36. fundur 16. mars 2023 kl. 16:30 - 18:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Marta Magnúsdóttir (MM) formaður
  • Rakel Birgisdóttir (RB)
  • Guðmundur Pálsson (GP)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður menningarnefndar
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár

1.Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2023

Málsnúmer 2303007Vakta málsnúmer

Ákvörðun um þema fyrir ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2023.
Menningarnefnd fór yfir þemu undanfarinna ára og leggur til að þema keppninnar í ár verði "viðburðir og mannlíf"

Sigurvegarar keppninnar í fyrra voru, í fyrsta sæti Stefan Wrabetz, með mynd af hafnarsvæðinu, í öðru sæti var Elínborg Þorsteinsdóttir með mynd af öldugangi við Kirkjufell og í þriðja sæti var Sverrir Karlsson með mynd af blómi í haustlitum.

Úrslitin voru kynnt á aðventudegi Kvenfélagsins, þann 27. nóvember 2022. Menningarnefnd óskar þeim innilega til hamingju með verðlaunin.
Í dómnefnd voru Marta Magnúsdóttir og Rakel Birgisdóttir úr menningarnefnd, auk Olgu Sædísar Aðalsteinsdóttur gestadómara, sem nefndin þakkar fyrir samstarfið.

2.Bókasafn Grundarfjarðarbæjar 100 ára

Málsnúmer 2303010Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar minnispunktar Sunnu Njálsdóttur til umræðu um málefni Bókasafns Grundarfjarðarbæjar og verkefni sem tengjast starfseminni.
Farið var yfir punkta um bókasafnið og starfsemi í Sögumiðstöðinni.

Menningarnefnd mun bjóða Sunnu Njálsdóttur á næsta fund nefndarinnar þar sem farið verður yfir undirbúning og skipulagningu á viðburðum fyrir 100 ára afmæli bókasafnsins.

3.Útiljósmyndasýning - menningarstyrkur

Málsnúmer 2303008Vakta málsnúmer

Grundarfjarðarbær sótti um og fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2019 vegna útiljósmyndasýninga í Grundarfirði. Hugmyndafræðin á bak við umsóknina var að útbúa færanleg skilti fyrir flökkuljósmyndasýningar og upplýsingar til íbúa og gesta.
Grundarfjarðarbær hefur fengið til liðs við sig úkraínsku listamennina Helen og Mykola sem hafa nú hannað skilti sem er færanlegt, fellur að landslagi í mótun og litum ásamt því að koma með skemmtilega nýjung inn.

4.Bæringsstofa - Sarpur, varsla ljósmyndasafns

Málsnúmer 2112027Vakta málsnúmer

Þann 24. mars nk. verður ljósmyndasafn Bærings opnað í Sarpi, menningarsögusafni á vefnum www.sarpur.is í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Bærings Cecilssonar.

5.Verkefni menningarnefndar 2022-2026

Málsnúmer 2207019Vakta málsnúmer

Farið yfir helstu verkefni menningarnefndar á tímabilinu. Hugmyndir lagðar fram um viðburði og sýningar, sem og hvatningu til list- og menningarmála.
Farið var yfir ýmsar hugmyndir er snúa að viðburðum og samvinnu með listamönnum í bænum.
Menningarnefnd mun bjóða til hugmyndafundar á næstkomandi mánuðum og fara yfir hugmyndir af verkefnum og möguleika til að efla menningu og listir í bænum.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:50.