180. fundur 05. júlí 2017 kl. 17:00 - 19:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólafur Tryggvason (ÓT) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Þorsteinn Birgisson (ÞB) skipulags- og byggingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Birgisson skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Borgarbraut/Nesvegur biðskylda

Málsnúmer 1706028Vakta málsnúmer



Vegna umferðar frá hafnarsvæði.
Borgarbraut/Nesvegur biðskylda ?
Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar biðskyldu á horni Nesvegar-Borgarbraut. Nefndin leggur til að gerðar verði færanlegar eyjar með tilheyranda merkingum til að stýra umferð af hafnarsvæði. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að vinna verkið með hafnarverði.

2.Rarik, staðsetning spennistöðvar

Málsnúmer 1706027Vakta málsnúmer

Rarik óskar eftir lóð undir spennistöð
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að spennistöðin verði staðsett við suðurgafl smíðastofu.
Byggingarfulltrúa falið að fá staðfesta staðsetningu í samráði við skólastjórnendur.

3.Fellabrekka 11-13,lóðaumsókn

Málsnúmer 1706026Vakta málsnúmer

Lóðaumsókn: Ásgeir Þór Ásgeirsson, Ólöf G. Guðmundsdóttir, Halldóra Dögg og Sigurður Friðfinnsson sækja um lóðina að Fellabrekku 11-13.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið að veita
Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, Ólöfu G. Guðmundsdóttur, Halldóru Dögg og Sigurði Friðfinnssyni lóðina að Fellabrekku 11-13.



4.Þórdísarstaðir: Deiliskipulag

Málsnúmer 1702011Vakta málsnúmer

Dísarbyggð ehf leggur fram tillögu að deiliskipulagi.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur byggingarfulltrúa að halda áfram með deiliskipulagið í kynningarferli.

5.Efnisnámur- og losunarstaðir

Málsnúmer 1706005Vakta málsnúmer

Losunarstaðir - Tippur til efnislosunar.
1. Hrafnkelsstaðabotn ? Kolgrafafjörður
- Virkur losunarstaður.

2. Hönnugil
- Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafin verði vinna við hönnun að útivistarsvæði við Hönnugil. Nefndin leggur einnig til að bæjarstjórn heimili losun (Sjá fylgiskjal) sem allra fyrst svo að ekki glatist efni sem gæti nýst vel til uppbyggingar. Losun færi fram í samráði við byggingarfulltrúa og verkstjóra áhaldahúss þannig að þeir hefðu yfirumsjón með hvernig verði losað og að gengið verði vel frá eftir hvert verk.
Fylgiskjal sýnir tillögu að losunarstað í hönnugili. (Hönnugil-losa)

3. Ártún Tippur-grjótnáma
- Nefndin hafnar alfarið losun á öðru en burðarhæfu efni í námuna við Ártún vegna þess að um er að ræða væntanlegar byggingarlóðir.

4. Hesthúshverfi
- Nefndin er sammála þessum losunarstað.
- Losa má burðarhæft efni og blandað jarðefni.

5. Soffagata að Gilós ( fjaran )
- Nefndin er sammála þessum losunarstað.
- Losa má grjót.

6. Mön við íþróttavöll
- Nefndin tekur vel í lengingu manar.
- Losa má blandað jarðefni.

7. Mön neðan við grjótnámu
- Nefndin leggur til að mönin verði lengd til vesturs.
- Losa má blandað jarðefni.

6.Fellabrekka 1, lóðaumsókn

Málsnúmer 1707001Vakta málsnúmer

Lóðaumsókn: Haukur Árni Hjartarsson sækir um lóðina Fellabrekka 1



Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags og byggingarfulltrúa að veita Hauki Árna Hjartarsyni lóðina að Fellabrekku 1.




7.Pylsuvagn - stöðuleyfi breyting

Málsnúmer 1707002Vakta málsnúmer

Breytt stöðuleyfi: Bongo slf. óskar eftir nýrri staðsetningu á pylsuvagninum til varnar slysahættu.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í að pylsuvagninn sé færður inn á grasflötina við hlið núverandi staðsetningu.

8.Stækkun Fiskvinnslu G.Runólfsson

Málsnúmer 1707003Vakta málsnúmer

G.Runólfsson leggur fram drög af teikningu vegna stækkun fiskvinnsuhús.
Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framlögðum teikningum og leggur til að bílastæði sem teiknuð eru við nýja götu verði færð austan við núverandi byggingu G.Run við Eyraveg til að eiga þess kost að lengja viðbyggingu til norðurs.

9.Fellabrekka 21 - frágangur við baklóð

Málsnúmer 1707004Vakta málsnúmer

Nýjir eigendur að Fellabrekku 21 óska eftir að gengið verði frá kanti að ofanverðu á baklóð hússins.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltúa að vinna að framgangi þessa máls.

10.Fyrirspurn um lóð

Málsnúmer 1706029Vakta málsnúmer

Erind frá Umhverfisþjónustunni ehf vegna frálagssvæðis.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að hagkvæmt gæti verið að gefa eftir þó ekki sé nema hluta af umræddu landssvæði með það að leiðarljósi að í framtíðinni muni steypustöðin færast frá þjóðvegi.

Fundi slitið - kl. 19:50.