14. fundur 05. mars 2026 kl. 13:00 - 15:46 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Sigurðardóttir (RS) formaður
  • Þórunn Kristinsdóttir (ÞK)
  • Runólfur Guðmundsson (RUG)
  • Olga Sædís Aðalsteinsdóttir (OSA)
  • Ólafur Guðmundsson (ÓG)
Starfsmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið til dagskrár.

1.Gott að eldast - Samstarfsverkefni á Vesturlandi

Málsnúmer 2403030Vakta málsnúmer

Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga kom inn á fundinn og kynnti verkefni sem unnið er að á Vesturlandi undir fyrirsögninni „Gott að eldast“.



Ingveldur sagði frá stöðu verkefnisins sem nær yfir allt Vesturland. Svæðinu er þó skipt niður í hluta og er unnið með Snæfellsnes sem heild. Ætlunin er að samþætta þjónustu við eldri borgara á vegum ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana (s.s. hjúkrunarheimila).

Ragnheiður vísaði í fyrri umræðu öldungaráðs og taldi að bæta þyrfti úr því þegar forföll verða í heimaþjónustu inná heimilum eldri borgara. Eins nefndi hún að veita þyrfti eldri borgurum þjónustu eða stuðning við snjómokstur.

Björg sagði frá breytingum í starfsmannahópi heimaþjónustunnar í Grundarfirði, en það er Félags- og skólaþjónustan sem sér um og stýrir þeirri þjónustu fyrir sveitarfélögin. Tveir einstaklingar sinna þjónustunni í samtals 1,1 stöðugildi, eins og þetta er núna. Breytingar geta hæglega orðið á þjónustuþörf.

Ingveldur sagði frá breytingum í utanumhaldi þjónustunnar og þátttöku FSSF í "Dalaker" sem er skráningarkerfi fyrir þjónustu, sem á að auka yfirsýn um veitta heimaþjónustu.

Aðspurð telja fulltrúar í öldungaráði að almennt viti eldri borgarar í Grundarfirði af þeirri þjónustu sem er í boði fyrir þau, við heimaþjónustu, af hendi FSSF. Þau séu sjálf dugleg að ræða þessi mál við aðra og benda þeim á þá valkosti sem eru í boði.

Að beiðni bæjarstjóra mun Ingveldur skoða hvernig hægt sé að bæta úr því þegar þjónustan fellur niður af einhverri ástæðu, t.d. við forföll starfsmanna, einkum þá að vera með afleysingu tiltæka eftir þörfum. Fundarmenn sammála um að mikilvægt sé að undirbúa starfsemina fyrir sumarleyfi þannig að þjónustan falli ekki niður á lengra tímabili. Illa gekk að manna afleysingar á sumarleyfistíma, þegar auglýst var eftir slíku síðustu sumur. Nánari upplýsingar lagðar fyrir öldungaráð á næsta fundi.

FSSF hefur verið að skoða það að gera samning við þjónustufyrirtæki sem myndi senda starfsmann til að sinna heimilisþrifum sérstaklega. Þannig væri betur hægt að tryggja samfellda þjónustu allt árið. Á móti myndi félagslega þættinum verða sinnt af starfsfólki FSSF.

Tímalína "Gott að eldast" var þannig framsett að ætlunin var að taka Snæfellsnesið í janúar 2025. Þetta hefur tafist þar sem innleiðingin hefur gengið seinlega á öðrum stöðum á Vesturlandi. Samkomulag og breytingar, í samningum við ríkið um innleiðinguna, hafa gengið hægt, og hefur því verkefnið dregist. Á Snæfellsnesi er HVE sterkasti samnefnarinn í þessari þjónustu og erum við því háð góðu samstarfi við stofnunina.

Ingveldur nefndi að byrjað er að vinna við "Mómakerfi" hjá FSSF sem er sameiginlegt teymi á Snæfellsnesi sem metur þá þjónustu sem eldri borgarar þurfa á svæðinu.

Verkefnið "Gott að eldast" var gefið sem verkefni til tveggja ára, en nú er komið að endurnýjun og þarf að vinna nánar í því, m.a. að koma á samvinnu við ríkið. Ekki er vitað eins og stendur hvernig þróunin verður að þessu leyti, en verkefninu er ekki lokið.

Ingveldur svaraði einnig ýmsum fyrirspurnum um félagsþjónustu og þjónustu við aldraða, á vegum FSSF. Að því búnu vék hún af fundi og var þakkað fyrir upplýsingarnar.

Gestir

  • Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga - mæting: 13:00

2.LIFE-ICEWATER

Málsnúmer 2511002Vakta málsnúmer

Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ kom inn á fundinn. Nanna fór yfir verkefni og framkvæmdir við Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði.
Nanna fór í gegnum glærukynningu og sagði frá verkefninu sem hlaut LIFE-styrk frá Evrópusambandinu, en verkefnið er til sex ára, við erum núna á öðru ári þess. Hún fór sérstaklega yfir helstu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á þessu ári. Verkefnið tengist einnig markmiðum um gönguvænni bæ og gróðurríkara umhverfi.

Góðar umræður áttu sér stað eftir erindi Nönnu.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ - mæting: 14:25

3.Gönguleiðir og hjólreiðastígar

Málsnúmer 2311027Vakta málsnúmer

Farið yfir stígamál í Grundarfirði og fyrirhugaðar framkvæmdir í þeim málum.
Nanna sagði frá undirbúningi og áformum um endurbætt stígakerfi, leiðir og áningarstaði.

Ráðið lýsti yfir ánægju með erindið.

Í framhaldi varð umræða um hvar eigi að setja niður bekki við göngustíga og gönguleiðir og var ákveðið að ráðið myndi setja upp tillögu um hvar bekkir ættu að vera settir upp í Grundarfirði, en fulltrúar ráðsins unnu einmitt slíka tillögu til bæjarins í fyrravor og var bekkjum fjölgað verulega.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ

4.Öryrkjabandalag Íslands, réttindasamtök - Aðgengisfulltrúi

Málsnúmer 2510009Vakta málsnúmer

Nanna fór yfir aðgengismál í íþróttamiðstöð Grundarfjarðar og þær framkvæmdir sem eru skipulagðar þar.
Nanna er jafnframt aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar. Nanna og Hinrik, íþrótta- og tómstundafulltrúi, hafa unnið greiningu um hvar og hvernig megi bæta aðgengi í íþróttahúsi, sundlaug og útisvæði. Unnið er skv. leiðbeiningum og gátlista Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ. Nanna fór yfir skjalið og rætt var um þær úrbætur sem hægt er að gera með einföldum hætti.

Ráðið lýsir yfir ánægju með þær framkvæmdir sem eru skipulagðar fyrir íþróttamiðstöðina að þessu leyti.
Nanna Vilborg Harðardóttir yfirgaf fund kl.15:10

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir

5.Öldungaráð - Kynning og umræða um helstu verkefni bæjarins sem snerta eldri íbúa

Málsnúmer 2104018Vakta málsnúmer

Rætt var um þörf á snjómokstursþjónustu við eldri borgara. Ótækt væri að sjá eldri borgara puðast við að moka frá húsi sínu til að komast út þegar þau hefðu ekki heilsu til þess. Spurt var hvort ekki væri hægt að koma upp kerfi þar sem eldri borgarar gætu beðið um mokstur frá húsi eða bílastæði, gegn gjaldi að hluta.

Formaður spurði um greiðslur í orlofssjóð húsmæðra í Grundarfirði og velti fyrir sér hverjir væru forsvarsmenn fyrir þennan sjóð. Fram kom að samkvæmt lögum um húsmæðraorlof þá kjósa héraðssambönd Kvenfélagasambands Íslands orlofsnefndir hver í sínu umdæmi. Orlofsnefndin skipuleggur orlof húsmæðra í sínu umdæmi. Fyrir Grundarfjörð væri það Kvenfélagasamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu.

Grundarfjarðarbær greiðir vissa fjárhæð árlega í þennan sjóð, lögum samkvæmt.

Lokið er við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 15:46.