572. fundur 22. júlí 2021 kl. 13:45 - 14:38 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
    Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi G,II-Helgrindur,Grundargötu 30

Málsnúmer 2106025Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn vegna umsóknar frá Helgrindum ehf. sem sótt hafa um leyfi til að reka gististað í flokki II, stærra gistiheimili, sem rekinn verður sem Helgrindur að Grundargötu 30 (F2115065).

Fyrir liggja jákvæðar umsagnir slökkviliðsstjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa frá því í gær.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Samþykkt samhljóða.

2.Gönguvænn Grundarfjörður - hönnun gangstétta og stíga

Málsnúmer 2012003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir vegna opnunar verðboða í tveimur verðkönnunum vegna gangstétta.
Lagðar fram til kynningar niðurstöður eftirfarandi verðkannana sem gerðar eru vegna framkvæmda við gangstéttar og opnuð voru í dag:

- "Gangstéttar, undirvinna - 2021"
Um er að ræða rif á gömlum gangstéttum og undirvinnu undir malbikun á nýjum gangstéttum.
Tilboð bárust frá Kjartani Elíassyni og Dodds ehf.

- "Gangstéttar á Grundargötu - 2021; steyptar gangstéttar með undirvinnu"
Um er að ræða rif á gömlum gangstéttum og graseyjum, og uppsteypu á nýjum gangstéttum.
Tilboð bárust frá Almennu umhverfisþjónustunni ehf. og Þ.G.Þorkelsson verktökum ehf.

Tilboðin eru í yfirlestri hjá skipulags- og byggingarfulltrúa og mun hann skila niðurstöðum síðar í dag.

Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum í samræmi við niðurstöður tilboða og/eða gera aðrar ráðstafanir út frá niðurstöðum, eftir yfirferð.

Samþykkt samhljóða.

3.Sýslumaðurinn Vesturlandi - Tækifærisleyfi í FSN

Málsnúmer 2107016Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Vesturlandi hefur sent bæjarstjórn ósk um umsögn vegna umsóknar bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar um tækifærisleyfi fyrir söngskemmtun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði nk. 22. júlí.

Um er að ræða "Sveitalíf 2" - söngskemmtun Jógvans og Friðriks Ómars, sem vera átti í samkomuhúsinu Grundarfirði í kvöld. Vegna vatnstjóns þarf að færa skemmtunina í annað húsnæði, með þessum skamma fyrirvara.
Með vísan til 17. gr. laga um veitinga- og gististaði gerir bæjarráð ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 14:38.