5. fundur 29. júní 2015 kl. 11:00 - 12:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) formaður
  • Sólrún Guðjónsdóttir (SG)
  • Runólfur Guðmundsson (RUG)
  • Hafsteinn Garðarsson (HG) hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri
Dagskrá
ÞS setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Óskaði hann eftir að tekið yrði fyrir erindi varðandi afskriftir skulda og var það samþykkt.

Gengið var til dagskrár:

1.Aðalskipulag - Framnes/Hafnarsvæði

Málsnúmer 1305009GRUVakta málsnúmer

Lögð fram lýsing vegna breytingar aðalskipulags þéttbýlis Grundarfjarðar 2003-2015, Hafnarsvæði.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 18. júní sl. að lýsing skipulagsins verði auglýst að nýju skv. 1. mgr. 30. gr. í skipulagslaga nr. 123/2010 og að kynningarfundur á tillögu verði haldinn skv. 2. mgr. 30. gr. í skipulagslögum nr. 123/2010.

Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að skipulagið verði sent að nýju í auglýsingu.

2.Niðurstaða á útlagningu Flangaskersbauju

Málsnúmer 1507002Vakta málsnúmer

Lögð fram bréfasamskipti milli Vegagerðarninnar og hafnaryfirvalda í Grundarfirði, þar sem tekist er á um fjármögnun siglingabauju á Flangaskersgrunni.
Samkomulag hefur náðst um það að Vegagerðin kosti uppsetninguna en hafnarsjóður Grundarfjarðar sjái um reksturinn.

Hafnarstjórn samþykkir þessa ákvörðun fyrir sitt leyti og fagnar því að þessum áfanga hefur verið náð. Baujan mun auka öryggi sjófarenda á svæðinu til muna.

3.Samgönguáætlun 2015-2018 / Grundarfjarðarhöfn

Málsnúmer 1507003Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að samgönguáætlun 2015-2018 sem sýnir að gert er ráð fyrir framkvæmdum við lengingu Norðurgarðs, stálþili , þekju og lögnum árið 2018. Alls er áætlað að heildarkostnaður það ár verði 207 m.kr., en heildarkostnaður er talinn vera um 400 m.kr.

Hafnarstjórn fagnar því að fjárveitingar fáist til verkefnisins, en felur jafnframt hafnarstjóra og formanni nefndarinnar að vinna að því að nægjanlegar fjárveitingar fáist áfram til þess að ljúka verkinu. Jafnframt verði leitað eftir því að fjármagn fáist á árunum 2016-2017 til þess að fullhanna verkið og undirbúa framkvæmdir.

4.Hafnarfundur 2015

Málsnúmer 1507004Vakta málsnúmer

Stjórn Hafnarsambands Íslands hefur boðað til 7. hafnarfundar, sem haldinn verður í Hafnarfirði föstudaginn 28. ágúst nk.

Samþykkt samhljóða að hafnarstjóri sæki fundinn.

5.Hafnarsamband kynning / Reglur um brennistein í skipaeldsneyti

Málsnúmer 1507005Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 8. júní sl. , varðandi reglur um brennistein í skipaeldsneyti.
Lagt fram til kynningar.

6.Afskriftir skulda

Málsnúmer 1507007Vakta málsnúmer

Lagður fram listir yfir viðskiptakröfur að heildarfjárhæð 1.245 þús. kr.
Samþykkt að afskrifa kröfurnar.

7.Fundargerð Hafnarsambands Íslands

Málsnúmer 1507006Vakta málsnúmer

1.1
Fundargerð Hafnarsambandsins nr. 374 frá 10.04. 2015
Lagt fram til kynningar
1.2
Fundargerð Hafnarsambandsins nr. 375 frá 22.05.2015
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.