213. fundur 09. mars 2020 kl. 18:00 - 21:08 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Tímabundinn afsláttur á gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2001011Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar skilmálar vegna úthlutunar lóða sem bæjarstjórn samþykkti í febrúar og gilda vegna tímabundins afsláttar af gatnagerðargjöldum frá 1. mars til 31. ágúst 2020.

Nefndin fór yfir skilmálana, sem auglýstir voru í febrúar.

Nefndin lýsir ánægju með samþykkt bæjarstjórnar.

Næsti fundur nefndarinnar verður mánudaginn 16. mars nk. og tekur nefndin þá til afgreiðslu þær lóðaumsóknir sem borist hafa fyrir kl. 14.00 föstudaginn 13. mars nk.
Sett verði auglýsing á vef bæjarins og vakin athygli á þessu.

2.Deiliskipulag Ölkeldudals, breyting

Málsnúmer 2003015Vakta málsnúmer

Í tillögu að aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, sem auglýst hefur verið, er gert ráð fyrir að íbúðarsvæði framlengist upp með Ölkelduvegi.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal frá 2003, þar sem deiliskipulagsreiturinn verði stækkaður og bætt við lóðum fyrir íbúðarhúsnæði, upp Ölkelduveg, í samræmi við áformaðar breytingar í verðandi aðalskipulagi.

3.Könnun á stöðu lífríkis Melrakkaeyjar vegna friðlýsingar

Málsnúmer 2002011Vakta málsnúmer

Í bókun bæjarstjórnar á fundi 13. febrúar sl. var nefndinni falið að skoða þær heimildir, gögn og rannsóknir sem til eru um þróun og stöðu lífríkis Melrakkaeyjar vegna friðlýsingar eyjunnar árið 1971.


Nefndin ræddi bókun bæjarstjórnar.

Nefndin óskar eftir gögnum frá Umhverfisstofnun, sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 118/1974, um þær rannsóknir sem farið hafa fram á lífríki Melrakkaeyjar og varpað geta ljósi á stöðu þess.

4.Umhverfisrölt 2020

Málsnúmer 1905027Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá skýrsla vegna umhverfisrölts 2018 og 2019. Í skýrslunni er farið yfir ábendingar úr umhverfisrölti með íbúum, stöðu verkefna og áætlaða forgangsröðun framkvæmda/úrbóta.
Farið yfir skýrsluna og það sem áunnist hefur. Rætt um umhverfismálin fyrir komandi sumar. Nefndin benti á nokkur atriði sem bæjarstjóri tók niður, til skoðunar.

Nefndin lýsir yfir ánægju með þau atriði sem náðst hefur að lagfæra og fram koma í skýrslunni.

Nefndin stefnir að því að farið verði í umhverfisrölt ársins um miðjan maí nk.

5.Skipulagsstofnun - Loftslagsmál og skipulagsgerð, fundur 28. jan. 2020

Málsnúmer 2002034Vakta málsnúmer

Gögn af morgunverðarfundi Skipulagsstofnunar og loftslagsráðs í janúar sl. um loftslagsmál og skipulag í þéttbýli. Yfirskrift fundarins var: Hvernig má ná árangri í loftslagsmálum með skipulagsgerð.

Lagt fram til kynningar.

6.Skipulagsstofnun - Lýðheilsa og skipulag, fundur 5. mars 2020

Málsnúmer 2003016Vakta málsnúmer

Gögn af morgunverðarfundi Skipulagsstofnunar og landlæknisembættis um lýðheilsumál, heilsueflandi samfélag og skipulagsgerð.

Lagt fram til kynningar.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundargerð þessi er birt með fyrirvara um afgreiðslu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 21:08.