14. fundur 13. apríl 2018 kl. 10:00 - 13:06 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir aðalmaður
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Unnur Birna Þórhallsdóttir (UBÞ) aðalmaður
  • Sigríður Hjálmarsdóttir (SH) menningar- og markaðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi
Dagskrá

1.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1804014Vakta málsnúmer

Farið yfir minnispunkta frá fundi menningarnefndar með rekstraraðilum Kaffi Emils. Fram hefur komið óánægja af hálfu rekstraraðila þar sem þeim þykir Grundarfjarðarbær ekki koma nægilega til móts við þarfir kaffihússins. Svo sem að setja vegg milli vestursalar og miðsalar hússins sem hægt sé að hafa lokaðan ef fundir eru í Bæringsstofu utan opnunartíma kaffihússins. Menningarnefndin er ósammála því vegna þess að slíkt væri verulega takmarkandi fyrir hlutverk Sögumiðstöðvarinnar sem menningarhúss. Hins vegar er nefndin sammála um að dytta þurfi að ýmsu í húsinu og verður unnið að því á næstu vikum og mánuðum.

Til stendur að endurskoða samning milli Grundarfjarðarbæjar og Svansskála ehf. sem rekur Kaffi Emil. Menningarnefnd telur að skerpa þurfi á ákveðnum atriðum áður en gengið verður til samninga. Eins telur menningarnefndin að endurskoða þurfi leiguverðið og stöðugildi vegna upplýsingamiðstöðvar.

Menningarnefndin er almennt ánægð með það fyrirkomulag að reka saman kaffihús, bókasafn, upplýsingamiðstöð og annað það sem Sögumiðstöðin hýsir í dag. Nefndin harmar þó þann stirðleika sem verið hefur í samskiptum rekstraraðila og Grundarfjarðarbæjar og vonast til að það muni nú breytast til batnaðar.

2.Stefnumótun um menningarhús Grundarfjarðar

Málsnúmer 1801047Vakta málsnúmer

Menningarnefnd lýsir ánægju sinni með mikla aukningu í notkun á Samkomuhúsinu undanfarið ár. Þar hefur aðstaðan verið bætt; s.s. sett upp nýtt brunavarnarkerfi, hljóðkerfi, uppþvottavél og skjávarpi. Þá er húsið hreinna og snyrtilegra en hefur verið í langan tíma. Enn þarf margt að bæta og er þar brýnast að bæta vinnuaðstöðu í eldhúsi.
Samkomuhúsið er menningarhús samfélagsins, til þess gert að ýta undir menningu, samkomur og skemmtun bæjarbúa. Þess vegna telur menningarnefndin að það eigi að koma til móts við þá sem vilja nota húsið, eins og hægt er.

Sögumiðstöðin er einnig menningarhús bæjarins. Sjá lið nr. 1 í fundargerð.

3.Menningarstyrkur til skiltagerðar

Málsnúmer 1804015Vakta málsnúmer

Grundarfjarðarbær fékk úthlutað styrk úr Sóknaráætlun Vesturlands til að útbúa sögu- og upplýsingaskilti í Grundarfirði. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Svæðisgarðinn Snæfellsnes og er fyrsta skrefið í samræmdu útliti slíkra skilta á Snæfellsnesi.
Menningarnefnd fagnar þessum styrk og hlakkar til að sjá útkomuna þegar líður á vorið.

4.TSC býðst til að styrkja Bæringsstofu

Málsnúmer 1802015Vakta málsnúmer

Fyrirtækið TSC í Grundarfirði hefur lýst áhuga á að styrkja Bæringsstofu um ákveðna hluti. Annars vegar að færa allt filmusafn Bærings yfir á stafrænt form og hins vegar að breyta útstillingum verka hans í Sögumiðstöðinni.
Menningarnefnd er afar jákvæð og þakklát fyrir styrk til yfirfærslu mynda Bærings yfir á rafrænt form. Það boð er þegið með þökkum.
Til að hægt verið að hefjast handa við verkið þarf að flytja eldvarða skápinn með myndum og filmum Bærings, sem allra fyrst, á stað þar sem auðvelt er að athafna sig og vinna með myndirnar.

5.Steinskúlptúrar og önnur listaverk

Málsnúmer 1804013Vakta málsnúmer

Listamaðurinn Lúðvík Karlsson hefur lagt inn fyrirspurn um hvort hengja megi upp listaverk á girðingu við leikskólann um helgar og meðan skólinn er í sumarfríi. Einnig að fá að setja upp skúlptúra við sjóinn og fjölga steinskúlptúrum við bæinn. Auk þess hefur hann áhuga á að hressa upp á víkingasvæðið í miðbænum.
Menningarnefndin er jákvæð fyrir þessum hugmyndum Lúðvíks og felur menningar- og markaðsfulltrúa að setja sig í samband við skipulags- og byggingarnefnd varðandi framvindu málsins.

6.Heimsókn nemenda frá Paimpol

Málsnúmer 1804029Vakta málsnúmer

Hópur nemenda frá Paimpol, vinabæ Grundarfjarðar, kemur í heimsókn um miðjan maí og verður í vikutíma á heimilum nemenda úr Grunnskóla Grundarfjarðar.
Nefndin er ánægð með að samskiptin milli vinabæjanna séu viðvarandi og hlakkar til að sjá nemendur frá Paimpol í Grundarfirði í maí.

Fundi slitið - kl. 13:06.