486. fundur 30. júní 2016 kl. 12:00 - 15:03 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) formaður
  • Berghildur Pálmadóttir (BP)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS)
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS)
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

Eygló Bára Jónsdóttir, umsjónarmaður Samkomuhúss Grundarfjarðar, sat fundinn undir lið 4.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

2.Forsetakosningar 2016

Málsnúmer 1606011Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Innanríkisráðuneytisins frá 24. júní sl., þar sem tilkynnt er um greiðslur ráðuneytisins til sveitarfélaga vegna forsetakosninga 25. júní 2016.

3.Fjármál sveitarfélaga 2015 og 2016

Málsnúmer 1606028Vakta málsnúmer

Lagðar fram samantektir Íslandsbanka um fjármál sveitarfélaga fyrir árin 2014 og 2015. Þar kemur fram að fjárhagsstaða Grundarfjarðarbæjar hefur batnað talsvert á milli áranna.

4.Samkomuhús Grundarfjarðar

Málsnúmer 1606013Vakta málsnúmer

Eygló Bára Jónsdóttir, umsjónarmaður Samkomuhúss Grundarfjarðar, sat fundinn undir þessum lið.

Málefni samkomuhússins rædd og hvernig nýta mætti húsið betur. Jafnframt rætt um starfssvið húsvarðar og þjónustu í húsinu.

Bæjarráð samþykkir að starfsemin verði skoðuð og gerðar verði tillögur til úrbóta þ.a. samkomuhúsið nýtist betur til margvíslegra menningarviðburða og starfsemi á vegum bæjarins. Afrakstur þeirrar vinnu verði síðan kynntur í bæjarráði. Bæjarstjóra og menningar- og markaðsfulltrúa falin framkvæmd málsins.

5.Alm. Umhverfisþj. Umsókn um svæði undir húsaþyrpingu

Málsnúmer 1606023Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Almennu Umhverfisþjónustunnar frá 20. júní sl., þar sem sótt er um svæði til byggingar húsaþyrpingar á svæði vestan við núverandi íbúðahúsabyggð, austan við hesthúsahverfi og sunnan Grundargötu.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umsagnar og nánari umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

6.Rekstrarleyfi, Ferðaþjónusta Setbergi, umsögn

Málsnúmer 1606020Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Sýslumannsins á Vesturlandi frá 21. júní sl., þar sem óskað er umsagnar á endurnýjun rekstrarleyfis á gististað í flokki III sem rekið er sem ferðaþjónusta að Setbergi, Grundarfirði. Um er að ræða óbreyttan rekstur.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðin endurnýjun rekstrarleyfis að Setbergi verði veitt, enda liggi fyrir umsagnir annarra umsagnaraðila.

7.Fellaskjól, viðbygging

Málsnúmer 1606025Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi stjórnar dvalar- og hjúkrunarheimilisins Fellaskjóls frá 27. júní sl. Í erindinu er tilkynnt að viðbótarumsókn um fjárveitingu frá Framkvæmdasjóði aldraðra til viðbyggingar við heimilið hafi verið samþykkt.

Jafnframt óskar stjórnin eftir að Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri, taki sæti í þeirri bygginganefnd sem sett verður á laggirnar.

Bæjarráð fagnar því að umsókn um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra hefur verið samþykkt og að bæjarstjóri taki sæti í umræddri bygginganefnd.

Samþykkt samhljóða.

8.Ferðamálastofa

Málsnúmer 1606026Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Ferðamálastofu frá 23. júní sl., varðandi ósk um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í samstarfsverkefninu og felur menningar- og markaðsfulltrúa að vera ábyrgðaraðili verkefnisins gagnvart Ferðamálastofu.

9.Sjúkraþjálfun

Málsnúmer 1601015Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), dags. 9. júní sl., varðandi framvindu sjúkraþjálfaramála í Grundarfirði. Í bréfinu kemur fram að aðstaða fyrir sjúkraþjálfara er til staðar í heilsugæslunni og unnið er að kaupum á nauðsynlegum tækjabúnaði.

Bæjarráð fagnar því að hreyfing sé á þessum málum eins og óskað hefur verið eftir. Jafnframt hvetur bæjarráð til þess að HVE auglýsi sem fyrst eftir sjúkraþjálfara til starfa.

Bæjaryfirvöld munu styðja við framgang mála eins og frekast er kostur.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málum í samvinnu við HVE.

10.Sundlaug, framkvæmdir

Málsnúmer 1509016Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir framkvæmdum við sundlaugina og nokkrum atriðum sem brýnt er að lagfæra varðandi heita potta og aðgengismál á svæðinu.

Bæjarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa ásamt umsjónarmanni fasteigna og forstöðumanni íþróttamannvirkja að vinna að úrlausn mála.

11.Leikskólinn, framkvæmdir 2016

Málsnúmer 1606027Vakta málsnúmer

Lagður fram listi yfir nauðsynleg viðhaldsverkefni í leikskólanum.
Gerð grein fyrir áætluðum verkefnum á sumarlokunartíma leikskólans, bæði á lóð og húsi. Jafnframt lagðir fram minnispunktar frá fundi um húsnæðismál leikskólans 27.06.2016.

Samþykkt samhljóða.

12.Umsögn vegna endurskoðunar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1606024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf til Skipulagsstofnunar dags. 20. júní sl. vegna umsagnar á lýsingu vegna endurskoðunar aðalskipulags Grundarfjarðar.

13.Samband ísl. sveitaf. Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2016

Málsnúmer 1606022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 15.06.2016.

14.Þjóðskrá Íslands. Fasteignamat 2017

Málsnúmer 1606021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 14.06.2016.

15.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Beiðni um umsögn

Málsnúmer 1606018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 08.06.2016 vegna starfshóps um mat á umhverfisáhrifum.

16.Framkvæmdaráð Snæfellsness

Málsnúmer 1606010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð framkvæmdaráðs frá 15.06.2016.

17.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, 124. fundur stjórnar

Málsnúmer 1606029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá 18.05.2016.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:03.