581. fundur 12. janúar 2022 kl. 16:30 - 20:58 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
    Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Unicef Ísland - Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Málsnúmer 2002037Vakta málsnúmer

Marín Rós Eyjólfsdóttir, samskiptastjóri innanlandsdeildar hjá Unicef á Íslandi sat fundinn undir þessum lið gegnum fjarfundabúnað. Einnig sat fundinn undir þessum lið Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.

Marín Rós kynnti innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna gegnum verkefnið Barnvæn sveitarfélög.

Marín Rós var þakkað fyrir góða kynningu um áhugavert verkefni.

Umræður urðu um verkefnið, sem fundarmönnum líst afar vel á.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að ákvörðun um hvort Grundarfjarðarbær eigi að taka þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög verði tekin á næsta fundi.

Bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að taka saman upplýsingar um mögulegt umfang, fyrirkomulag og ávinning af verkefninu.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Marín Rós Eyjólfsdóttir - mæting: 16:30
  • Ólafur Ólafsson - mæting: 16:30

2.UMFG - Samtal um stöðu og verkefni

Málsnúmer 2201005Vakta málsnúmer

Til stóð að eiga samtal við fulltrúa UMFG, en vegna forfalla varð ekki af því.

Fundinn verður nýr tími fyrir samtal við UMFG.

Gestir

  • Ólafur Ólafsson

3.Lausafjárstaða 2021

Málsnúmer 2101039Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

4.Greitt útsvar 2021

Málsnúmer 2101005Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-desember 2021. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 2,5% miðað við árið 2020.

Rætt um tekju- og íbúaþróun.

5.Launaáætlun 2021

Málsnúmer 2106001Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit sem sýnir samanburð á launaáætlun og útgreiddum launum Grundarfjarðarbæjar niður á deildir janúar til desember 2021. Samkvæmt yfirlitinu eru raunlaun undir áætlun.

6.Íbúðir við Hrannarstíg 18 og 28-40 - Samantekt Deloitte á kostnaði o.fl.

Málsnúmer 2201007Vakta málsnúmer

Í framhaldi af umræðu um leigutekjur á íbúðum eldri borgara I og II á 580. fundi bæjarráðs er lagt fram yfirlit Deloitte með samanburði á kostnaði slíkra íbúða í Grundarfirði og Snæfellsbæ.

Samkvæmt úttektinni duga leigutekjur ekki fyrir vaxtakostnaði og almennum rekstrarkostnaði. Viðhaldskostnaður, sem er mismunandi milli ára, eykur töluvert tap húseignanna.

Bæjarráð óskar eftir nánari gögnum, niðurbroti á íbúðir I og II og rekstrargreiningu aftur í tímann. Jafnframt óskar bæjarráð eftir ákveðnum skýringum/breytingu á yfirliti Deloitte.

Frekari umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.

7.Sjómannadagsráð Grundarfjarðar - Ársuppgjör 2020

Málsnúmer 2112025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs Grundarfjarðar vegna ársins 2020.

8.Svæðisgarðurinn Snæfellsnes - Ársfundur og ársreikningar 2020

Málsnúmer 2112029Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð og -gögn vegna ársfundar Svæðisgarðsins Snæfellsness sem haldinn var 20. desember sl., ásamt ársreikningi ársins 2020.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:58.