532. fundur 27. júní 2019 kl. 16:30 - 20:41 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Heiður Björk Fossberg Óladóttir (HBÓ)
  • Garðar Svansson (GS)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

Jósef Kjartansson sat fundinn undir lið nr. 4.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1901021Vakta málsnúmer

Yfirlit yfir lausafjárstöðu bæjarsjóðs lagt fram til kynningar.

2.Greitt útsvar 2019

Málsnúmer 1904023Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar í janúar til maí 2019. Á síðasta bæjarráðsfundi kom fram að fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir talsvert meiri hækkun útsvars en tölur janúar-apríl gáfu til kynna. Maímánuður kemur betur út en fyrri mánuðir ársins, en bæjarráð og bæjarstjóri munu fylgjast grannt með þróun útsvarsins.

3.Fellabrekka 21 - lóðamál

Málsnúmer 1707004Vakta málsnúmer

Lögð voru fram lóðablöð fyrir lóðir 7-21 við Fellabrekku, útbúin af Verkís, og fór Sigurður Valur yfir þau.

Skipulags- og byggingarfulltrúa og formanni skipulags- og umhverfisnefndar falið að ganga frá lóðamálum með samtali við íbúa.

Hér yfirgáfu Unnur Þóra og Sigurður Valur fundinn.


Gestir

  • Unnur Þóra Sigurðardóttir formaður skipulags- og umhverfisnefndar
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulags- og byggingarfulltrúi í gegnum síma

4.Landslög - Deiliskipulag á Sólvallarreit

Málsnúmer 1803029Vakta málsnúmer

Hér vék Rósa af fundi. Jósef tók sæti á fundinum og sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarstjóri fór yfir stöðu máls vegna erindis frá Landslögum, lögmannsstofu, f.h. eiganda Nesvegar 13, neðri hæðar, í framhaldi af fyrri bókunum og vinnu í málinu.
G.Run. hf. hefur gert kauptilboð í eignina og hefur því verið tekið.
Verið er að ganga frá málslokum. Bæjastjóra falið umboð til að ljúka málinu í samræmi við umræður fundarins og greiðslu kostnaðar.

Samþykkt samhljóða.

Hér yfirgaf Jósef fundinn.
Rósa kom aftur inn á fundinn og tók við stjórn fundarins.



5.Hrannarstígur 18 íb.105

Málsnúmer 1906001Vakta málsnúmer

Íbúð fyrir eldri borgara nr. 105 við Hrannarstíg 18 var auglýst laus til umsóknar. Tvær umsóknir bárust um íbúðina.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta íbúðinni til Jensínu Guðmundsdóttur og Guðna Gústafssonar og staðfestir fyrirliggjandi samning.

6.Tillaga Samstöðu 11.06.2019 um stofnun framkvæmda- og uppbyggingarsjóðs fyrir félagastarfsemi

Málsnúmer 1906006Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn hafði vísað tillögunni til bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar og umræðu.

Rætt um nánari útfærslu í málinu og um fyrirhugaða vinnu við stefnumótun fyrir málefnasvið bæjarins. Bæjarráð leggur upp með að frekari umræða og úrvinnsla málsins fari saman með stefnumótunarvinnunni.

Samþykkt samhljóða.


7.Golfklúbburinn Vestarr - Beiðni um aðstoð við uppbyggingu á Bárarvelli

Málsnúmer 1906011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi stjórnar Golfklúbbsins Vestarrs um samtal við bæjarstjórn um framtíðarfyrirkomulag við uppbyggingu og rekstur íþróttasvæðis Golfklúbbsins á Bárarvelli, Grundarfirði.

Bæjarráð mun bjóða fulltrúum Vestarrs til samtals á haustmánuðum. Samþykkt samhljóða.

8.Framkvæmdir 2019

Málsnúmer 1902049Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti ítarlega stöðu verklegra framkvæmda, einkum sem snúa að grunnskóla, leikskóla og samkomuhúsi, auk ýmissa umhverfisverkefna.

9.Unicef - Áskorun um samræmt verklag svf. vegna gruns um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum

Málsnúmer 1906009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Unicef sem ber yfirskriftina "áskorun um samræmt verklag sveitarfélaga vegna gruns um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum".

Fram var einnig lagt minnisblað, skv. beiðni bæjarstjóra, frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og kynning á verklagsreglum og vinnulagi barnaverndarnefndar og samstarfsaðila á Snæfellsnesi í ofbeldismálum.

Bæjarráð þakkar fyrir samantekt Félags- og skólaþjónustunnar, þar sem fram kemur skýrt verklag og markvisst samstarf sem byggt hefur verið upp á vegum Félags- og skólaþjónustunnar og samstarfsaðila, s.s. lögreglu og skólastofnana.

Bæjarstjóra falið að svara Unicef og kynna hið góða starf sem unnið hefur verið á okkar svæði og verklag aðila.

10.Sorpurðun Vesturlands hf. - fundargerð stjórnarfundar 3. apríl 2019

Málsnúmer 1906018Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Sorpurðun Vesturlands hf. - fundargerð stjórnarfundar 19. júní 2019

Málsnúmer 1906017Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Tilkynning um aðalfund fulltrúaráðs EBÍ 20. sept. n.k.

Málsnúmer 1906010Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

13.Hrafnshóll - kynning á hentugum íbúðabyggingum f. sveitarfélög

Málsnúmer 1903023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

14.Þjóðskrá Íslands - Fasteignamat 2020

Málsnúmer 1906020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Þjóðskrá um breytingar á fasteignamati ársins 2020.
Samþykkt að vísa málinu til nánari umfjöllunar við fjárhagsáætlunargerð.


15.Samband íslenskra sveitarfélaga - Yfirlýsing um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmiðin

Málsnúmer 1906021Vakta málsnúmer

Umræða geymd um þennan lið og verður tekin fyrir á næsta bæjarráðsfundi.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið - kl. 20:41.