9. fundur 20. september 2016 kl. 12:30 - 15:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Elsa Bergþóra Björnsdóttir (EBB) formaður
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Ágústa Ósk Guðnadóttir (ÁÓG)
  • Sigríður Hjálmarsdóttir (SH)
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi
Dagskrá

1.Ársskýrsla Bókasafns

Málsnúmer 1608024Vakta málsnúmer

Ársskýrsla bókasafnsins vegna ársins 2015 lögð fram.
Farið yfir ársskýrslu Bókasafns Grundarfjarðar.

2.Rökkurdagar

Málsnúmer 1608026Vakta málsnúmer

Menningarfulltrúi kynnti drög að dagskrá Rökkurdaga sem haldnir verða dagana 13-22 október. Eins var farið yfir nýtt sameiginlegt verkefni undir heitinu Opinn október á Snæfellsnesi. Þar hefur Svæðisgarðurinn yfirumsjón með gerð kynningarefnis allra þeirra viðburða sem haldnir verða á Snæfellsnesi í októbermánuði. Vonast er til að þátttaka verði góð alls staðar á Nesinu og að saman verði hátíðirnar stærri og öflugri.

Menningarnefnd lýsir ánægju sinni með þessa áhugaverðu samvinnu sveitarfélagana á Snæfellsnesi.

3.Eyrbyggja

Málsnúmer 1602027Vakta málsnúmer

Farið yfir reikninga menningarsjóðs Eyrbyggju og þeir samþykktir.

Samþykkt að greitt verði úr sjóðnum fyrir þann kostnað sem til fellur vegna uppsetningar og formlegrar opnunar á myndavefnum www.baeringsstofa.is, með myndum frá Bæring Cecilssyni.

Einnig lagt til að fjölgað verði hvers konar sýningum í Sögumiðstöð.

4.Vefur fyrir myndir Bærings

Málsnúmer 1511021Vakta málsnúmer

Vefur fyrir myndir Bærings Cecilssonar er nánast tilbúinn og hugað að opnun hans á Rökkurdögum í október.
Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með fyrirhugaða opnun vefsins www.baeringsstofa.is sem verður opnaður formlega við setningu Rökkurdaga þann 13. október nk. í Bæringsstofu í Sögumiðstöðinni.

5.Styrkumsóknir 2016

Málsnúmer 1510015Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu á þeim styrkjum sem fengust frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sl. vetur.

Styrkur fékkst til hönnunar á áningarstað við Kolgrafafjarðarbúna og hefur Ráðgjafarfyrirtækið Alta hafið vinnu við deiliskipulag á svæðinu.

Einnig fékkst styrkur til lagfæringar á göngustígum við Kirkjufellsfoss. Almenna umhverfisþjónustan mun á næstu vikum hefja lagfæringar á göngustígunum og umhverfi þeirra.

Ræddar voru hugmyndir að umsóknum um styrki fyrir næstu úthlutun frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en næst verður auglýst eftir styrkumsóknum í október nk.

6.Félagsstarf eldri borgara

Málsnúmer 1609035Vakta málsnúmer

Gengið hefur verið frá samningi milli Grundarfjarðarbæjar og Verkalýðsfélags Snæfellsness um að Grundarfjarðarbær fái til leigu húsnæði Verkalýðsfélagsins að Borgarbraut 2 í Grundarfirði.
Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með að eldri borgarar bæjarins fái til afnota húsnæði fyrir tómstundir sínar og félagsstarf. Nefndin fagnar því að samningur hafi náðst um leigu á húsnæði Verkalýðsfélags Snæfelsness að Borgarbraut 2 í Grundarfirði. Um er að ræða alla neðri hæð hússins sem mun nýtast eldri borgurum vel. Vinahús Rauðakrossdeildar Grundarfjarðar fær einnig afnot af húsnæðinu sem og önnur félagasamtök og hópar.

7.Vinabæjarsamskipti

Málsnúmer 1609037Vakta málsnúmer

Farið yfir vinabæjarsamskipti Grundarfjarðarbæjar við Paimpol að undanförnu. Ánægjulegt var að fá listakonuna José Conan í heimsókn sl. vor og sýning hennar vakti mikla lukku í Sögumiðstöðinni. Eins kom stór hópur fólks frá Paimpol í júlí og átti hér góða viðdvöl.

Menningarnefndin er ánægð með framlag Grundapol til vinabæjarsamskipta undanfarin ár og vill hvetja félagið til áframhaldandi góðra verka í þágu vinabæjanna.

8.Gjafir til Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1609036Vakta málsnúmer

Vert er að þakka góðar gjafir sem Grundarfjarðarbæ hafa borist á árinu 2016. Fyrst ber að nefna gjöf frá Paimpol, vinabæ Grundarfjarðarbæjar, en hingað kom sendinefnd með upplýsingaplatta til að setja við keltneska minningarkrossinn á Grundarkampi.
Unnsteinn Guðmundsson gaf bænum styttu af háhyrningi sem staðsettur er í Paimpol garðinum.
Loks fengu Grundfirðingar að gjöf höggmyndir frá listamanninum Liston (Lúðvík Karlssyni). Steinarnir eru tíu talsins og menningarnefnd bæjarins hefur verið falið að finna steinverkunum viðeigandi staði í samvinnu við listamanninn.

Fundi slitið - kl. 15:00.