Málsnúmer 2602012

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn - 27. fundur - 17.02.2026

Fasteignin að Nesvegi 4, Grundarfirði, var auglýst til sölu hjá fasteignasölunni Re/Max þann 28. janúar sl. og er söluyfirlit lagt fram. Húsið er í eigu Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf.



Hafnarstjóri og bæjarstjóri hafa átt tvo fundi með formanni stjórnar fyrirtækisins, ásamt með starfsmanni og síðar framkvæmdastjóra félagsins. Ákveðið var að efna til viðræðna milli Grundarfjarðarhafnar og félagsins um möguleg kaup á fasteigninni.



Nú hefur náðst samkomulag um helstu skilmála, m.a. kaupverð, en lögmaður bæjarins, Halldór Jónsson, hrl., hefur verið í samskiptum við fasteignasala eignarinnar.



Fyrir þennan fund, nú síðdegis, var farið í skoðunarferð um eignina í fylgd framkvæmdastjóra félagsins og fyrrverandi starfsmanns, sem þekkir eignina. Í þá skoðunarferð fóru hafnarstjórn og bæjarstjórn, ásamt starfsmönnum bæjarins og byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúi mun taka saman greinargerð og gróft mat eða lýsingu á ástandi eignarinnar. Verður greinargerðin lögð fyrir hafnarstjórn til upplýsingar og úrvinnslu.

Um er að ræða atvinnushúsnæði, alls 4.786,4 m2, byggingarár er skráð 1941, fasteignanúmer 2115199, en hlutar byggingarinnar eru byggðir síðar. Lóð er ríflega 7.200 m2 að flatarmáli.

Fasteignasali eignar tók að sér að stilla upp tilboði, en samkomulag liggur fyrir um kjör.

Lögmaður bæjarins fór yfir helstu skilmála.

Kaupverð er 30 millj. kr. sem greiðist við undirritun kaupsamnings. Í húsinu eru um 90 ferðavagnar sem leigt hefur verið pláss í húsinu og verða þeir fram í byrjun maí í húsinu. Aðrir leigutakar/samningar liggja fyrir, bæði fyrir mastur á turni húss og um aðstöðu á komandi sumri fyrir starfsemi í neðsta hluta húss.

Tilgangur hafnarsjóðs með kaupum á húsinu er að tryggja yfirráð yfir dýrmætri lóð, alls yfir 7.200 m2 að stærð, alveg við Norðurgarð, meginviðlegukant og athafnasvæði hafnarinnar. Á lóðinni stendur gamalt frystihús sem hafnarstjórn sér fyrir sér að muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum, á dýrmætri byggingarlóð á hafnarsvæðinu. Taka gæti þurft upp nýtt deiliskipulag Framness austan Nesvegar, vegna skipulags á lóðinni og í tengslum við möguleg ný áform um nýtingu lóðarinnar. Það er þó ekki tímabært umræðuefni.

Hafnarstjórn samþykkir að ganga til kaupa á fasteigninni Nesvegi 4, með þeim skilmálum sem farið hefur verið yfir. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og formanni stjórnar umboð til að undirrita og samþykkja sölutilboð frá eiganda fasteignarinnar með kaupverð 30 millj. kr. Einnig umboð til að undirrita kaupsamning og afsal, sem og önnur tilheyrandi skjöl í samræmi við þetta.

Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2026, þar sem gert verði ráð fyrir viðbótarfjármagni til þessara kaupa.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Halldór Jónsson, hrl., Juris - mæting: 17:25

Bæjarstjórn - 307. fundur - 17.02.2026

Fasteignin að Nesvegi 4, Grundarfirði, var auglýst til sölu hjá fasteignasölunni Re/Max þann 28. janúar sl. og er söluyfirlit lagt fram. Húsið er í eigu Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf.



Hafnarstjóri og bæjarstjóri hafa átt tvo fundi með formanni stjórnar fyrirtækisins, ásamt með starfsmanni og síðar framkvæmdastjóra félagsins. Ákveðið var að efna til viðræðna milli Grundarfjarðarhafnar og félagsins um möguleg kaup á fasteigninni.



Náðst hefur samkomulag um helstu skilmála, m.a. kaupverð, en lögmaður bæjarins, Halldór Jónsson, hrl., hefur verið í samskiptum við fasteignasala eignarinnar fyrir hönd hafnarsjóðs.



Fyrir þennan fund, nú síðdegis, var farið í skoðunarferð um eignina í fylgd framkvæmdastjóra félagsins og fyrrverandi starfsmanns, sem þekkir eignina. Í þá skoðunarferð fóru hafnarstjórn og bæjarstjórn, ásamt starfsmönnum bæjarins og byggingarfulltrúa, sem taka mun saman greinargerð og gróft mat eða lýsingu á ástandi eignarinnar. Verður greinargerðin lögð fyrir hafnarstjórn sem grunnskjal/upplýsingar til úrvinnslu.

Um er að ræða atvinnushúsnæði, alls 4.786,4 m2, byggingarár er skráð 1941, fasteignanúmer 2115199, en hlutar byggingarinnar eru byggðir síðar. Lóð er ríflega 7.200 m2 að flatarmáli.

Fasteignasali eignar tók að sér að stilla upp tilboði í samræmi við viðræður aðila. Samkomulag liggur nú fyrir um kjör og hefur hafnarstjórn samþykkt þau og lagt til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir kaupum hússins á þessu ári. Fyrir liggur fundargerð hafnarstjórnar frá því í dag, sjá dagskrárlið 1.

Lögmaður bæjarins fór yfir helstu skilmála.

Kaupverð er 30 millj. kr. sem greiðist við undirritun kaupsamnings. Í húsinu eru um 90 ferðavagnar sem leigt hefur verið pláss í húsinu og verða þeir fram í byrjun maí í húsinu. Aðrir leigutakar/samningar liggja fyrir, bæði fyrir mastur á turni húss og um aðstöðu á komandi sumri fyrir starfsemi í neðsta hluta húss.

Tilgangur hafnarsjóðs með kaupum á húsinu er að tryggja yfirráð yfir dýrmætri lóð, alls yfir 7.200 m2 að stærð, alveg við Norðurgarð, meginviðlegukant og athafnasvæði hafnarinnar. Á lóðinni stendur gamalt frystihús sem hafnarstjórn sér fyrir sér að muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum, á dýrmætri byggingarlóð á hafnarsvæðinu.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu hafnarstjórnar (sjá fundargerð frá því í dag, dagskrárliður nr. 1) um kaup hafnarsjóðs á fasteigninni Nesvegi 4, með þeim skilmálum sem fyrir liggja.

Bæjarstjórn felur hafnarstjóra og bæjarstjóra umboð til að undirrita og samþykkja sölutilboð frá eiganda fasteignarinnar með kaupverð 30 millj. kr. og öðrum skilmálum í samræmi við það sem að framan greinir. Einnig er þeim veitt umboð til að undirrita kaupsamning og afsal, sem og önnur tilheyrandi skjöl sem málið varðar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri - mæting: 17:30
  • Halldór Jónsson, hrl., Juris, í síma - mæting: 17:30
  • Arnar Kristjánsson, úr hafnarstjórn - mæting: 17:30

Hafnarstjórn - 28. fundur - 24.02.2026

Lagt fram undirritað kauptilboð um eignina, dags. 20. febrúar 2026.



Byggingarfulltrúa var falið að vinna greinargerð út frá skoðun húss og er sú greinargerð væntanleg.



Hafnarstjorn hefur hafið vinnu við að setja eigendastefnu um húsið, þ.e. að sett verða viðmið um nýtingu hússins, m.a. um þau samkeppnissjónarmið sem höfð verða í heiðri.



Hafnarstjórn - 29. fundur - 03.03.2026

Umræða í tengslum við mál undir dagskrárlið 2, vinna við breytingu á tillögu um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar.



Sú staðreynd hefur blasað við í mörg ár að á hafnarsvæðinu sjálfu er engin laus lóð undir atvinnustarfsemi. Eins og fram kom í síðustu fundargerð hafnarstjórnar hefur þegar verið ráðstafað því viðbótarlandi sem til varð á landfyllingu á norðursvæði hafnarinnar, austan Nesvegar, eins og beinlínis kemur fram í skilmálum nýsamþykkts deiliskipulags þess svæðis. Með kaupum á Nesvegi 4 kemur höfnin til með að ráða yfir rúmlega 7.200 m2 svæði á heppilegum stað og er ætlun hafnarstjórnar að núverandi hús á Nesvegi 4 víki í framtíðinni fyrir nýrri starfsemi. Ekki er fyrirhugað að hafnarsjóður leggi út í kostnað við rif hússins, a.m.k. ekki að svo stöddu, heldur er með kaupunum fyrst og fremst verið að tryggja framtíðarsvæði undir atvinnulóðir. Gera má ráð fyrir að fyrirkomulagi lóða á svæðinu verði breytt, þ.e. núverandi Nesvegi 4 og Norðurgarði 2. Þegar kaupin eru að fullu frágengin mun hafnarstjórn jafnframt koma þessu svæði á framfæri og auglýsa það sem laust athafnasvæði/lóðir, skv. nánari skilmálum.

Hafnarstjórn - 30. fundur - 05.05.2026

Farið yfir ýmis atriði sem snerta eignina.



Breyting á fasteignamati:

Sótt var um lækkun fasteignamats eignarinnar og hefur hún tekið gildi, en mat hússins lækkaði úr 305 í 175 millj. kr. Það mun þýða lægri stimpilgjöld við þinglýsingu afsals vegna fasteignakaupanna og ennfremur lækkun fasteignagjalda.


Viðmið um útleigu húss:

Við kaup fasteignarinnar var megintilgangurinn sá að eignast lóðarréttindin og möguleikann á að geta þróað og úthlutað lóðinni til framtíðaruppbyggingar á hafnarsvæðinu. Á nýjum lóðavef Grundarfjarðarbæjar er lóðin tilgreind sem tækifæri til uppbyggingar.

Í 4. gr. hafnarreglugerðar Grundarfjarðarhafnar segir:
Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu,
þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Hafnarstjórn mun leitast við að auglýsa lóðina sem uppbyggingarsvæði, en að sinni er ekki farið í nánari vinnu við skilgreiningu á framtíðarnýtingu hennar eða þeirrar starfsemi sem sóst verður eftir á lóðina. Það er vinna sem bíður a.m.k. fram á haustið. M.v. núverandi forsendur og ástand húss, og á meðan uppbyggingaraðili er ekki til staðar, stendur ekki til af hálfu hafnarstjórnar að rífa húsið. Að því sögðu er það stefna hafnarstjórnar að leitast við að fá tekjur út á fasteignina, á móti rekstrargjöldum, en að hafa þurfi skýr viðmið um hvernig það verði gert.

Lögð fram og rædd drög að viðmiðum (reglum) hafnarstjórnar við útleigu rýmis í húsinu.
Við kaup eignarinnar fylgdu samningar við tvo aðila um leigu í húsinu, auk þess sem langtímasamningur er um leigu fyrir fjarskiptamastur á þaki hússins.

Hafnarstjórn samþykkir samhljóða meginviðmið um leigu á einstökum hlutum (rými) í húsinu og felur bæjarstjóra og hafnarstjóra að útbúa auglýsingu um rými til útleigu. Hafnarstjóra, í samráði við hafnarstjórn, falið umboð til að leigja út rými, en að gera þurfi hafnarstjórn grein fyrir umsóknum og leigusamningum.


Framkvæmdir hafnarinnar í húsinu - markaðstorg:

Kynntar voru hugmyndir um að taka hluta af rými á neðstu hæð hússins (suðaustur endi) þar sem gamli flökunarsalurinn var, og útbúa það þannig að hægt verði að opna fyrir sölutorg/bása þar inni í tengslum við "hafnartorg" á svæðinu úti fyrir, á meðan tímabil skemmtiferðaskipa er í gangi. Söluaðilum/þjónustuaðilum verði boðið að leigja rými/bás fyrir verslun/þjónustu, skv. nánari reglum/viðmiðum um það.

Ennfremur verði leitast við að tengja "hafnartorg" þ.e. opna hafnarsvæðið við Nesveg (frá hafnarvog að húsinu Nesvegi 4) við bryggjur og uppí miðbæ, þannig að greiðar umferðarleiðir gangandi fólks liggi þarna í gegn en jafnframt tækifæri til að veita þjónustu við ferðamenn s.s. með sölubásum eða útistarfsemi.

Samþykkt samhljóða að heimila hafnarstjóra að fara í minniháttar breytingar á rýminu, í samræmi við umræður fundarins, þannig að það henti fyrir þessi not. Ennfremur að veita honum heimild til að láta fjarlægja eða lagfæra utanhússklæðningu húss að hluta til.