189. fundur 23. mars 2026 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB) formaður
  • Hólmfríður Hildimundardóttir (HH)
  • Anna Rafnsdóttir (AR)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
    Aðalmaður: Guðbrandur Gunnar Garðarsson (GGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá

1.Starfsáætlun og verkefni skólanefndar

Málsnúmer 2410009Vakta málsnúmer

Lögð fyrir dagskrá og verkefni þessa fundar skólanefndar, skv. starfsáætlun nefndarinnar fyrir þetta skólaár.





2.Málefni leikskólans

Málsnúmer 2207006Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar leikskólastjóra og tillaga að skóladagatali fyrir komandi skólaár 2026-2027.

Lagðir fram minnispunktar leikskólastjóra, m.a. um barngildi og mönnun.

Rætt var um þá breytingu sem verður við það að fimm ára börn verði frá og með komandi skólaári nemendur Sólvalla. Stjórnendur undirbúa nú áætlun um hvernig starfinu verði háttað, að teknu tilliti til þeirrar breytingar að fimm ára börnin verði áfram á Sólvöllum.

Leikskólastjóri sagði frá því að unnið sé (og verði) með aukið flæði milli deilda leikskólans, þannig að það verði ekki eins skörp skil í starfinu hvað varðar aldur, heldur geti átt sér stað samstarf milli deilda/árganga í meira mæli en verið hefur.

Fram kom að samskipti ("brúum bilið") við grunnskóla hafi í raun verið á milli fimm ára deildarinnar Eldhamra og grunnskóla, en að nú muni leikskólinn taka upp samstarfið við grunnskólann og skipuleggja. Það sé tilhlökkunarefni að fá aukið samstarf við grunnskóla, en í löggjöf um skólastigin sé mælt fyrir um það að samstarf skuli vera um að "brúa bil" milli leik- og grunnskóla.

Leikskólastjóri sagði frá því að í vetur hafi verið gott samstarf með því að miðstig grunnskólans hefur verið í valáfanga, sem felst í því að koma inní leikskóla og eiga samverustundir. Nú síðast sýndi miðstigið leikrit fyrir leikskólabörn á Sólvöllum og tókst það vel til.

Rætt um tillögu að skóladagatali leikskólans fyrir komandi skólaár. Rætt um samræmingu við dagatal grunnskóla og tónlistarskóla. Gerðar smávægilegar breytingar og verður endurbætt dagatal sett undir fundinn.
Skólanefnd samþykkir framlagða tillögu að skóladagatali Leikskólans Sólvalla.

Leikskólastjóra þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar, sem og öðrum fulltrúum.

Gestir

  • Heiðdís Lind Kristinsdóttir, skólastjóri Leikskólans Sólvalla - mæting: 17:10
  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir, fulltrúi kennara við Sólvelli - mæting: 17:10
  • Nanna Vilborg Harðardóttir fulltrúi foreldra - mæting: 17:10
  • Valgerður Stefánsdóttir fulltrúi foreldra - mæting: 17:10

3.Málefni leikskóladeildarinnar Eldhamra

Málsnúmer 2207008Vakta málsnúmer

Fram kom að nk. miðvikudag, 25. mars, býður skólanefnd foreldrum allra leikskólabarna til samtals um þá ákvörðun bæjarstjórnar, að tillögu skólanefndar, að sameina starf á leikskólastigi, frá og með komandi skólaári. Tilgangur samtalsins er að heyra í foreldrum, um það sem þeim finnst mikilvægt að passað sé upp á við þessa breytingu - eins og sagði í fundarboð til þeirra í síðustu viku.

4.Málefni grunnskólans

Málsnúmer 2207005Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um skóladagatal grunnskólans fyrir skólaárið 2026-2027.



Einnig lögð fram gögn frá skólastjóra um kennslumagn og mönnun, og um stöðu viðmiða gæðaráðs skólans í mars 2026.

Rætt um framlögð gögn.

Skóladagatal rætt og farið yfir samræmi við önnur skóladagatöl.
Með fyrirvara um minniháttar lagfæringar samþykkir skólanefnd framlagða tillögu að skóladagatali.

Gestir

  • Þuríður G. Jóhannesdóttir fulltrúi foreldra - mæting: 17:45
  • Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri grunnskóla - mæting: 17:45
  • Sigurrós Sandra Bergvinsdóttir, fulltrúi kennara - mæting: 17:45

5.Málefni tónlistarskólans

Málsnúmer 2207007Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að skóladagatali Tónlistarskólans skólaárið 2026-2027.

Linda María sagði frá starfsemi tónlistarskólans:

Innritun nemenda fer fram eftir skólaslit í vor, og stendur í ca. 2 vikur. Allir nemendur grunnskólans fá kynningu um þær greinar sem eru í boði við tónlistarskólann. Innritun er svo aftur í ágúst, þegar ljóst er hvað enn er laust af tímum hjá kennurum.

Nú er verið að undirbúa þátttöku skólans "Nótunni", uppskeruhátíð tónlistarskólanna, sem haldin verður á Patreksfirði, fyrir Vesturland og Vestfirði í vor. Sex nemendur fara frá okkur, auk þess Linda María og tveir foreldrar.

Nemendatónleikar verða í maí og skólinn verður með tónlistaratriði á 1. maí hátíð, eins og hefðbundið er orðið.

Skóladagatal komandi skólaárs rætt og samþykkt, fyrirvari gerður um Svæðisþing tónlistarskólanna (Vesturland), sem er enn ódagsett.

Gestir

  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskóla, tónlistarskóla og Eldhamra - mæting: 18:15
  • Linda María Nielsen, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar - mæting: 18:15

6.Öryrkjabandalag Íslands, réttindasamtök - Aðgengisfulltrúi

Málsnúmer 2510009Vakta málsnúmer

Aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, Nanna Vilborg, hefur í samstarfi við íþrótta- og tómstundafulltrúa, Hinrik gert úttekt á íþróttahúsinu og sundlauginni með það í huga að auðvelda aðgengi, og stefna að því að einstaklingur í hjólastól gæti komist klakklaust í sund eða á íþróttaviðburð í húsinu.



Gerð var samantekt (sjá fylgiskjal) sem send var á Berg Þorra Benjamínsson verkefnastjóra hjá ÖBÍ-Réttindasamtök ÖBÍ til skoðunar.

Rætt um úttektina, sem snýr að íþróttahúsi og aðstöðu nemenda grunnskólans, og er þar af leiðandi á borði skólanefndar að skoða.

Skólanefnd fagnar þessari úttekt og lýsir ánægju með hana, sem grunn að aðgerðum í bættu aðgengi.

7.Háskóli Íslands - Fagháskólanám í leikskólafræði - nýr hópur nemenda haustið 2026

Málsnúmer 2603006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Háskóla Íslands um fagháskólanám í leikskólafræði.

Fundi slitið - kl. 19:00.