540. fundur 03. desember 2019 kl. 16:30 - 21:26 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1901021Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2019

Málsnúmer 1904023Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-nóvember 2019. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 5,1% fyrstu ellefu mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra.

3.Gjaldskrár 2020

Málsnúmer 1909035Vakta málsnúmer

Lagðar fram þjónustugjaldskrár næsta árs, með áorðnum breytingum.

Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og byggingafulltrúa og bæjarstjóra falið að gera drög að endurskoðaðri gjaldskrá byggingaleyfis-, þjónustu- og framkvæmdaleyfisgjalda, sem lögð verði fyrir bæjarstjórn í janúar 2020.

Samþykkt samhljóða.

4.Styrkumsóknir 2020

Málsnúmer 1910008Vakta málsnúmer

Lagðar fram og yfirfarnar umsóknir um styrki ársins 2020 ásamt samantekt.
Gerðar lítilsháttar breytingar.

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan lista með áorðnum breytingum.

5.Fjárhagsáætlun 2020

Málsnúmer 1909023Vakta málsnúmer

Anna Rafnsdóttir, leikskólastjóri og Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri grunnskólans, sátu fundinn undir þessum lið, hvort í sínu lagi.

Lögð fram yfirlit yfir núverandi stöðugildi leikskóla og grunnskólastofnana, auk áætlunar næsta árs. Jafnframt lagt fram yfirlit yfir kostnaðarhlutdeild foreldra og bæjarins vegna leikskóla, tónlistarskóla og heilsdagsskóla.

Samþykkt samhljóða.

6.Jóhanna H. Halldórsdóttir - Vegna erfiðrar yfirferðar fyrir eldri borgara

Málsnúmer 1911030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Jóhönnu H. Halldórsdóttur vegna aðgengis frá Hrannarstíg að Grundarfjarðarkirkju.

Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna og samþykkir að á árinu 2020 verði bætt aðgengi frá bílastæði við Hrannarstíg 18 að stétt við styttuna Sýn.

Bæjarráð vísar framkvæmd verksins til verkstjóra áhaldahúss.

Samþykkt samhljóða.

7.Hleðslustöð fyrir rafbíla

Málsnúmer 1911045Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að auglýsa hleðslustöð bæjarins til úthlutunar. Stöðin skal vera staðsett innan þéttbýlis bæjarins. Sæki fleiri en einn um, skiptir staðsetning og opnunartími stöðvar máli við úthlutun.

Bæjarstjóra falin framkvæmd þessarar ákvörðunar.

Samþykkt samhljóða.

8.Framkvæmdir 2020

Málsnúmer 1912003Vakta málsnúmer


Farið yfir fjárfestingaáætlun 2020.

Bæjarráð yfirfór fjárfestingaáætlun og vísar til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Umræður um aðferðir við val á verktökum, við framkvæmdir á vegum bæjarins, sbr. umræðu í bæjarstjórn. Til nánari skoðunar.

9.Landsnet - Verkefnis- og matslýsing Kerfisáætlunar 2020-2029

Málsnúmer 1911042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar verkefnis- og matslýsing Kerfisáætlunar Landsnets 2020-2029.

10.Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarhafnar 2020

Málsnúmer 1911022Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun Grundarfjarðarhafnar 2020 ásamt greinargerð.

Rætt um hönnun og legu útrásar á Framnesi, með vísan í greinargerð hafnarstjóra. Í fjárhagsáætlun 2020 er gert ráð fyrir framlagi, sem tengist slíkri hönnun.

11.Samband íslenskra sveitafélaga - Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Málsnúmer 1911041Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 18. október sl. varðandi tengingu sveitarfélaga við miðlægan húsnæðisgrunn. Jafnframt lagt fram bréf sambandsins dags. 26. nóvember sl. ásamt drögum að umsögn þess um frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

12.Glugginn 3. tbl. - Fréttabréf Íbúðalánasjóðs

Málsnúmer 1911043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 3. tbl. Gluggans 2019, fréttabréfs Íbúðalánasjóðs. Þar er jafnframt kynnt húsnæðisþing sem haldið var 27. nóvember sl.

13.Snæfellingshöllin ehf - Ársreikningur

Málsnúmer 1911033Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Snæfellingshallarinnar 2018.

14.Fjármála- og efnahagsráðuneytið - Kærunefnd útboðsmála

Málsnúmer 1908001Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar úrskurður kærunefndar útboðsmála, dags. 2. desember sl., vegna kæru á verðkönnun vegna steyptrar götu milli Nesvegar og Sólvalla. Niðurstaða kærunefndarinnar er sú að kröfum kæranda er vísað frá kærunefnd útboðsmála.

15.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið - Breytingar á samþykktum um stjórn

Málsnúmer 1912002Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur umhverfis- og auðlindaráðuneytis dags. 2. desember sl. vegna kynningar á tveimur reglugerðum sem settar eru á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum. Annars vegar er um að ræða reglugerð nr. 1069/2019, um breytingu á reglugerð nr. 660/2015, um mat á umhverfisáhrifum. Hins vegar er um að ræða reglugerð nr. 1068/2019, um breytingu á reglugerð nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi.

Bæjarstjóra falið að gera drög að breytingum á samþykktum bæjarins í samræmi við þessar breytingar.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 21:26.