569. fundur 22. júní 2021 kl. 16:30 - 22:18 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
    Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður sett fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2021

Málsnúmer 2101039Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2105035Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit janúar-maí 2021.

3.Framkvæmdir 2021

Málsnúmer 2104022Vakta málsnúmer

Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta og Lilja G. Karlsdóttir hjá VSB verkfræðistofu sátu fundinn undir þessum lið.

Þær fóru yfir þá vinnu sem átt hefur sér stað varðandi gangstéttar og blágrænar lausnir vegna undirbúnings framkvæmda í sumar og haust.

Farið yfir kostnaðartölur verkframkvæmda og forgangsröðun. Stærstu framkvæmdir ársins felast í endurbótum gangstétta og stíga.

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Halldóra Hreggviðsdóttir - mæting: 17:00
  • Lilja G. Karlsdóttir - mæting: 17:00

4.Starfsreglur um ráðningu starfsmanna

Málsnúmer 1902022Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á starfsreglum bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna.

Í samræmi við samstarfssamning Grundarjarðarbæjar, Stykkishólmsbæjar, Eyja- og Miklaholtshrepps og Helgafellssveitar um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa og yfirumsjón með eignasjóði, þ.m.t. verklegum framkvæmdum og fasteignum hjá sveitarfélögunum, er gerð eftirfarandi tillaga að breytingu á starfsreglum bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna:

5. tl. 2. gr. reglnanna fellur niður.

Við 2. gr. reglnanna bætist í staðinn ný málsgrein:

- Skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi skal tilnefndur eða ráðinn í samræmi við skyldur bæjarfélagsins skv. samstarfssamningi um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa o.fl. milli Grundarjarðarbæjar, Stykkishólmsbæjar, Eyja- og Miklaholtshrepps og Helgafellssveitar og er bæjarstjóra falið að annast tilnefningu/ráðningu í störfin í samræmi við samninginn, að undangengnu samráði við bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

5.Sameiginlegt embætti skipulags- og byggingarfulltrúa á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2011052Vakta málsnúmer


Bæjarstjóri sagði samstarfi sínu, oddvita Helgafellssveitar, oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps og bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar vegna ráðningarferlis skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa, í samræmi við samstarfssamning sveitarfélaganna um þessi störf.

26 umsóknir bárust um störfin tvö og níu umsækjendur voru teknir í viðtal. Bæjarstjóri fór yfir ráðningarferlið og kynnti niðurstöður hæfnimats.

Bæjarstjóra falið að ljúka frágangi málsins í samræmi við lið nr. 4 á dagskrá þessa fundar, sbr. samstarfssamning sveitarfélaganna.

Samþykkt samhljóða.

6.Beiðni um launað námsleyfi í leikskóla

Málsnúmer 2104007Vakta málsnúmer

Lagður fram kostnaðarútreikningur vegna beiðni um launað námsleyfi starfsmanns í Leikskólanum Sólvöllum.

Bæjarráð samþykkir að veita launað námsleyfi í samræmi við reglur Grundarfjarðarbæjar um styrki vegna námsleyfa, sem umreiknað hefur verið til stöðuhlutfalls skv. fyrirliggjandi gögnum.

Í samræmi við reglurnar verði undirritaður samningur skv. 4. gr. reglnanna lagður fyrir næsta fund bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

7.Tímabundinn afsláttur af gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2106027Vakta málsnúmer

Lagðir fram skilmálar um tímabundinn 50% afslátt af gatnagerðargjöldum. Lagt til að 50% afsláttarkjör gildi áfram til 30. júní 2022, í samræmi við framlagða skilmála, sem fela í sér smávægilegar breytingar frá þeim fyrri.

Fyrirliggjandi skilmálar samþykktir samhljóða.

8.Skólaakstur 2021-2022

Málsnúmer 2106016Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur um skólaakstur sem rann út vorið 2021. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins vegna frekari skoðunar.

Samþykkt samhljóða.

9.FSS - Bygging íbúða fyrir fatlað fólk í Ólafsvík

Málsnúmer 2006035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla HLH ráðgjafar frá 4. júní sl., með kynningu á niðurstöðum um rekstur húsnæðis og þjónustu fyrir fatlað fólk á heimili sínu, ásamt fleiri gögnum.

Bæjarstjóri sagði frá því að á döfinni sé að auglýsa nýju íbúðirnar fimm lausar til umsóknar, en stjórn FSS hefur falið forstöðumanni FSS og HLH ráðgjöf að vinna nánar að tillögum um samlegð/samnýtingu starfa hjá FSS, þannig að skoðað verði hvort forstöðumann þurfi í heilt starf eða hlutastarf.

10.Vinnumálastofnun - atvinnuleysistölur

Málsnúmer 2106004Vakta málsnúmer

Skv. nýjustu upplýsingum frá Vinnumálastofnun eru fjórir einstaklingar á atvinnuleysisskrá í Grundarfirði.

11.Eignarhaldsfélag Brunabótafél. Íslands - Styrktarsjóður 2021

Málsnúmer 2103048Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsókn í Styrktarsjóð EBÍ ásamt gögnum um uppbyggingu Þríhyrnings. 400.000 kr. styrkur fékkst til verkefnisins, þ.e. söguskiltis og eldstæðis í Þríhyrningi.

12.Umhverfisvottun Snæfellsness - 12. vottun EarthCheck

Málsnúmer 2105017Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar staðfesting Umhverfisvottunar Snæfellsness á 12. Earth Check vottuninni.

13.Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga - Fundargerðir 113. og 114. funda stjórnar

Málsnúmer 2106018Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS), fundargerð 113. fundar sem haldinn var 15. febrúar sl. og fundargerð 114. fundar sem haldinn var 26. febrúar sl., ásamt minnisblaði FSS um skólaþjónustu, tilvísunarblaði leik- og grunnskóla til FSS og ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi um eflingu þjónustu FSS.

Bæjarráð leggur til að gögnin verði send skólanefnd til upplýsinga.

14.Tómas Freyr Kristjánsson - Samningur um ljósmyndun 2021

Málsnúmer 2106017Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Tómas Frey Kristjánsson um ljósmyndun 2021.

15.Bongó - Samningur um afnot af Sögumiðstöð sumarið 2021

Málsnúmer 2106008Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Bongó slf. um afnot af húsnæði Sögmiðstöðvar sumarið 2021.

16.Grundargata 65 - fundargerð húsfundar og ársyfirlit

Málsnúmer 2106026Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð húsfundar eigenda að Grundargötu 65, sem haldinn var 16. júní sl., ásamt ársyfirliti.

17.Vinnueftirlit ríkisins - Ungt fólk á vinnumarkaði og öryggismál

Málsnúmer 2106022Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Vinnueftirlits ríkisins, dags. 28. maí sl., um ungt fólk á vinnumarkaði og öryggismál.

18.Samgönguráðuneytið - ósk um upplýsingar

Málsnúmer 2106010Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, dags. 13. apríl sl., sem sent var öllum sveitarfélögum. Í bréfinu er óskað eftir ýmsum fjárhagsgögnum ársins 2021. Jafnframt lagt fram svarbréf bæjarins við bréfi ráðherra.

19.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerð 899. fundar stjórnar

Málsnúmer 2106023Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 899. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sam haldinn var 11. júní sl.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 22:18.