484. fundur 27. maí 2016 kl. 12:00 - 14:16 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Berghildur Pálmadóttir (BP) formaður
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

2.Greiðsluáætlun 2016

Málsnúmer 1604021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

3.Yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur

Málsnúmer 1604023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

4.Tillaga um afskriftir viðskiptakrafna

Málsnúmer 1604031Vakta málsnúmer

Lagður fram listi með tillögum að afskriftum viðskiptakrafna að fjárhæð kr. 15.678.

Samþykkt samhljóða.

5.Útsvarsskuldir

Málsnúmer 1604022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

6.Rekstrarleyfi, Hálsaból umsögn

Málsnúmer 1605024Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf Sýslumannsins á Vesturlandi, þar sem óskað er umsagnar um endurnýjun á rekstrarleyfi Hálsabóls sumarhúss ehf. að Borgarbraut 6, Grundarfirði.

Bæjarráð óskar frekari upplýsingar varðandi umsókn Hálsabóls sumarhúss ehf.

7.Rekstrarleyfi, umsögn Hlíðarvegur og Borgarbraut 9

Málsnúmer 1605023Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Sýslumannsins á Vesturlandi, þar sem óskað er umsagnar um endurnýjun rekstrarleyfis til reksturs gististaðar í flokki II að Hlíðarvegi 15 og Borgarbraut 9.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, enda liggi fyrir umsagnir annarra umsagnaraðila.

Bæjarráð vill þó beina því til rekstraraðila að þeir leiti leiða til úrlausna á bílastæðamálum tengdum rekstrinum. Lausnir skulu vinnast í samráði við skipulags- og byggingafulltrúa bæjarins.

Málinu vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

8.Framkvæmdir 2016

Málsnúmer 1604018Vakta málsnúmer

Lagðar fram og kynntar niðurstöður verðkannana í malbikslögn í Grundarfjarðarbæ.

Tilboð komu frá tveimur aðilum:
1) Kraftfagi ehf. að fjárhæð 15.001.000 kr.
2) Malbikunarstöðinni Hlaðbæ Colas að fjárhæð 10.165.483 kr.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Samþykkt samhljóða.

9.Öldungaráð, fundargerð 19.04.16

Málsnúmer 1605018Vakta málsnúmer

Fjallað um fundargerð Öldungaráðs frá 19.04.2016, sem tekin var fyrir á bæjarstjórnarfundi 12.05.2016 og vísað til frekari afgreiðslu í bæjarráði. Í fundargerðinni koma fram nokkrar ábendingar og óskir um atriði sem betur mega fara varðandi þjónustu við eldri borgara.

Farið yfir stöðu einstakra mála, sem fram komu í fundargerðinni, svo sem afnot af samkomuhúsi, hreyfimöguleika fyrir aldraða á hálkutímum, sjúkraþjálfun, púttvöll, íþróttaiðkun aldraðra og öryrkja og varanleg húsnæðismál fyrir starfsemi aldraðra o.fl.

Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið ásamt fulltrúum úr bæjarráði að ræða við fulltrúa ráðsins um þessi mál og önnur mál er snúa að þjónustu við aldraða.

Samþykkt samhljóða.

10.Lausar lóðir

Málsnúmer 1605029Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausar íbúðahúsalóðir í Grundarfirði ásamt korti, sem sýnir staðsetningu þeirra. Jafnframt lagður fram útreikningur á gatnagerðargjöldum vegna íbúðarhúsa o.fl.

"Bæjarráð Grundarfjarðar leggur til við bæjarstjórn að lausar lóðir í Grundarfjarðarbæ verði auglýstar og boðinn verði allt að 50% afsláttur á gatnagerðargjaldi lóða sem úthlutað verður á árinu 2016.
Hugsun með þessu er að hvetja fólk til nýbygginga íbúðarhusnæðis í bæjarfélaginu."

11.Vélsmiðja Grundarfjarðar

Málsnúmer 1605034Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Vélsmiðju Grundarfjarðar frá 10.05.2016, varðandi umgengni á iðnaðarsvæðinu við Ártún.

Bæjarráð tekur undir það að mikilvægt sé að umgengni á iðnaðarsvæði og annarstaðar í bænum sé góð.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og umhverfisnefndar með þeim tilmælum að unnið verði að því með lóðarhöfum svæðisins að betrumbæta umgengni í samræmi við úthlutunar- og byggingaskilmála.

Jafnframt verði auglýst sérstök hreinsunarvika íbúa og fyrirtækja bæjarins í samstarfi við áhaldahús bæjarins.

Málsmeðferð þessi samþykkt samhljóða.

12.Gistirými, fasteignaskattur

Málsnúmer 1605035Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að bréfum varðandi fyrirhugaðar breytingar á álagningu fasteignagjalda vegna íbúðarhúsnæðis sem leigt er út sem gistiheimili.
Jafnframt lagður fram listi yfir gistiheimili í bænum.

Bæjarráð samþykkir að bréf af þessum toga verði send út til samræmis við fyrirliggjandi lista og gögn.

13.Organisti, ráðning

Málsnúmer 1605036Vakta málsnúmer

Í samvinnu við sóknarnefnd Setbergssóknar og bæjaryfirvalda hefur verið leitað leiða til þess að ráða organista til sóknarinnar.
Nú hyllir undir að það sé að takast og verður viðkomandi ráðinn í 50% starf hjá sókninni og ráðgert er að stórsveit Framhaldsskóla Snæfellinga og Tónlistarskóli Grundarfjarðar skipti ráðningunni að öðru leyti á milli sín.

Bæjarráð fagnar því að lausn skuli í sjónmáli í organistamálum kirkjunnar og samþykkir málið fyrir sitt leyti.

14.Lögreglumál

Málsnúmer 1504040Vakta málsnúmer

Þjónusta lögreglunnar er mikilvæg hverju sveitarfélagi af umferðar- og öryggissjónarmiðum, en á umliðnum misserum hefur verið lögreglulaust í Grundarfirði. Hafa ber í huga að í sveitarfélaginu er staðsett eitt af stærstu fangelsum landsins.

Grundfirðingar hafa margsinnis óskað eftir því að ráðin verði bót á því að lögreglumaður/menn verði ráðnir til starfa í sveitarfélaginu, en ekkert gerst í málinu.

Bæjarráð krefst þess að innanríkisráðuneytið beiti sér þegar í stað fyrir því að ráðið verði í störf lögreglumanna í Grundarfirði.

Málsmeðferð þessi samþykkt samhljóða.

15.Jöfnunarsjóður - Tilkynning um endanlega úthlutun framlags

Málsnúmer 1605027Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 10.05.2016.

16.Umhverfisstofnun - Endurskoðun á samningi 2014-2016 og viðauki

Málsnúmer 1605028Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 05.04.2016.

17.Hesteigendafélagið, bréf

Málsnúmer 1605020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 20.04.2016 auk fundargerðar dags. 09.05.2016.

18.Tölvumál, samningur

Málsnúmer 1605022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar þjónustusamningur um tölvumál.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 14:16.