108. fundur 04. maí 2023 kl. 16:15 - 18:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir (ÓGG) aðalmaður
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB) aðalmaður
Starfsmenn
  • Ólafur Ólafsson (ÓÓ) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólafur Ólafsson íþrótta- og tómstundafulltrúi
Dagskrá
Ólafur bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Gengið var til dagskrár.

1.Frístundastyrkir

Málsnúmer 2305002Vakta málsnúmer

Ólafur, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir ýmis form styrkja til íþróttafélaganna. Góð umræða fór fram um hvort sveitarfélagið ætti að taka upp frístundastyrk eða ekki.

Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að skoða málið.

2.Samskipti og kynning íþróttafélaga hjá íþr. og tómsdundanefnd

Málsnúmer 1810006Vakta málsnúmer

Nefndin felur Ólafi, íþrótta- og tómstundafulltrúa, að skipuleggja heimsóknir og fundi með félögunum í sveitarfélaginu.

3.Vinnuskóli 2023

Málsnúmer 2305010Vakta málsnúmer

Ólafur, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir starfsmannamál og skipulag vinnuskólans. Nefndin lagði áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt fræðsluefni í bland við önnur verkefni. Einnig lagði nefndin áherslu á að opna fyrir skráningar í vinnuskólann.

4.Sumarnámskeið 2023

Málsnúmer 2305009Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir starfsmannamál og skipulagningu. Góð umræða fór fram um ýmsar útfærslur á sumarnámskeiðum.

5.Önnur mál

Málsnúmer 1808037Vakta málsnúmer

RDB ræddi um aðstöðu í Þríhyrningum svo sem rennibraut fyrir yngstu krakkana, rennandi vatn, lýsingu og stöðu framkvæmda á svæðinu.

Nefndin leggur áherslu á að kynningarmyndbandið um íþróttastarf verð birt fyrir lok mánaðarins. RDB benti einnig á að það mætti planta trjám hjá ærslabelgnum til að veita skjól og til að þurrka upp svæðið.
Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fleira ekki gert.

Fundi slitið - kl. 18:15.