642. fundur 25. september 2025 kl. 08:30 - 11:41 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Davíð Magnússon (DM)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2025

Málsnúmer 2501016Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2025

Málsnúmer 2502020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2025.
Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 11,8% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Launaáætlun 2025

Málsnúmer 2505019Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-ágúst 2025.

Útgreidd laun í janúar til ágúst eru undir launaáætlun tímabilsins.

4.Álagning útsvars 2026

Málsnúmer 2509010Vakta málsnúmer

Ákvörðun um álagningarprósentu útsvars 2026.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

5.Fasteignagjöld 2026

Málsnúmer 2509011Vakta málsnúmer

Lögð fram bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2026, sundurliðuð niður á álagningarflokka.

Bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2026 kynnt. Farið yfir forsendur og breytingu milli ára.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

6.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2509012Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga 2025.

Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð og rætt um breytingar á þeim.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

7.Fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2509013Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2026 ásamt forsenduspá.

Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og drög að fundadagskrá bæjarráðs.

8.Framkvæmdir 2025

Málsnúmer 2501025Vakta málsnúmer

Yfirferð helstu framkvæmda.

Farið yfir verkefni í vinnslu með Nönnu.

Nanna og Björg sögðu frá helstu framkvæmdum við götur og gangstéttir.

Búið er að gera verklokaúttekt á gangstéttarframkvæmdum og regnbeðum í neðanverðum Hrannarstíg. Fyrirhuguð er plöntun í beðin á næstunni. Gert er ráð fyrir að beðin séu lifandi og þurfi endurnýjun reglulega.

Malbikuð var hraðahindrun við austanverða Grundargötu, í samvinnu við Vegagerðina, sem kostar framkvæmdina. Sagt var frá öðrum gangstéttarframkvæmdum og fleiru.

Bæjarstjóri sagði frá framkvæmdum við að byggja palla við austanverðan Kirkjufellsfoss og stöðu þess verkefnis, sem unnið er fyrir styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Nönnu var þakkað fyrir komuna.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri - mæting: 08:44

9.UMFG - pílufélag - beiðni um leiguhúsnæði

Málsnúmer 2509022Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Tryggva Hafsteinssonar með beiðni um leiguhúsnæði fyrir píluaðstöðu. Áhugi félagsins er að leigja kjallara að Grundargötu 30.

Bæjarráð tekur vel í erindið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa að ræða við forsvarsfólk pílufélagsins og afla frekari upplýsinga.

Samþykkt samhljóða.

10.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu orkuskiptaverkefnisins og úthlutun styrks sem tilkynnt var í gær.

Bjarni Már Júlíusson ráðgjafi kom inn á fundinn í fjarfundi.

Bjarni Már sagði frá prófunum sem fram fóru á tveimur borholum við íþróttahús fyrr í september, þar sem reynt er að koma í veg fyrir að leir trufli varmaskipta sem tengdir eru inná varmadælukerfi skóla- og íþróttamannvirkjanna.

Bæjarstjóri sagði frá því að í gær hefði Grundarfjarðarbær fengið úthlutað 18,55 millj. kr. í þetta verkefni og er ætlunin að nýta það fé í að bæta orku inná kerfið, hvort sem það verður gert með borholum eða öðrum hætti.

Rætt um nýtingu jarðvarma í borholum og um möguleikann á plægingu lagna í jörðu, til að bæta við orku inná kerfið.

Bæjarráð samþykkir að fara í viðbótarorkuöflun í samræmi við umræður fundarins.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Jósef Ó. Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, í fjarfundi
  • Bjarni Már Júlíusson, ráðgjafi, í fjarfundi
  • Signý Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, í fjarfundi

11.Fjallskil 2025

Málsnúmer 2508023Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskilanefndar vegna fjallskila 2025.

12.Breiðafjarðarnefnd - Beiðni um tilnefningar 2025-2029

Málsnúmer 2506024Vakta málsnúmer

Skv. pósti dags. 19. september 2025 hafa sveitarfélögin þrjú tilnefnt til ráðuneytisins, eftirtalin:



Arnar Kristjánsson aðalm.

Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir til vara

13.Samband íslenskra sveitarfélaga - Samtal framkv.stj. sveitarfélaga og sambandsins

Málsnúmer 2509014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga með samantekt til sveitarfélaga eftir fund sambandsins og framkvæmdastjóra sveitarfélaga.

14.Hafnasamband Íslands - Fjárfestingar hafna á Íslandi 2025-2040

Málsnúmer 2509015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Hafnasambands Íslands um fjárfestingar hafna á Íslandi 2025-2040. Um er að ræða stefnumótandi greiningu og fjárfestingarmat.

15.Innviðaráðuneytið - Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum

Málsnúmer 2509020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar boð um samráð vegna breytinga á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.

16.Náttúruhamfaratrygging Íslands - Erindi er varðar 16. gr. laga nr. 55_1992

Málsnúmer 2509021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ), dags. 10. sept. sl., um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:41.