169. fundur 31. maí 2023 kl. 17:00 - 19:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB) formaður
  • Hólmfríður Hildimundardóttir (HH)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Pálmi Jóhannsson (PJ)
    Aðalmaður: Anna Rafnsdóttir (AR)
  • Guðbrandur Gunnar Garðarsson (GGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður bauð fundarfólk velkomið. Gengið var til dagskrár.

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi og Margrét Sif Sævarsdóttir leikskólastjóri voru í fjarfundi.

Dagskrárliðir 5 og 6 voru teknir til umræðu og afgreiðslu strax á eftir lið nr. 1, en þeir snúa allir að starfsemi leikskólans.

1.Skólastefna

Málsnúmer 2207023Vakta málsnúmer

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi hjá Ásgarði var gestur fundarins.

Gunnþór sagði frá vinnu við mótun menntastefnu, einkum frá opnum íbúafundi sem haldinn var í síðustu viku, 24. maí sl., skv. auglýsingu.

Í framhaldinu hefur verið gerð frétt á vef bæjarins og þar er auglýst að enn sé hægt að koma að hugmyndum og skilaboðum inní vinnuna, gegnum skjal með spurningum íbúafundarins og má rita beint inní skjalið á vefnum. Spurningarnar eru á 3 tungumálum.

Í haust verður gerð spurningakönnun meðal íbúa um skólamál og Gunnþór mun heimsækja skólana og ræða við starfsfólk, foreldra og fleiri.

Stefnt er að því að vinnu við nýja menntastefnu ljúki í haust.

Eftir almennar umræður var Gunnþóri þakkað fyrir góðar upplýsingar og vék hann af fundinum.

Gestir

  • Katrín Elísdóttir fulltrúi foreldra nemenda í leikskóla - mæting: 17:00
  • Halla Karen Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra nemenda í grunnskóla - mæting: 17:00
  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskóla - mæting: 17:00
  • Margrét Sif Sævarsdóttir skólastjóri leikskólans, í fjarfundi - mæting: 17:00
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, ráðgjafi hjá Ásgarði - mæting: 17:00

2.Málefni grunnskólans

Málsnúmer 2207005Vakta málsnúmer

Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri sat fundinn áfram undir þessum lið, ásamt fulltrúa foreldra nemenda í grunnskóla.

Tillaga skólastjóra um skóladagatal skólaárið 2023-2024 lögð fram til afgreiðslu. Skólaráð hefur farið yfir tillöguna á fundi sínum.

Tillaga að skóladagatali lögð fram með þeim breytingum að nemendastýrð viðtöl, sem áttu að fara fram 25. janúar 2024, verði hefðbundinn skóladagur. Ennfremur að Öskudagur verði hefðbundinn skóladagur.

Skólanefnd samþykkir framlagða tillögu að skóladagatali með framangreindri breytingu.

---

Skólastjóri fór yfir helstu atriði úr skólastarfinu:

Skólaslit verða á morgun, 1. júní. Athöfn verður fyrir 1.-7. bekk í íþróttahúsinu, en fyrir unglingastig, 8.-10. bekk, verður útskriftarathöfn í Grundarfjarðarkirkju. Sjö nemendur útskrifast úr 10. bekk.

Skólastjóri sagði frá breytingum í starfsmannahópnum. Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir og Elísabet Kristín Atladóttir færa sig úr leikskóladeildinni Eldhömrum, yfir í kennslu í grunnskólanum. Sigrún Hilmarsdóttir lætur af störfum sem kennari og Marta Magnúsdóttir verður ekki við kennslu á komandi vetri.

Skólinn sótti um og fékk styrk í samvinnu við Grunnskóla Snæfellsbæjar fyrir verkefninu "Orð af orði", sem fer að stað á komandi skólaári. Þar verður unnið með orðaforða hjá nemendum.

Í vetur var unnið eftir stefnu um heilsueflandi grunnskóla og auk þess stefnu Grænfánaverkefnisins, umsjónarkennarar á miðstigi sáu um innleiðinguna.

Ætlunin er að stíga fleiri skref í átt að aukinni sjálfbærni skólans og er draumurinn að skólinn geti í framtíðinni eignast sitt eigið gróðurhús og jafnvel verið með hænur.

Um 120 trjáplöntur fara á skólalóðina og í skóginn, eða ein planta fyrir hvern nemanda í grunnskólanum og á Eldhömrum.

Undir áætlun ERASMUS KA2, fékkst styrkur sem nýttur verður til fjárfestingar í búnaði fyrir skapandi kennslu.

Gestir

  • Halla Karen Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra - mæting: 17:15
  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskólans

3.Málefni tónlistarskólans

Málsnúmer 2207007Vakta málsnúmer

Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri sat fundinn áfram undir þessum lið, ásamt Lindu Maríu Nielsen aðstoðarskólastjóra tónlistarskólans.

Tillaga um skóladagatal Tónlistarskólans skólaárið 2023-2024 lögð fram til afgreiðslu og fór Linda María yfir hana.

Skólanefnd samþykkir framlagða tillögu að skóladagatali.

---

Linda María gerði grein fyrir helstu atriðum úr starfi tónlistarskólans, sem hún hafði tekið saman eins og hér segir:

Í vetur var tekið inn nýtt rafrænt skólakerfi, Viska, og hefur það gengið vel.

Skólaárið hófst á starfsdögum og einn þeirra var sameiginlegur með tónlistarskólanum í Stykkishólmi og í Ólafsvík. Var farið til Reykjavíkur og Tónstofa Valgerðar var heimsótt, með fræðslu um kennslu nemenda með ýmsar fatlanir. Einnig var Össur skólastjóri í skólahljómsveit Kópavogs heimsóttur, nýtt og glæsilegt húsnæði þeirra skoðað.

Í september var stór tónlistarskólaráðstefna í Hörpu, sem var mjög fróðleg og mörg áhugaverð erindi.

Aðstoðarskólastjóri sótti góða haustráðstefnu STS á Höfn og var gott að hitta aðra stjórnendur í tónlistarskólum.

Nemendur komu fram á aðventudegi Kvenfélagsins í samkomuhúsinu í byrjun desember sl.

Jólatónleikarnir voru 7. desember í kirkjunni, mjög hátíðlegir og flottir.

Farið var á Fellaskjól í desember með tónlistarflutning og á Þorláksmessu sungu nemendur við Græna kompaníið.

Í janúar voru foreldraviðtöl.

Fimm ára nemendur leikskóladeildarinnar Eldhamra sóttu tónlistartíma hjá Alexöndru í vetur.

Sú nýjung var tekin upp að bjóða raftónlist í vali á unglingastigi í grunnskólanum, í umsjón Valbjörns. Gekk áfanginn vel og áhuginn var mikill. Síðustu vikur nýttu strákarnir sér frímínútur, hádegishlé og verkefnatíma til að vinna að sínu eigin lagi.

Í febrúar sáu nemendur tónlistarskólans um tónlist í æskulýðsmessu sem tekin var upp fyrir RÚV og henni útvarpað sunnudaginn 5. mars sl. Fengu nemendur og allir sem tóku þátt í þessari messu mikið lof fyrir.

Nemendur komu fram á 1. maí skemmtun í samkomuhúsinu.

Nemendatónleikar voru á vegum hvers kennara í maí. Tókust þeir allir mjög vel og voru vel sóttir. Skólaslit og vortónleikar voru svo 17.maí í kirkjunni.

Landsmót skólalúðrasveita sem átti að vera í Vestamannaeyjum í maí var frestað og verður skoðað með að halda mótið snemma í haust. Í staðinn var sameiginlegur æfingadagur í Stykkishólmi og fóru fimm nemendur frá Grundarfirði. Þar var mjög gaman og mikill lærdómur fyrir alla nemendur.

Einn nemandi spilaði í fermingarmessunni sinni á Hvítasunnudag.

Innritun fyrir næsta skólaár hófst þriðjud 23. maí og stendur til 1. júní. Nú er sótt um í gegnum skólakerfið Visku.

Undirbúningur fyrir næsta skólaár gengur vel, umsóknir eru að koma inn.
Í ágúst liggur fyrir hvernig árið verður, m.t.t. vals í grunnskólanum þar sem verið er að bjóða upp á raftónlistarbraut. En undirbúningur fyrir raftónlistarbraut er vel á veg kominn.

Að loknum umræðum var Lindu Maríu þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar.

Gestir

  • Linda María Nielsen aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans
  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskólans og tónlistarskólans

4.Málefni leikskóladeildarinnar Eldhamra

Málsnúmer 2207008Vakta málsnúmer

Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri sat fundinn áfram undir þessum lið.
Tillaga skólastjóra um skóladagatal leikskóladeildarinnar Eldhamra lögð fram til afgreiðslu.

Dagatalið er samþykkt af skólanefnd með fyrirvara um dagana þrjá í Dymbilviku, þ.e. 25., 26. og 27. mars. Tillagan gerir ráð fyrir að lokað verði á Eldhömrum þessa daga og er það lagt fram af skólastjóra sem leið til að mæta hluta af styttingardögum starfsfólks Eldhamra.

Skólanefnd mun taka fyrirkomulag þessara þriggja daga til nánari skoðunar og úrlausnar í samvinnu við skólastjórnendur og afgreiða fyrir lok október nk., m.a. samhliða umræðu um mótun nýrrar menntastefnu.

--
Skólastjóri sagði frá starfsemi Eldhamra, en á þessu ári bættust við, fyrr en venjulega og í áföngum, nemendur sem verða fimm ára á árinu. Aðlögun þeirra gekk vel. Skoða verður þarfir þeirra m.t.t. aðstöðu á skólalóð, en þann 11. febrúar sl. fauk geymsluskúr leikfanga þeirra í ofsaroki og á eftir að leysa þau mál fyrir komandi vetur.

Gestir

  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskólans og Eldhamra

5.Málefni leikskólans

Málsnúmer 2207006Vakta málsnúmer

Margrét Sif Sævarsdóttir leikskólastjóri og Katrín Elísdóttir fulltrúi foreldra sátu fundinn undir þessum lið.

Tillaga leikskólastjóra um skóladagatal 2023-2024 lögð fram til afgreiðslu.
Foreldraráð hefur jafnframt fengið tillöguna til yfirferðar.

Dagatalið er samþykkt af skólanefnd en þó með fyrirvara um dagana þrjá í Dymbilviku, þ.e. 25., 26. og 27. mars. Tillagan gerir ráð fyrir að leikskólinn verði lokaður þessa daga og er það lagt fram af skólastjóra sem leið til að mæta hluta af styttingardögum starfsfólks, á sama hátt og lagt er til vegna Eldhamra.

Skólanefnd mun taka fyrirkomulag þessara þriggja daga til nánari skoðunar og úrlausnar í samvinnu við skólastjórnendur og afgreiða fyrir lok október nk., m.a. samhliða umræðu um mótun nýrrar menntastefnu.

Umræða varð um hugmyndafræði styttingar ("Betri vinnutími") og útfærslu hennar, eins og hún birtist í skólastarfi, ekki síst í leikskóla, þar sem stytting í skólastarfinu er veruleg áskorun.

Gestir

  • Margrét Sif Sævarsdóttir skólastjóri leikskólans
  • Katrín Elísdóttir fulltrúi foreldra nemenda í leikskólanum

6.Leikskólinn Sólvellir - Leikskólalóð, starfshópur 1. fundur

Málsnúmer 2305014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð starfshóps sem rýnir nú framkvæmdaáætlun um leikskólalóð. Fundurinn var haldinn 3. maí sl.

Áhersla starfshópsins er ekki síst á að endurnýjaðar verði mottur undir leiktækjum á skólalóð.

Gestir

  • Katrín Elísdóttir fulltrúi foreldra nemenda í leikskólanum
  • Margrét Sif Sævarsdóttir skólastjóri leikskólans

7.Grunnskólalóð - endurbætur 2023

Málsnúmer 2301006Vakta málsnúmer

Fundargerðir og ástandsgreining sem unnin var á lóð skóla og íþróttahúss lögð fram til kynningar.
Skólastjóri sagði frá vinnu við rýni skólalóðar. Hópurinn lagði til að í sumar yrði gerður boltavöllur á skólalóð, með sérstöku yfirborðsefni/málningu.

Gestir

  • Halla Karen Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra
  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskólans

8.Samtökin ´78 - Samstarfssamningur

Málsnúmer 2303030Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samstarfssamningur við Samtökin 78, sem gerður var í mars sl., um fræðslu til starfsfólks og nemenda.

9.Samtökin 22 - Erindi til Fjölskyldu-og fræðslunefndar

Málsnúmer 2304023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samtakanna 22, dags. 11. apríl 2023.

Í erindinu fara samtökin fram á það, á grundvelli upplýsingalaga, að fá að sjá samstarfssamning sveitarfélaga við Samtökin 78, sem og kennsluefni og fyrirlestra þeirra.

Bæjarstjóri mun senda Samtökunum upplýsingar um samstarfssamning þann sem gerður var við Samtökin 78.

10.Samband íslenskra sveitarfélaga - Farsæld á fyrsta ári

Málsnúmer 2305005Vakta málsnúmer

Lagt fram kynningarefni/samantekt mennta- og barnamálaráðuneytis frá því í mars 2023; "Farsæld á fyrsta ári - Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna árið 2022".

11.Samband íslenskra sveitarfélaga - Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2023

Málsnúmer 2305041Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit Sambands íslenskra sveitarfélaga um úthlutun stjórnar Námsleyfasjóðs úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla árið 2023.

12.Alþingi - Til umsagnar 922. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 2305004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp sem felur í sér breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu o.fl.), 922. mál.

Gengið er frá fundargerð í kjölfar fundar og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 19:50.