29. fundur 03. mars 2026 kl. 17:30 - 18:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) formaður
  • Arnar Kristjánsson (AK)
  • Garðar Svansson (GS)
Starfsmenn
  • Hafsteinn Garðarsson (HG) hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund, gengið var til dagskrár.

Fundurinn er haldinn í framhaldi af fundi skipulags- og umhverfisnefndar, þar sem fulltrúar úr hafnarstjórn og hafnarstjóri tóku þátt í umræðum, sem gestir.

1.Grundarfjarðarhöfn - Nesvegur 4, fasteignakaup

Málsnúmer 2602012Vakta málsnúmer

Umræða í tengslum við mál undir dagskrárlið 2, vinna við breytingu á tillögu um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar.



Sú staðreynd hefur blasað við í mörg ár að á hafnarsvæðinu sjálfu er engin laus lóð undir atvinnustarfsemi. Eins og fram kom í síðustu fundargerð hafnarstjórnar hefur þegar verið ráðstafað því viðbótarlandi sem til varð á landfyllingu á norðursvæði hafnarinnar, austan Nesvegar, eins og beinlínis kemur fram í skilmálum nýsamþykkts deiliskipulags þess svæðis. Með kaupum á Nesvegi 4 kemur höfnin til með að ráða yfir rúmlega 7.200 m2 svæði á heppilegum stað og er ætlun hafnarstjórnar að núverandi hús á Nesvegi 4 víki í framtíðinni fyrir nýrri starfsemi. Ekki er fyrirhugað að hafnarsjóður leggi út í kostnað við rif hússins, a.m.k. ekki að svo stöddu, heldur er með kaupunum fyrst og fremst verið að tryggja framtíðarsvæði undir atvinnulóðir. Gera má ráð fyrir að fyrirkomulagi lóða á svæðinu verði breytt, þ.e. núverandi Nesvegi 4 og Norðurgarði 2. Þegar kaupin eru að fullu frágengin mun hafnarstjórn jafnframt koma þessu svæði á framfæri og auglýsa það sem laust athafnasvæði/lóðir, skv. nánari skilmálum.

2.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Farið yfir málið, í beinu framhaldi af fundi með skipulags- og umhverfisnefnd, þar sem hafnarstjórn og hafnarstjóri voru gestir.



Á fundi sínum 24. febrúar sl. lagði hafnarstjórn til við bæjarstjórn að gerðar yrðu breytingar á framlagðri deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar, í kjölfar breyttra forsendna við undirritun bindandi kauptilboðs hafnarinnar á Nesvegi 4 þann 20. feb. sl. Bæjarstjórn samþykkti þá tillögu á fundi sínum 26. febrúar sl. og var deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hafði verið 17. febrúar sl. tekin úr auglýsingu. Vísað er í dagskrárlið 1 á þessum fundi, sem og fundargerð 28. fundar hafnarstjórnar 24. febrúar sl.

Í samræmi við breyttar forsendur og fyrrnefnda ákvörðun bæjarstjórnar 26. febrúar sl. er nú unnið að gerð breyttrar deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins. Eins og rætt var á fundi skipulags- og umhverfisnefndar fyrr í dag eru helstu breytingar þær að ný landfylling sunnan Miðgarðs er minnkuð og lóðum þar með fækkað frá fyrri tillögu, svæði kringum Gilós breytist, skerpt verður á skilmálum fyrir lóðir austan Gilóss/við Suðurgarð o.fl. Tillagan er í vinnslu og styður hafnarstjórn þá vinnu og þær breytingar sem samþykkt var að leggja til sem forsendur breyttrar tillögu á fundi skipulags- og umhverfisnefndar nú áðan.

Á 651. fundi bæjarráðs 26. febrúar sl. lagði bæjarráð til að ónefnd gata nr. 14 í (eldri) deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð, mögulega með breyttum lóðarmörkum út frá þörfum um stærð lóðar. Um er að ræða lóð sem kæmi við hlið (fyrir sunnan) hús Soffaníasar Cecilssonar hf. sem stendur við Borgarbraut 1. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að í framsetningu nýrrar deiliskipulagstillögu verði sú lóð merkt og tekin frá undir þessi not.

Hafnarstjórn fór yfir gamlar ljósmyndir og loftmyndir af hafnarsvæðinu, m.a. af svæðinu neðan Grafar, austan við Gilósinn. Í greinargerð fyrri deiliskipulagstillögu er m.a. að finna ljósmynd frá 1957 sem sýnir íshús og fleiri byggingar á kambi rétt austan við Gilós. Athyglisvert er hve mikið land hefur verið austan Gilóss á þessum tíma og byggingar.
Með vísan í "íshús" sem þarna stóð á sínum tíma leggur hafnarstjórn til að nýr neðanbyggðarvegur, sem tengja á hafnarsvæði norður við þjóðveg 54 austan Gilóss, fái heitið "Íshúsvegur".

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi, sat þennan dagskrárlið að hluta.
Lokið var við fundargerð í framhaldi af fundinum og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 18:15.