Skólastjóri fór yfir niðurstöður úr nemendakönnun meðal nemenda í 6.-10. bekk grunnskólans. Könnunin var gerð í október 2025 og síðari hluti hennar er gerður nú í febrúar. Út frá niðurstöðum úr þessari könnun meðal annars, eru settar aðgerðir í úrbótaáætlun skólans. Áhersluatriði komandi skólaárs verður m.a. að auka aga í tímum.
Skólastjóri gerði grein fyrir drögum að símenntunaráætlun grunnskólans fyrir skólaárin 2025-26 og 2026-27.
Mikil umræða varð um stöðu íslenskunnar, þ.e. þá staðreynd að börn nota í æ ríkari mæli ensku sem samskiptatungumál, jafnvel þó enska sé ekki þeirra móðurmál. Fundarfólk var sammála um að þetta væri verulegt áhyggjuefni. Rætt var um leiðir til að sporna við þessari þróun.
Rætt um "matsferilinn", sem kemur í stað samræmdra prófa.
Lögð fram drög að skóladagatali fyrir grunnskólann, en þau eru enn í vinnslu. Skólastjórar leik- og grunnskóla eiga eftir að fara sameiginlega yfir drög sín og eftir það þarf að kynna dagatalið fyrir skólaráði og kennurum.
Stefnt er að því að afgreiða skóladagatalið á fundi skólanefndar 23. mars nk.
Ekki er gert ráð fyrir viðveru stjórnenda eða fulltrúa með seturétt vegna leikskólans á þessum fundi, en eftirfarandi gögn eru lögð fram:
1) Minnispunktar leikskólastjóra, svör/viðbrögð við efni febrúarfundar skv. starfsáætlun skólanefndar.
2) Drög að skóladagatali leikskólans 2026-2027.
Í pósti frá leikskólastjóra segir að framlögð drög að skóladagatali séu að mestu í samræmi við dagatal yfirstandandi skólaárs. Eftir er að vinna að samræmingu milli leik- og grunnskóla.
Stefnt er að því að afgreiða skóladagatalið á fundi skólanefndar 23. mars nk.
Farið yfir framlagða minnispunkta leikskólastjóra.