278. fundur 26. mars 2026 kl. 15:00 - 17:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
  • Lísa Ásgeirsdóttir (LÁ)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulagsfulltrúi
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Formaður setur fund og gengið er til dagskrár.

1.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Umræðum haldið áfram um gerð nýrrar tillögu að breyttu deiliskipulagi.



Hafnarstjórn og bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja þennan dagskrárlið fundarins.



Til umræðu eru deiliskipulagsuppdráttur og skipulagsgreinargerð sem skipulagsráðgjafar hafa tekið saman úr umræðum síðustu funda í vinnu við mótun tillögunnar. Skjölin eru lögð fram til umræðu en eru tilbúin til auglýsingar sé það niðurstaða nefndarinnar að framkomin tillaga endurspegli með fullnægjandi hætti sjónarmið sem fram hafa komið á undangengum fundum skipulags- og umhverfisnefndar þar sem hafnarstjórn og bæjarstjórnarfulltrúar hafa jafnframt setið fundina.

Farið var yfir deiliskipulagstillögu sem skipulagsráðgjafar hafa tekið saman úr þeim umræðum sem átt hafa sér stað um málið á síðustu fundum nefndarinnar, hafnarstjórnar og fl.

Á fundum bæjarráðs 26. febrúar, hafnarstjórnar 3. mars og skipulags- og umhverfisnefndar 9. mars sl. var samþykkt að taka frá lóð (Íshúsgata 16) við hlið fiskvinnslu SC hf., fyrir björgunarmiðstöð (slökkvilið, björgunarsveit, fl.) og var það staðfest af bæjarstjórn 12. mars sl.

Helstu breytingar í framlögðum drögum (vinnuskjali), frá þeirri tillögu sem auglýst var 17. febrúar en afturkölluð 26. febrúar sl., eru eftirfarandi:

- Landfylling minnkar um 11.600 fermetra
- Settir hafa verið sérskilmálar um útlit og gerð húsa á svæði næst Suðurgarði. Með því er leitast við að tryggja gott útlit á þeim húsum sem verða aðkoma bæjarins. Athygli er vakin á því að þessir skilmálar eiga einnig við um lóð á vesturbakka Gilóss.
- Landfylling minnkuð um 11.600 fm, eða um rúm 22% frá fyrri tillögu
- Lóðum á landfyllingu næst sjó er þar með fækkað um fimm
- Lóðir voru minnkaðar og fjölgar um eina, sunnan nýs aðkomuvegar
- Lóð nr. 16 ætluð slökkviliði og björgunarsveit (stærð getur breyst)
- Núgildandi deiliskipulag útskýrt betur
- Nánari skilmálar um hönnun bygginga, meðal annars m.t.t. þakforms
- Áréttaðir skilmálar um góða ásýnd á lóðum
- Almenningsrými skilgreind nánar

Margir fundarmanna lýsa yfir ánægju með tillöguna í þessari mynd.

Í umræðum nefndarinnar er sérstaklega rætt um lögun landfyllingar, en þessi tillaga felur í sér að horn myndast á grjótvörn við Íshúsveg 7. Hafnarstjóri segir ölduhornsmat ekki hafa farið fram og ekki sé búið að ræða þessa útfærslu við Vegagerðina. Hann telur að hún muni taka einhverjum breytingum þegar að því kemur. Spurt er hvort rétt sé að stækka landfyllingu lítillega frá núverandi tillögu og vera með autt svæði sem myndi nýtast sem torgsvæði, en varað er við kostnaði við það, einkum vegna frágangs yfirborðs. Samhliða því er rætt um göngustígagerð um svæðið og göngustígagerð út af því og inn á aðra bæjarhluta.

Rætt er um hámarkshæð húsa, sem er sjö metrar. Eftir umræður er það niðurstaðan að halda sig við þá hæð. Ítrekað er að ekki er stefnt að því að þetta verði hæð húsa og að ekki sé líklegt þau verði almennt í þeirri hæð, en að þetta sé mesta leyfða hæð og rétt sé að hafa möguleikann fyrir hendi.

Rætt um framhald skipulagsferlis, verði samþykkt að auglýsa tillöguna í núverandi mynd skv. 41. gr. skipulagslaga. Þá tekur við 6 vikna auglýsingatími og frestur til umsagna og athugasemda. Að umsagnarferli loknu kemur tillagan aftur til meðferðar og þá verður hægt að gera á henni minniháttar breytingar m.t.t. þeirra umsagna sem berast. Sé ekki um verulegar breytingar að ræða getur bæjarstjórn samþykkt nýtt deiliskipulag, en verði gerði meiriháttar breytingar þarf að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu. Þannig verði hægt að gera breytingar á tillögunni og telji skipulags- og umhverfisnefnd að loknu umsagnarferli að gera þurfi umfangsmeiri breytingar hefur hún kost á að gera það og auglýsa nýja tillögu.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framangreindar breytingar sem gerðar hafa verið í samræmi við vinnu nefndarinnar, hafnarstjórnar, bæjarfulltrúa o.fl.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagða tillögu til auglýsingar og leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Halldóra Hreggviðsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Herborg Árnadóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Jósef Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Ágústa Einarsdóttir, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri, í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Garðar Svansson, bæjarfulltrúi og fulltrúi í hafnarstjórn, í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Dóra Hrólfsdóttir, ráðgjafi Alta, í fjarfundi - mæting: 15:00
  • Arnar Kristjánsson, fulltrúi í hafnarstjórn, í fjarfundi - mæting: 15:00

2.Háubakkar (ÍB-4) Viðbótarlóðir, Nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 2509002Vakta málsnúmer

Á 277. fundi nefndarinnar 9. mars sl. var samþykkt að auglýsa aðalskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun á íbúðarreit ÍB-4, en minnkun á svæðinu AF-1.



Á þeim fundi var ennfremur rætt um valkosti við gerð deiliskipulags á svæðinu, hvað varðar fjölda og stærð lóða, húsagerð, aðkomu o.fl.



Lögð fram til auglýsingar tillaga að deiliskipulagi fyrir lóðir á umræddu svæði við vestanverða Grundargötu (Háubakkar) til afgreiðslu nefndarinnar, með hliðsjón af umræðum nefndarinnar um valkosti á 277. fundi.



Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Háubakka, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010, með fyrirvara um yfirferð Skipulagsstofnunar á Aðalskipulagi Háubakka.

Gestir

  • Herborg Árnadóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 16:00
  • Dóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 16:00
  • Halldóra Hreggviðsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 16:00

3.Skerðingsstaðir fyrirspurn um skipulag

Málsnúmer 2603016Vakta málsnúmer

Fyrirspurn berst frá fulltrúa fjárfesta sem íhuga að gera tilboð í Skerðingsstaði. Fyrir liggur staðfesting landeiganda sem heimilar að tekin sé afstaða til fyrirspurnarinnar. Spurt er um afstöðu bæjarins til þess að í stað 5.500 m2 hótelbyggingar komi á þann byggingarreit sex smáhýsi undir gistingu, smáhýsi fyrir sána auk setlaugar fyrir allt að 10 manns. Áfram sé gert ráð fyrir smáhýsum á austari byggingarreit og fyrirhuguð landnot gera því ráð fyrir alls 11-13 smáhýsum fyrir gistingu og aðra tengda aðstöðu.



Fyrirspyrjandi vonast eftir hraðri afgreiðslu og að geta hafið framkvæmdir í ár, ef af verður.



Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til framangreindra áforma um breytingar; um hvort þörf sé á breytingu deiliskipulags og hvernig fari þá með breytingu deiliskipulags.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur fyrir sitt leyti jákvætt í erindið og þær breytingar sem það innifelur. Þar sem hugmyndir fyrirspyrjanda gera ráð fyrir umtalsverðri minnkun byggingarmagns og breyttri húsagerð telur nefndin að breyta þurfi deiliskipulagi Skerðingsstaða. Skipulagsfulltrúa er falið að leiðbeina aðilum um það ferli.

Gestir

  • Halldóra Hreggviðsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta í fjarfundi - mæting: 16:20

4.Deiliskipulag Framness austan við Nesveg

Málsnúmer 2301003Vakta málsnúmer

Gerð er tillaga um að breyta lítillega (gera óverulega deiliskipulagsbreytingu) lóðarmörkum á milli Nesvegar 4B (olíutankur bak við hótelið) og Nesvegar 4. Sjá teikningu.



Lagt er til að nefndin feli skipulagsfulltrúa að vinna tillögu um ný lóðarmörk fyrir lóðina Nesveg 4B og að auglýsa þau.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu um breytt lóðarmörk skv. þessu og að auglýsa þau sem óverulega breytingu deiliskipulags á Framnesi austan við Nesveg.

Nefndin telur engin grenndaráhrif vera af breytingunni og að skipulagsfulltrúi geti fullafgreitt málið í samræmi við 2. gr. d. í Viðauka II í Samþykkt um stjórnun Grundarfjarðarbæjar.

Samþykkt samhljóða.

5.Lengja - heimilisfang við inngang

Málsnúmer 2603043Vakta málsnúmer

Til skipulags- og byggingarsviðs hefur leitað eigandi fasteigna við Grundargötu þar sem inngangurinn er frá Lengju, og óskar viðkomandi eftir því að heimilisfang á viðkomandi fasteignir verði skráð við Lengju.



Í leiðbeiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er almennt mælst til þess að heimilisföng séu í þessum tilvikum sett við þá götu sem inngangur er frá, m.a. til að tryggja sem stystan viðbragðstíma fyrir neyðarbíla.



Í Staðfangaskrá HMS er hægt að skrá mörg staðföng á eina fasteign, en aðeins eitt þeirra er aðalstaðfang/heimilisfang. Frá árinu 2016 er þinglýst á fasteignanúmer frekar en heimilisföng. Það er alfarið ákvörðun sveitarfélags hvar aðalstaðfang er valið.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að sett verði húsnúmer við Lengju í staðfangaskrá þar sem inngangar í hús eru úr götunni. Skipulagsfulltrúa falið að skrá viðbótarstaðföng í staðfangaskrá á þær fasteignir þar sem inngangur er frá Lengju. Hann fær ennfremur umboð til að gera nýju staðföngin að aðalstaðfangi þannig að heimilisfangið verði þá við Lengju. Hafa skal samráð við eigendur viðkomandi fasteigna áður en aðalstaðfangi er breytt og ennfremur tryggt að íbúar séu upplýstir um breytinguna.

6.Samgöngustofa - Drónabann yfir hesthúsahverfi

Málsnúmer 2508009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga um drónabann í hesthúsahverfi og yfir reiðvegi frá hesthúsahverfi til Kirkjufellsfoss. Málið var áður til umræðu á 270. fundi nefndarinnar og á samráðsfundi með Hesteigendafélagi Grundarfjarðar í júlí sl. Félagið er hlynnt slíku banni, en nokkur truflun hefur verið af drónaflugi frá ferðamönnum.



Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í þessari og leggur til að bæjarstjórn samþykki hana.

7.Framkvæmdaleyfisumsókn Grundarfjörður - Grjótvörn við Norðurgarð

Málsnúmer 2603021Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi gaf út í vikunni framkvæmdaleyfi til Grundarfjarðarhafnar vegna landfyllingar í krikanum við Norðurgarð. Gert er ráð fyrir landfyllingunni í aðalskipulagi og í deiliskipulagsáætlunum sem hafa verið í vinnslu. Áætlaður framkvæmdatími er 1. apríl til 1. júní 2026.



Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

8.Önnur mál umhverfis- og skipulagssviðs

Málsnúmer 2201020Vakta málsnúmer

Rætt um grjótvörn á Framnesi. Skipulags- og umhverfisnefnd lýsir yfir áhyggjum af þeim skemmdum sem nýlega hafa orðið og kallar eftir því að lagfæringar og úrbætur fari fram við fyrsta tækifæri. Kostnaði við sjóvörn er skipt milli sveitarfélaga og ríkis.

Rætt er um hæfisreglur stjórnsýslulaga og sveitarstjórnarlaga og túlkun þeirra í þeim tilvikum þegar nefndarmenn kunna að hafa grenndarhagsmuni af málum sem eru til meðferðar hjá nefndinni, auk fleiri ástæðna sem kunna að hafa áhrif á hæfi. Almennt verða nefndarmenn ekki vanhæfir við afgreiðslu skipulagsmála þó þeir kunni að hafa af þeim grenndarhagsmuni, en minnt er á að nefndarmenn geti gert sig vanhæfa ef þeir tjá opinberlega afstöðu sína um mál sem enn eru til meðferðar hjá nefndinni. Þeir geta ennfremur orðið vanhæfir ef aðilar þeim nákomnir hafa tekið slíka afstöðu til mála sem eru til meðferðar.

Einnig er rætt um verklag nefndarinnar og meðferð vinnu- og trúnaðargagna sem birt eru í fundargátt eða á fundum nefndarinnar. Þá er rætt um hvenær varamenn taki sæti í stað aðalmanna.
Lokið er við fundargerð að fundi loknum og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 17:45.