161. fundur 21. október 2015 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólafur Tryggvason (ÓT) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM) aðalmaður
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ) aðalmaður
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) aðalmaður
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK) aðalmaður
Fundargerð ritaði: Sigurbjartur Loftsson skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
Skipulags- og byggingarfulltrúi óskar eftir að bæta einu máli við áður senda dagskrá. Mýrarhús - Fyrirspurn. Samþykkt samhljóða.

1.Breyting á deiliskipulagi Framness. Nesvegur 4 og 4b

Málsnúmer 1406007Vakta málsnúmer

Uppfærð breyting á deiliskipulagi er lög fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að deiliskipulagið verði endurauglýst og kynnt samkvæmt 43.gr. í skipulagslögum nr. 123/2010. Ef til kemur að bílasæði vanti á lóð miðað við byggingamagn, þarf að gera kvöð á viðkomandi lóð þar sem auka bílastæði verða staðsett.

2.Borgarbraut 17 - Breytingar sundlaug

Málsnúmer 1406017Vakta málsnúmer

Grundarfjarðarbær óskar eftir byggingarleyfi fyrir endurbótum á núverandi heitapottasvæði og uppbyggingu á vaðlaug.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

3.Vinnureglur vegna rekstrarleyfa, samþykkt um bílastæði og bílastæðagjaldskrá

Málsnúmer 1508018Vakta málsnúmer

Lögð eru fram drög að vinnureglum vegna rekstrarleyfa í íbúðarbyggð, samþykkt um bílastæði og bílastæðagjaldskrá. Erindi frestað á fundi 160. Bókun bæjarstjórnar fundur 188. "Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulags- og umhverfisnefnd frekari úrvinnslu og mótun vinnureglnanna. Jafnframt að fela forseta, varaforseta og bæjarstjóra að sækja fund skipulags- og umhverfisnefndar vegna málsins."
Inn á fundinn koma Þorsteinn, Eyþór og Rósa og véku svo af fundi eftir umræður.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að:
1.
Vinnureglur vegna rekstrarleyfisumsókna í íbúðabyggð, Grundarfirði.
2.
Samþykkt um fjölda bílastæða innan lóða í Grundarfirði. Verði samþykktar eins og liggja fyrir á fundinum nema að breyting verði gerð á gr.3. í Vinnureglum og verði eftirfarandi?3. Bæjarstjórn veitir ekki umsögn fyrr en að lokinni kynningu.“
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við Bílastæðagjaldskrá, samkv. 19.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Ártún 21 - umsókn um lóð

Málsnúmer 1509015Vakta málsnúmer

Þórður Guðmundsson, kt.021049-2559 fyrir hönd Landsnets, kt.580804-2410 sækir um lóð fyrir nýja aðveitustöð rafmagns sem kemur í stað þeirrar sem verður rifin.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að lóðarumsóknin sé samþykkt.

5.Mýrarhús - fyrirspurn

Málsnúmer 1508001Vakta málsnúmer

Lögð er inn fyrirspurn hvort hægt sé að byggja sumarhús í landi Myrarhúsa um 30m frá vatni. Með fyrirspurninni fylgir bréf ódags. og samþykki eigenda fyrir nýju húsi. Óskað eftir undanþágu til umhverfis- og auðlindarráðuneytis. Undanþága barst í bréfi dags. 19.okt.2015.
Lagt fram og skipulags og byggingarfulltrúa falið að svara fyrirspurninni.
Önnur mál:

Sigurbjartur þakkar fyrir sig og þann tíma sem skipulags- og byggingarfulltrúi í Grundarfirði.

Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar samstarfið og vel unnin störf og bíður á sama tíma nýjum skipulags- og byggingarfulltrúa velkominn til starfa.

Fundi slitið - kl. 19:00.