnúmer 2505019Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-desember 2025.

Raunlaun eru undir áætlun ársins.

4.Framkvæmdir 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Yfirferð ýmis mál tengd framkvæmdum 2026.

Íþróttamiðstöð - sundlaug:

Hinrik og Björg sögðu frá vinnu við undirbúning útboðs, en klæða á íþróttahúsið að utan og fara í þakviðgerðir, sem verður tveggja ára verkefni 2026-2027. Hönnunarréttindi og skilmálar um skiptingu milli ára hafa verið til skoðunar.

Einnig er verið að klæða vegg á tengiganginum milli grunnskóla og íþróttahúss, þeirri hlið sem snýr út í sundlaugargarð. Verður hann klæddur með sama efni og íþróttahúsið.

Til stendur að fjarlægja stóra olíutankinn í sundlaugargarði, þar sem ekki er lengur kynt með olíu. Olíuketill/kynding skóla- og íþróttamannvirkja verður þó áfram til staðar, og enn um sinn höfð sem varaafl. Því verður minni olíutanki (2000 lítra) komið fyrir í stað þess stóra, sem verður fjarlægður á næstunni. Við það skapast mun meira rými í sundlaugargarðinum (skotinu við tengigang og gamla gufubaðsklefann).

Rennibraut í vaðlaugina er í pöntun og á að koma í febrúarmánuði.

Tekist hefur að halda sundlauginni opinni allt haustið og fram til dagsins í dag. Það er orkuskiptum að þakka, keyrt er á varmaorku og rafmagni, en það munar líka miklu að tíðin hefur verið góð. Mikið rok og kuldar kæla laugina hratt og kalla á meiri orku til kyndingar. Eins og verið hefur, þá hefur kerfið ráðið við að kynda sundlaug samhliða kyndingu á mannvirkjunum. Er það í fyrsta sinn frá því sundlaugin var vígð á sjómannadegi 1977, að hún er opin á vetrartíma.

Hinrik var þakkað fyrir upplýsingar og komu á bæjarráðsfund.

---

Nanna Vilborg fór yfir uppbyggingu LIFE-ICEWATER verkefnisins, sem Grundarfjarðarbær er þátttakandi í og fékk stóran styrk til framkvæmda sem ná yfir tímabilið 2025-2030. Eitt ár er nú liðið af sex ára verkefnistíma.

Nanna gerði grein fyrir verkþáttum sem hafa nú verið mótaðir. Þar má helst nefna:

I áfangi; Grunnupplýsingar þar sem gerð er grein fyrir gögnum og rannsóknum sem þarf til þess að framkvæma verkefnið. Þeir þættir sem fyrirhugaðir eru, eða nýhafnir, eru t.d. eftirlit og mælingar á vatnshloti Grundarfjarðar (sjó við strendur þéttbýlis), greining á rennsli ofanvatns í byggðinni og vatnasviði fyrir ofan bæinn, upplýsingar um jarðfræði, loftmyndir og hæðargögn, rannsóknir á virkni blágrænna ofanvatnslausna og margt fleira.

II áfangi; Upplandið, styrkja á jarðveg og gróðurþekju á opnu svæði (merkt OP-5 í aðalskipulagi). Þar mun Land og Skógur sjá um greiningu á gróðurþekju og jarðvegi og leggja fram tillögur um styrkingu, þ.e. ráðstafanir til þess að minnka rennsli ofanvatns (regnvatn og leysingavatn) sem rennur niður í þéttbýlið. Í kjölfarið mun vinnuhópur sem nýlega var skipaður um svæðið OP-5 hafa samband við hagaðila og gera útivistaráætlun fyrir upplandið þar sem hægt er svo að byggja upp gott stígakerfi ofan byggðar, sem hentar fyrir fjölbreytt not og útivist.

III áfangi; Gerð rammahluta aðalskipulags fyrir blágræna innviði - ofanvatnsáætlun og skipulag. COWI verkfræðistofa hefur unnið að því að greina vatnasvið bæjarins og helstu rennslisleiðir og álagspunkta. COWI setur upp tillögur um meðhöndlun og hvernig best sé að stýra vatninu rétta leið, annaðhvort aftur niður í jarðveginn eða út í sjó. Rammahlutinn mun skilgreina þessa vinnu og stilla henni upp þannig að hægt sé að nýta í skipulagsgerð.

IV áfangi; Framkvæmdir í lykilalmenningsrýmum. Farið var yfir þær framkvæmdir sem nú er lokið, þær sem eru í vinnslu og á döfinni. Áætlað er að hefja framkvæmdir (frágangur) á miðjuhluta Hrannarstígs (frá Sögumiðstöð og upp að Fagurhól) vestan megin í götunni og ljúka þeim fyrir mitt sumar. Framkvæmdir á neðanverðum Hrannarstíg, frá Kjörbúð og niður á Nesveg, er að mestu lokið en þó á eftir að ganga betur frá nokkrum atriðum, m.a. hornunum inní Sólvelli.

V. áfangi; þekking, verkfæri og verklag. Nanna og Pálmi forstöðumaður menningar- og markaðsmála hafa stillt upp kynningarsíðu á vef bæjarins og er hún í frekari þróun, efni á eftir að bætast við.

Nanna fór einnig yfir undirbúning á öðrum framkvæmdum sumarsins, til dæmis umbætur á skólalóðum grunn- og leikskóla, sem hún og skólastjórar eru að undirbúa, stígagerð í kringum íþróttasvæði, gangstéttaframkvæmdir sem eftir eru frá síðasta ári og fyrstu drög að nýjum framkvæmdum. Bréf fór út nýlega til íbúa á innanverðum Hlíðarvegi, en lokið verður við að endurnýja gangstéttar á Hlíðarvegi (þeim hluta) með vorinu.


Nönnu var þakkað fyrir upplýsingar og komu á bæjarráðsfund.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 09:00
  • Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála - mæting: 09:40

5.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á orkuskiptaverkefni íþrótta- og skólamannvirkja og kyndingarkostnað 2025.



Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi fóru yfir stöðuna á verkefninu.

Fram að þessu hafa sjö holur af níu verið í notkun og útvegað orku fyrir tvær varmadælur, en alls eru fimm varmadælur uppsettar í kerfinu. Tvær varmadælur duga ekki fyrir kyndiþörf mannvirkjanna, þannig að til viðbótar var keyrt á þremur hitatúbum á síðasta ári, sem eru þó hugsaðar sem varaafl, þegar varmadælukerfið verður komið í fulla nýtingu.

Nú í janúar 2026 er verið að bæta inná kerfið dýrmætri orku úr tveimur borholum til viðbótar, nr. 7 og nr. 1. Nokkrir byrjunarerfiðleikar höfðu verið með þær holur, en í þeim er nýtt orka úr heitu vatni sem dælt er úr holunum. Með þessari viðbót verður vonandi hægt að knýja eina varmadælu til viðbótar við hinar tvær og minnka keyrslu á hitatúbunum; minnka þar með rafmagnsnotkun og kostnað enn frekar. Líklegt er að gera verði frekari ráðstafanir til að bæta meiri orku inná kerfið.

Sjá einnig umræðu um sundlaug undir dagskrárlið 4.

Kyndingarkostnaður skóla- og íþróttamannvirkja (með olíu) var kominn í 28-30 milljónir á ári (árin 2022-2024) eftir miklar olíuverðshækkanir. Það er þrátt fyrir að sundlaugin hafi ekki verið kynt 5-6 mánuði yfir vetrartímann.

Árið 2025 var kyndingarkostnaður hins vegar rétt rúmar 13 milljónir króna, sem er um 44% af kostnaði áranna á undan. Samt var rafmagnsnotkun ársins mun meiri en reiknað er með og taka þarf með í reikninginn að sundlaugin var opin frá apríl og út árið. Með viðbótarorku inná kerfið nú í janúar - og mögulega frekari ráðstöfunum - ætti rafmagnsreikningurinn að lækka enn frekar árið 2026.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 09:00

6.Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer 2601017Vakta málsnúmer

Húsnæðisáætlun 2026, tillaga, lögð fram til afgreiðslu.
Húsnæðisáætlun 2026 samþykkt samhljóða.

7.Setbergssókn - Lýsing á bílastæði við Fagurhól

Málsnúmer 2601011Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Setbergssóknar þar sem óskað er eftir að bærinn kosti uppsetningu ljósastaura á bílastæði fyrir kirkjuna á lóðinni að Fagurhól 1, þar sem þar vanti betri lýsingu.



Lagt fram yfirlit frá Nönnu, verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, þar sem hún hefur skoðað lýsingarmálin á svæðinu samkvæmt beiðni bæjarstjóra. Yfirlitið nær yfir bílastæðin á Fagurhól 1 en einnig yfir lýsingu á lóð kirkjunnar og við hana.

Bæjarráð samþykkir að kosta uppsetningu ljósastaura á bílastæði kirkjunnar í samræmi við fyrirliggjandi hugmynd. Nönnu Vilborgu verkefnisstjóra falið að vera í sambandi við fulltrúa sóknarnefndar um málið.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála - mæting: 09:40

8.Hrafná - Styrkur til varna gegn landbroti 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsókn Grundarfjarðarbæjar um styrk til varnar landbroti vegna Hrafnsár, sem send var inn í upphafi árs 2026 (Land og skógur). Í húfi eru m.a. hagsmunir á skotsvæði og landinu þar í kring.

9.Snjómokstur 2025-2028 - samningur

Málsnúmer 2509023Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur um snjómokstur sem gerður er á grunni verðkönnunar sem fram fór um þjónustuna.

Rætt um snjósöfnunarsvæði. Yfirlit snjósöfnunarsvæða verður uppfært m.t.t. smávægilegra breytinga sem ræddar voru á fundinum.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála - mæting: 09:40

10.Creditinfo - Fjölmiðlaskýrsla 2025

Málsnúmer 2601016Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjölmiðlaskýrsla Creditinfo fyrir árið 2025.

11.Cruise Iceland - Skipakomur 2025 og bókunarstaða skemmtiferðaskipa til 2028

Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar gögn frá Cruise Iceland um skemmtiferðaskipakomur í hafnir landsins 2025 og bókunarstöðu 2026-2028.

12.Vegagerðin - Breytingar á leiðakerfi landsbyggðarvagna

Málsnúmer 2601015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar gögn frá Vegagerðinni vegna breytinga á leiðakerfi landsbyggðarvagna.

13.Símenntun á Vesturlandi - Móttökuáætlun

Málsnúmer 2601013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar móttökuáætlun sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir nýja íbúa af erlendum uppruna, sem unnin er af Símenntun á Vesturlandi að beiðni SSV.

14.Innviðaráðuneytið - Breyting á reglugerð nr. 1212/2025 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

Málsnúmer 2601014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Innviðaráðuneytisins um breytingu á 4. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212/2025 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.

Skrifstofustjóri sagði lauslega frá helstu breytingum.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:27.