616. fundur 24. janúar 2024 kl. 08:30 - 12:19 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
    Aðalmaður: Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Ágústa Einarsdóttir varaformaður stýrði fundi í fjarveru formanns.

Hún setti fundinn og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2023

Málsnúmer 2301020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu til og með 31.12.2023.

2.Lausafjárstaða 2024

Málsnúmer 2401026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu frá og með 01.01.2024 til dagsins í dag.

3.Greitt útsvar 2023

Málsnúmer 2302010Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-desember 2023.

Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar janúar-desember 2023 hækkað um 9,3% miðað við sama tímabil í fyrra. Landsmeðaltal greidds útsvar hefur á sama tímabili hækkað um 13,9%.

Íbúafjöldi 1. janúar 2024 er 864 íbúar.

4.Launaáætlun 2023

Málsnúmer 2304026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun janúar-desember 2023 í samanburði við áætlun ársins.

Raunlaun fóru 1,37% yfir áætlun ársins m.a. vegna kjarasamningshækkana.

5.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Sigurbjartur Loftsson, verkefnastjóri, kom inn á fundinn gegnum Teams. Hann fór yfir stöðu orkuskiptaverkefnisins. Hann sagði frá framvindu verkþátta sem einkum felast í að leggja lagnir frá borholum og inn í íþróttahús. RARIK mun koma upp húsi yfir nýjan spenni, en lagður verður háspennustrengur vegna verksins. Sigurbjartur vinnur að frágangi teikninga vegna breytinga á rými í kjallara íþróttahúss. Rætt um verktíma verkefnisins.

Sigurbjarti var þakkað fyrir góðar upplýsingar.

Gestir

  • Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 09:47
  • Sigurbjartur Loftsson, verkefnastjóri - mæting: 09:30

6.Framkvæmdir 2024

Málsnúmer 2401018Vakta málsnúmer



Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi, Bergvin Sævar Guðmundsson, umsjónarmaður fasteigna og Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, sátu fundinn undir þessum lið.

Bæjarstjóri fór yfir stöðu framkvæmda ársins ásamt þeim Ólafi, Sævari og Sigurði Val, þau verkefni sem farin eru af stað sem og verkefni framundan.

Rætt var um hönnun sundlaugargarðs og hvað felst í þeirri vinnu, rennibraut o.fl.
Rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir á tjaldsvæði, merkingar á tjaldsvæði, stöðu verkefna í Þríhyrningi, fyrirhugaða uppsetningu leiktækja fyrir yngstu börnin á Hjaltalínsholti, fyrirhugaðar framkvæmdir í kringum gömlu spennistöðina, framkvæmdir í samkomuhúsi vegna gjaldhliðs fyrir salerni sem opin eru ferðafólki og fyrirkomulag salernisaðstöðu. Einnig rætt um gatnagerð næsta sumar, þar sem lögð er áhersla á gangstéttar á Hrannarstíg.

Rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir á vesturhlið íþróttahúss, en skipta á um glugga og hurðir og gera múrviðgerðir. Rætt um breytingar á aðkomuleiðum (hurðir) til að bæta aðgengi og neyðaraðkomu. Sigurður Valur sýndi teikningar og tillögur þar að lútandi.

Bæjarráð samþykkir samhljóða þá útfærslu sem tillaga er gerð um og verða teikningar unnar um þær.

Gestir

  • Bergvin Sævar Guðmundsson, umsjónarmaður fasteigna - mæting: 10:25
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi - mæting: 10:35
  • Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 10:10

7.HMS - Opnum fljótlega fyrir umsóknir um stofnframlög

Málsnúmer 2401025Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 22. janúar sl., varðandi umsóknir um stofnframlög, sem opnað verður fyrir fljótlega.

Rætt um lausar lóðir í Grundarfirði og lóðaskipulag sem er í vinnslu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa að skoða málið í samræmi við umræður fundarins og felur þeim jafnframt umboð til að sækja um framlög.

Samþykkt samhljóða.

8.FSS - Sálfræðiþjónusta á vormisseri 2024

Málsnúmer 2312018Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 20. desember 2023, varðandi sálfræðiþjónustu FSS vorið 2024.

9.Elli Bol - Snjómokstur 2023-2024

Málsnúmer 2401004Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur Grundarfjarðarbæjar við Ella Bol ehf. vegna snjómoksturs í Grundarfirði veturinn 2023-2024.

10.Tóm steypa - Snjómokstur 2023-2024

Málsnúmer 2401003Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur Grundarfjarðarbæjar við Tóma steypu ehf. vegna snjómoksturs í Grundarfirði veturinn 2023-2024.



11.Nesvegur 19 - þinglýst afsal og yfirlýsing

Málsnúmer 2401002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar þinglýst afsal vegna atvinnuhúsnæðis að Nesvegi 19, ásamt yfirlýsingu Grundarfjarðarbæjar, þar sem fallið er frá forkaupsrétti á eignarhlutnum.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga - Boðun XXXIX. landsþings sambandsins

Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. janúar sl., þar sem boðað er til 39. landsþings sambandsins þann 14. mars nk.

13.Matvælaráðuneyti - Boð um þátttöku í samráði, Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

Málsnúmer 2401024Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Matvælaráðuneytisins, dags. 22. janúar sl., þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 3/2024 - Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu.

14.Golfklúbburinn Vestarr - Ársreikningar 2022

Málsnúmer 2312010Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Golfklúbbsins Vestarr vegna ársins 2021-2022.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:19.