97. fundur 17. september 2020 kl. 16:15 - 19:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Georg Einarsson (BGE) formaður
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir (IEB)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður Grundarfjarðarbæjar sat einnig fundinn.

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Þríhyrningur - hugmyndir, hönnun, endurbætur

Málsnúmer 1908016Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu eftirtaldir sem gestir:

Herborg Árnadóttir arkitekt frá Alta, í fjarfundi.
Þorsteinn Hjaltason fulltrúi grunnskólans, í fjarfundi, og Ingibjörg E. Þórarinsdóttir fulltrúi leikskólans.
Signý Gunnarsdóttir fulltrúi Skógræktarfélagsins, í fjarfundi.
Sigríður G. Arnardóttir fulltrúi UMFG, í fjarfundi.
Sunna Njálsdóttir fulltrúi Kvenfélagsins Gleym-mér-ei, í fjarfundi.

Herborg kynnti samantekt sem hún hefur unnið, úr gögnum og vinnu nefndarinnar, um fjölskyldu- og útivistarsvæði í Þríhyrningi. Sl. vetur hélt nefndin opinn fund og fund með félagasamtökum og tók í framhaldinu saman hugmynd sem nú hefur verið unnið með.

Umræður fóru fram um spurningar eins og fyrir hverja svæðið væri, í hvaða tilgangi fólk kæmi í garðinn, hver væri sérstaða hans, hugmyndir um nýtingu, punktar um viðhaldsþörf og fleira.

Gagnlegar umræður urðu um þessi atriði og mun Herborg vinna áfram að þróun svæðisins fyrir nefndina, á grunni þess sem fram kom. Mikilvægt er að vinna hugmyndina áfram í samvinnu við nágranna og félagasamtökin. Þegar hugmyndin hefur verið sett í búning og útfærð nánar, verður tillaga kynnt íbúum.

Til frekari umræðu á næsta fundi.

Gestum fundarins var þökkuð þátttaka í umræðunum.

2.Íþróttamaður Grundarfjarðar 2020

Málsnúmer 2009030Vakta málsnúmer

Nefndin hefur til skoðunar reglur um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar og mun ljúka því í september.

Nefndin mun senda íþróttafélögunum erindi og óska eftir áliti þeirra um þörf fyrir breytingar á reglunum.

Íþróttamaður ársins verður valinn í nóvember nk. og tilnefndur á aðventudegi Kvenfélagsins sunnudaginn 29. nóvember nk.

3.Vinnuskóli 2020

Málsnúmer 2005038Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir starfsemi vinnuskólans sumarið 2020, verkefni, skipulag og fleira. Hún sagði frá því að hún hefði leitað til Sambands íslenskra sveitarfélaga og fleiri aðila síðastliðið vor um leiðbeiningar eða ramma fyrir fræðsluhluta vinnuskólans.

Nefndin hefur áhuga á því að ræða frekar hugmyndir um þróun starfs vinnuskólans, með áherslu á fræðsluhlutann og samfélagstengd verkefni. Til umræðu síðar.




4.Sumarnámskeið fyrir börn 2020

Málsnúmer 2003008Vakta málsnúmer

Til umræðu á næsta fundi.

5.Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands - Göngum í skólann 2020

Málsnúmer 2008006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf ÍSÍ um átakið Göngum í skólann.
Grunnskólinn mun útfæra "Göngum í skólann" verkefni hjá nemendum í lok september.

Skólinn tók þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ, landsátaki sem sett var af stað í Grunnskóla Grundarfjarðar 8. september sl.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:50.