573. fundur 26. ágúst 2021 kl. 16:30 - 21:48 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
    Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Framkvæmdir 2021

Málsnúmer 2104022Vakta málsnúmer

Farið var yfir helstu verklegu framkvæmdir sem eru í gangi, einkum framkvæmdir við malbikun gatna og gangstétta, steyptar gangstéttar, endurbætur á húsnæði grunnskóla og í samkomuhúsi, uppbyggingu í Þríhyrningi, o.fl.

2.Lausafjárstaða 2021

Málsnúmer 2101039Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

3.Greitt útsvar 2021

Málsnúmer 2101005Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júlí 2021. Heildarútsvarsgreiðslur til sveitarfélagsins í júlímánuði eru 14% lægri en í júlí 2020.
Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar í Grundarfirði hækkað um 2% miðað við sama tímabil í fyrra. Á landsvísu er hækkunin á þessu tímabili hins vegar 7,7% og á Vesturlandi er hún að meðaltali 7,6%.

4.Rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2105035Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir janúar-júlí 2021.

5.Launaáætlun 2021

Málsnúmer 2106001Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlit yfir greidd laun miðað við áætlun ársins, janúar-júní og janúar-júlí 2021. Skv. yfirlitunum eru raunlaun vel innan áætlunar.

6.Tíu ára yfirlit 2011-2020

Málsnúmer 2107001Vakta málsnúmer

Lagt fram tíu ára fjárhagsyfirlit með upplýsingum úr ársreikningi og lykiltölum áranna 2011-2020.

7.Fjárhagsáætlun 2022

Málsnúmer 2108010Vakta málsnúmer

Farið yfir vinnu og verklag við fjárhagsáætlunargerð komandi árs.
Nánari tímarammi verður tilbúinn i byrjun september.

Bæjarráð mun byggja vinnu sína á tillögum úr rekstrarúttekt HLH frá 2020, sbr. fund bæjarráðs nr. 557. Þar eru sett fram helstu viðmið í fjármálastjórn og rekstri.

Í samræmi við umræður fundarins mun bæjarráð rýna sérstaklega í útsvarstekjur og þróun þeirra, sem og í tekjur Jöfnunarsjóðs og þróun þeirra. Bæjarstjóra og skrifstofustjóra falið að undirbúa yfirlit/samantekt hvað þessa þætti varðar.

8.Samband íslenskra sveitarfélaga - Forsendur fjárhagsáætlana 2022-2025

Málsnúmer 2108006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um helstu forsendur fjárhagsáætlana 2022-2026.
Í minnisblaðinu eru lagðar upp almennar forsendur fyrir sveitarfélög landsins, sem og gátlisti til að styðjast við þegar metnar eru staðbundnar forsendur í fjárhagsáætlunargerðinni.


9.Bréf leikskólastjóra - uppsögn starfs

Málsnúmer 2108014Vakta málsnúmer

Lagt fram uppsagnarbréf frá Önnu Rafnsdóttur leikskólastjóra.
Bæjarráð þakkar Önnu fyrir vel unnin störf og gott samstarf á liðnum árum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa auglýsingu starfsins.
Bæjarráð telur rétt að skoða frekar verkaskiptingu milli stjórnenda í leikskóla, þannig að fyrir liggi skýr og uppfærð starfslýsing, samhliða auglýsingu starfsins.

10.Samningur um námsstyrk í fjarnámi við leikskólaskor KHÍ

Málsnúmer 2104007Vakta málsnúmer

Lagður fram til staðfestingar námssamningur við starfsmann leikskólans, sbr. afgreiðslu á fundi bæjarráðs 22. júní sl.
Fyrirliggjandi samningur samþykktur samhljóða.

11.Skipulags- og byggingarmál - kæra til úrskurðarnefndar

Málsnúmer 2108015Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn vegna stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á hendur Grundarfjarðarbæ, sbr. tölvpóst nefndarinnar dags. 17. ágúst 2021, vegna óverulegrar deiliskipulagsbreytingar, birt 6. júlí 2021, og veitingar byggingarleyfis dags. 9. júlí 2021 á lóðinni við Nesveg 4a.

Lóðarhafi að Nesvegi 6-8 krefst þess að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan kærumálið er til meðferðar hjá nefndinni.

Jafnframt er lögð fram greinargerð Grundarfjarðarbæjar til nefndarinnar þar sem kröfu um stöðvun framkvæmda er hafnað og jafnframt bent á að kærufrestur teljist liðinn og því beri að vísa málinu frá, ásamt öðrum gögnum málsins.

Lagt fram til kynningar.

12.Landsnet hf - Afsal fyrir spennistöð

Málsnúmer 2108001Vakta málsnúmer

Lagt fram afsal Landsnets hf. til Grundarfjarðarbæjar fyrir 22,2% eignarhluta Landsnets í aðveitustöð við Borgarbraut 21, Grundarfirði. Um er að ræða hús, lóðarréttindi og girðingu.

Bæjarráð fagnar og þakkar fyrir þennan samning.

13.Motus ehf. - samningur um innheimtuþjónustu

Málsnúmer 2108013Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samstarfssamningur við Motus um innheimtuþjónustu, sem hefur verið endurnýjaður með betri kjörum.

14.FSS - Fundargerð 117. fundar stjórnar

Málsnúmer 2105024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar FSS sem haldinn var 26. apríl sl.

15.Byggðasamlag Snæfellinga - Fundargerð 12. mars 2021

Málsnúmer 2107008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð framkvæmdastjórnar Byggðasamlags Snæfellinga frá 12. mars sl.

16.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir

Málsnúmer 2101034Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir Breiðafjarðarnefndar af fundum nr. 192 og 193.

17.Dómsmálaráðuneytið - Um greiðslu kostnaðar vegna kosninga til Alþingis

Málsnúmer 2108007Vakta málsnúmer


Lagt fram bréf dómsmálaráðuneytisins dags. 11. ágúst 2021 um greiðslu kostnaðar sveitarfélaga vegna starfa kjörstjórna og framkvæmdar við Alþingiskosningar i september nk.

Bæjarstjóri sagði frá samskiptum við Sýslumann Vesturlands um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, en samið hefur verið um að hún fari fram í Ráðhúsi Grundarfjarðar, með sama hætti og við forsetakosningar á síðasta ári. Hefst kosningin hér í næstu viku.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga - Stöðuskýrsla 16

Málsnúmer 2106021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla uppbyggingarteymis nr. 16, frá 11. júní 2021.

19.Björgunarsveitin Klakkur - Ársreikningur 2021

Málsnúmer 2107018Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Björgunarsveitarinnar Klakks vegna ársins 2020.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 21:48.