89. fundur 12. mars 2019 kl. 16:30 - 19:08 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Georg Einarsson (BGE) formaður
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir (IEB)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Markmið íþrótta- og æskulýðsnefndar

Málsnúmer 1810008Vakta málsnúmer

Unnið í skjali nefndarinnar um hlutverk, markmið og verkefni nefndarinnar. Nefndin mun vinna áfram í skjalinu milli funda. M.a. mun nefndin skoða nýleg drög að velferðarstefnu Vesturlands og taka úr henni ýmis atriði sem nefndin telur að samræmist markmiðum nefndarinnar.

Íþrótta- og æskulýðsnefnd stefnir að því að efna til heilsuviku á sama tíma og hreyfivika UMFÍ stendur yfir, þ.e. 27. maí til 2. júní. Ennfremur mun nefndin hvetja bæjarbúa til þátttöku í átaki ÍSÍ, "Hjólað í vinnuna", sem stendur yfir dagana 8. til 28. maí nk.

Bæjarstjóri mun leita eftir verkefnisstjóra til að halda utan um skipulagningu þessara viðburða.


2.Endurskoðun fjölskyldustefnu Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1808016Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri sagði frá því að bæjarstjórn skoði nú þann möguleika að vinna eina heildarstefnu sem taki á fjölskyldustefnu, stefnu um menningarmál, íþrótta- og æskulýðsmálum og fleiru. Nefndin mun fylgjast með framvindunni.


3.Samskipti og kynning íþróttafélaga hjá íþr. og æskulýðsnefnd

Málsnúmer 1810006Vakta málsnúmer

Í framhaldi af næsta lið á undan:
Fyrirhuguðum fundi með íþrótta- og menningarfélögum í bænum hefur verið frestað í bili, þar sem fyrirkomulag við að móta heildstæða stefnu bæjarins er til skoðunar hjá bæjarstjórn. Efni og fyrirkomulag þessa fundar getur að einhverju leyti ráðist af því hvernig staðið verður að mótun heildstæðrar stefnu bæjarins. Fundurinn bíður þar til þetta skýrist.

4.Sumarnámskeið fyrir börn 2019

Málsnúmer 1902015Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirkomulag sumarnámskeiða fyrir yngri börn og ýmsar hugmyndir um útfærslu.
Bæjarstjóri sér fyrir sér að ráða verkefnisstjóra til að hefja undirbúning og skipulagningu sumarnámskeiðanna sem fyrst. Nú í vikunni verður svo auglýst eftir starfsfólki til sumarstarfa hjá bænum. M.a. verður auglýst eftir umsjónarmanni með sumarnámskeiðunum og aðstoðarmanneskju.

5.Vinnuskóli 2019

Málsnúmer 1903011Vakta málsnúmer

Boðað hefur verið til árlegs samráðsfundar vinnuskóla sveitarfélaganna þann 27. mars nk. í Reykjavík. Á þeim tíma verður ekki búið að ráða umsjónarmann vinnuskóla bæjarins fyrir sumarið 2019, en skoðað verður hvort bærinn geti sent fulltrúa á fundinn.


6.Umboðsmaður barna - Niðurstöður könnunar um vinnuskóla fyrir ungmenni

Málsnúmer 1902025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

7.Félagsmálaráðuneytið - Bréf félags- og barnamálaráðherra vegna vinnu við stefnumótun í málefnum barna

Málsnúmer 1902045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundargerð upp lesin og staðfest.

Fundi slitið - kl. 19:08.