493. fundur 22. desember 2016 kl. 16:30 - 18:52 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) formaður
  • Berghildur Pálmadóttir (BP)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

2.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 1612014Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi dags. 15. des. sl., þar sem óskað er heimildar til afskriftar skulda, vegna opinberra gjalda, sem ekki hefur tekist að innheimta. Samkvæmt framlögðum lista eru umrædd gjöld ásamt vöxtum 29.487 kr.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að gjöldin verði afskrifuð.

3.Framkvæmdaráð Snæfellsness, stjórnarfundur 15. des. 2016

Málsnúmer 1612017Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð Framkvæmdaráðs Snæfellsness frá 15. des. sl.
Jafnframt lögð fram drög að stofnsamningi fyrir Byggðasamlag Snæfellinga bs., sem áætlað er að taki við verkefnum Héraðsnefndar Snæfellsness um nk. áramót.

Bæjarráð leggur til að stofnsamningur byggðasamlagsins verði staðfestur á næsta fundi bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

4.Rekstrarleyfi, Hamrahlíð 9

Málsnúmer 1612004Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Sýslumannsins á Vesturlandi, þar sem óskað er umsagnar bæjarstjórnar um rekstrarleyfi í flokki I að Hamrahlíð 9, Grundarfirði.

Bæjarráð bendir á vinnureglur sem samþykktar hafa verið í bæjarstjórn vegna rekstrarleyfisumsókna. Að uppfylltum skilyrðum sem þar koma fram mælir bæjarráð með því við bæjarstjórn að veitt verði jákvæð umsögn um erindið, enda liggi fyrir umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt samhljóða.

5.Héraðsdómur Vesturlands

Málsnúmer 1511032Vakta málsnúmer

Lagður fram dómur Héraðsdóms Vesturlands í máli fyrrum starfsmanns gegn Grundarfjarðarbæ, vegna uppsagnar á starfi við ræstingar. Starfsmanninum hafði verið sagt upp starfinu vegna verulegra breytinga á fyrirkomulagi þess, sem fól m.a. í sér að starfshlutfall minnkaði um 2/3 hluta.

Niðurstaða dómsins er sú að Grundarfjarðarbær hefði átt að bjóða viðkomandi starfsmanni hið breytta starf í stað þess að auglýsa starfið laust til umsóknar. Á grundvelli þess er uppsögnin ekki talin lögmæt og bærinn dæmdur til þess að greiða 650.000 kr. í bætur, auk málskostnaðar.

Samkvæmt dómnum er Grundarfjarðarbær sýknaður af kröfu um miskabætur, þar sem framganga við uppsögnina þótti ekki fela í sér ólögmæta meingerð gagnvart viðkomandi starfsmanni.

Bæjarráð vísar málinu til frekari umfjöllunar í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

6.Samkomuhús Grundarfjarðar

Málsnúmer 1606013Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir því að umsjónarmaður Samkomuhúss Grundarfjarðar hefur sagt starfi sínu lausu og óskar eftir því að losna sem fyrst.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og menningar- og markaðsfulltrúa að ganga frá málum í samræmi við umræður á fundinum.

7.Gjaldskrár 2017

Málsnúmer 1610010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tvö bréf Heilbrigðiseftirlitsins dags. 19. des. sl. varðandi staðfestingu gjaldskráa.

8.Áskorun til sveitarstjórna við Breiðafjörð

Málsnúmer 1612013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 20. nóv. sl. frá Æðarvéum og Æðaræktarfélagi Snæfellinga þar sem skorað er á sveitarfélög við Breiðafjörð að standa vörð um lífríki fjarðarins.

9.Þroskahjálp - Húsnæðisáætlanir, stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki

Málsnúmer 1612011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Landssamtökunum Þroskahjálp dags. 7. des. sl. varðandi húsnæðismál fatlaðra.

10.Atvinnuvega-og nýsköpunarr.- Auglýsing umsóknar um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2016-2017

Málsnúmer 1609028Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins um byggðakvóta 2016-2017.

11.VÍS - Skammtímatrygging

Málsnúmer 1612010Vakta málsnúmer

.
Lögð fram til kynningar trygging vegna þrettándabrennu sem haldin verður í Kolgrafarfirði 6. janúar nk.

12.Hrannarstígur 18, íbúð 105

Málsnúmer 1611030Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bréf um aflýsingu búseturéttarsamnings vegna íbúðar 105 að Hrannarstíg 18. Jafnframt lagt fram til kynningar nýr leigu- og búseturéttarsamningur um íbúðina.

13.Sameining sveitarfélaga, viðræður

Málsnúmer 1606001Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. 21. des. sl. til Atvinnuráðgjafar SSV
þar sem vísað er til fundar fulltrúa bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar, bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar og hreppsnefndar Helgafellssveitar frá 8. nóv. sl.

Niðurstaða þess fundar var að fela Atvinnuráðgjöf SSV að vinna greinargerð um kosti þess og galla að sameina sveitarfélögin, gera tillögur að stjórnskipulagi sameinaðs sveitarfélags og leita eftir styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til verkefnisins.

14.Leikskólinn, afmælisboð

Málsnúmer 1612018Vakta málsnúmer

Afmælishátíð Leikskólans Sólvalla verður haldið 7. janúar nk. í tilefni 40 ára afmælis leikskólastarfs í Grundarfirði.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:52.