198. fundur 15. febrúar 2019 kl. 16:00 - 19:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulags- og byggingafulltrúi
  • Davíð Örn Jónsson (DÖJ) aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Davíð Örn Jónsson aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa.
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

Sigurður Valur Ásbjarnarson og Davíð Örn Jónsson nýjir starfsmenn embættis skipulags- og byggingafulltrúa boðnir velkomnir til starfa.

1.Hlíðarvegur 5 - Byggingarleyfi

Málsnúmer 1902012Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna breytinga bæði utan- og innanhúss að Hlíðarvegi 5.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

2.Fellasneið 8 - Byggingarleyfi

Málsnúmer 1902018Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að byggja timbur hús á einni hæð að Fellasneið 8 smkv. framlögðum teikningum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi vegna einbýlishúss að Fellasneið 8, að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

3.Grund 2 - Byggingarleyfi-Nýbygging

Málsnúmer 1811023Vakta málsnúmer

Byggingarleyfi vegna nýbyggingar að Grund 2 var áður gefið út árið 2017.
Lagðar eru fram reyndarteikningar ásamt umsókn vegna breytinga á húsnæði nýbyggingar að Grund 2.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

4.Byggingarleyfi - Grund 2

Málsnúmer 1902033Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna breytinga á fjárhúsi að Grund 2.
Skipulags- og umhverfisnefnd frestar erindinu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fara í vettvangsheimsókn við fyrsta tækifæri, til þess að kanna aðstæður.

5.Búlandshöfði - Byggingarleyfi

Málsnúmer 1901013Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við Búlandshöfða smkv. framlögðum teikningum.


Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar erindinu. Nefndin bendir á að fyrirhuguð viðbygging er inná helgunarsvæði vegagerðarinnar.

6.Látravík 2 - Byggingarleyfi

Málsnúmer 1811048Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðar byggingar á frístundarhúsi en fyrir eru tvö sambærileg hús á jörðinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar erindinu enda hefur svæðið ekki verið skipulagt undir frístundahús.

7.Sæból 13 - Byggingarleyfi

Málsnúmer 1811040Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðrar uppsetningu á varmadælu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

8.Könnun um nöfn og breytingar á nöfnum nýbýla.

Málsnúmer 1812005Vakta málsnúmer

Nafnfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samstarfi við Örnefnanefnd óskar eftir upplýsingum um nafngiftir býla.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara erindinu.

9.Samgöngustofa - Endurnýjun

Málsnúmer 1901019Vakta málsnúmer

Óskað er eftir umsögn sveitastjórnar vegna umsóknar til samgöngustofu vegna skráningar lendingarstaðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til bæjarstjórnar.

10.Stjórn Fellaskjóls - Lóðamál

Málsnúmer 1901037Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá stjórn Fellaskjóls.


Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að skipulags- og byggingarfulltrúi, í samráði við stjórn Fellaskjóls fari í þá vinnu að afmarka lóð dvalarheimilisins.

11.Stöðuleyfi

Málsnúmer 1902034Vakta málsnúmer

Fjallað um stöðuleyfi gáma í þéttbýli Grundarfjarðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingafulltúa að taka á málum er varða stöðuleyfi gáma í þéttbýli.

12.Skotfélag Snæfellsness Skotgrund - Lagfæring á skotsvæði

Málsnúmer 1901014Vakta málsnúmer

Skotgrund leggur fram teikningar af hugmyndum að fyrirhugaðri uppbyggingu svæðisins í Kolgrafafirði.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundargerð þessi er birt með fyrirvara um afgreiðslu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 19:45.