12. fundur 15. mars 2017 kl. 14:00 - 14:53 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) formaður
  • Sólrún Guðjónsdóttir (SG)
  • Runólfur Guðmundsson (RUG)
Starfsmenn
  • Hafsteinn Garðarsson (HG) hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Icefish Exhibition 2017

Málsnúmer 1703025Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um sýninguna Icefish Exhbition 2017, sem haldin verður í Kópavogi dagana 13.-15. sept. 2017.
Rætt um þátttöku Grundarfjarðarhafnar í sýningunni.
Samþykkt að fela hafnarstjóra að ræða við grundfirsk sjávarútvegsfyrirtæki um sameiginlega aðkomu að sýningunni og óska eftir bás.

2.Kynningarráðstefnur skemmtiferðaskipa 2017

Málsnúmer 1703026Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri gerði grein fyrir kynningarráðstefnum skemmtiferðaskipa árið 2017, sem haldnar eru og verða í Fort Lauderdale í mars, FAM ferð cruise Iceland sem verður á íslandi 3.-7. maí nk. og sýning sem haldin verður í Hamborg dagana 6.-8. september nk.
Hafnarstjóri verður fulltrúi hafnarinnar á Seatrade Hamborg.

3.Hafnarframkvæmdir, staða

Málsnúmer 1703024Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir fyrirhugaðar hafnarframkvæmdir, fjárveitingar og stöðu mála. Skoðuð var ný hugmynd á legu á nýjum viðlegukanti. Jafnframt farið yfir helstu viðhaldsverkefni.
Hafnarstjóra falið að vinna áfram að undirbúningi framkvæmda og láta meta nýja útfærslu.

4.Hafnasamband, sjónvarpsþættir

Málsnúmer 1703014Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. mars sl. þar sem greint er frá hugmyndum um að láta útbúa stutta sjónvarpsþætti um hafnir í samvinnu við Hringbraut og Athygli.
Í erindinu er verið að kanna með áhuga aðildarhafna til þátttöku.
Lagt fram til kynningar.

5.Aðildarhafnir Hafnasambands, námskeið

Málsnúmer 1703015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. mars sl., þar sem verið er að kynna áhugavert námskeið sem haldið verður 4. maí nk. Námskeiðið er auglýst undir heitinu "Verum tilbúin" og fjallar um það hvernig helst skal bregðast við umfjöllun fjölmiðala og einnig hvernig bregðast skuli við áföllum með sem réttustum hætti frá upphafi.
Hafnarstjóri mun fara á námskeiðið.

6.Fjármagn til hafnarframkvæmda

Málsnúmer 1703023Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Hafnasambandsins frá des. sl., þar sem fjallað er um framlög til hafnaframkvæmda á fjárlögum 2017. Í bréfinu er lýst verulegum áhyggjum á miklum niðurskurði fjárveitinga í fjárlögum 2017 miðað við gildandi samgönguáætlun.
Jafnframt lagt fram bréf Hafnasambandsins frá janúar sl., þar sem enn er fjallað um fjárveitingar til hafna og greint frá því að nokkur hækkun hafi fengist frá upphaflegu framlagi í fjárlögum. Jafnframt lagt fram bréf frá Innanríkisráðuneyti, þar sem nánar er greint frá fjárveitingum til hafnamála í fjárlögum 2017.

Hafnarstjórn tekur heilshugar undir áhyggjur Hafnasambandsins varðandi vöntun fjárveitinga til hafnarframkvæmda í fjárlögum samanborið við samgönguáætlun.
Hafnarstjóra og formanni stjórnar falið að koma þessum sjónarmiðum á framfæri við stjórnvöld.

7.Hafnasamband Íslands, fundargerðir 390,391 og 392

Málsnúmer 1702032Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar hafnasambandsins nr. 390, 391 og 392.

Fundi slitið - kl. 14:53.