609. fundur 06. september 2023 kl. 08:30 - 11:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2023

Málsnúmer 2301020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2023

Málsnúmer 2302010Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júlí og janúar-ágúst 2023.



Skv. yfirlitinu janúar-ágúst hefur greitt útsvar hækkað um 9,1% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Rekstraryfirlit 2023

Málsnúmer 2305039Vakta málsnúmer

Lagt fram sex mánaða uppgjör fyrir tímabilið janúar-júní 2023.

Skv. yfirlitinu eru fjármagnsgjöld hærri en áætlun, sem er í takt við hækkun á vísitölu neysluverðs. Á móti eru tekjur hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Í heildina er rekstur á pari við áætlun fyrstu sex mánuði ársins.

4.Launaáætlun 2023

Málsnúmer 2304026Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlit yfir áætluð og greidd laun jan.-júní 2023, jan.-júlí 2023 og jan.-ágúst 2023.

Skv. yfirliti jan.-ágúst 2023 eru raunlaun lítillega undir launaáætlun fyrir sama tímabil. Farið yfir niðurbrot niður á deildir.

5.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðnir

Málsnúmer 2302009Vakta málsnúmer

Kynnt beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 28.885 kr.

Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns.

Bæjarráð samþykkir samhljóða afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 28.885 kr. auk vaxta.

6.Samband íslenskra sveitarfélaga - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2024-2027

Málsnúmer 2308003Vakta málsnúmer



Lagt fram og farið yfir minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2024-2027.

7.Fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2309002Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2024.

Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og drög að fundadagskrá bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög sem verða unnin áfram.

8.Tímabundinn afsláttur af gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2211040Vakta málsnúmer

Lagt fram fylgiskjal með tillögu um að 50% tímabundinn afsláttur af gatnagerðargjaldi gildi út árið 2023 á tilteknum eldri íbúðarlóðum.



Afsláttur skv. síðustu samþykkt bæjarstjórnar var 50% út júní 2023.



Tillaga um áframhaldandi tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum rædd.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum verði veittur út árið 2023 af tilteknum eldri íbúðarlóðum, sbr. framlagða tillögu.

9.Jafnréttisáætlun 2024-2026

Málsnúmer 2309003Vakta málsnúmer

Lögð fram jafnréttisáætlun sem gildir út árið 2023 og lögð fram drög að endurnýjaðri jafnréttisáætlun áranna 2024-2026.

Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að jafnréttisáætlun áranna 2024-2026.

10.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Gísla Guðmundssonar, jarðefnafræðings, dags. 17. ágúst sl. um vatnssýni úr borholum VD-01 og VD-07.

Sigurbjartur Loftsson, verkefnisstjóri (gegnum síma), og Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, sátu fundinn undir þessum lið.

Farið var yfir stöðuna á verkefni um borun á varmadæluholum og orkuskipti fyrir íþrótta- og skólamannvirki.

Bæjarfulltrúar áttu fund með Sigurbjarti, verkefnastjóra, Hauki Jóhannessyni, jarðfræðingi og Gísla Guðmundssyni, jarðefnafræðingi í ágúst sl. Áhugaverðar niðurstöður liggja fyrir eftir rannsóknir á vatninu sem kom upp úr borholunum.

Næstu skref í varmadæluverkefninu eru að koma lögnunum frá borholum inn í hús fyrir veturinn, samningsgerð við Rarik um hýsingu fyrir nýja spennistöð tengt verkefninu, undirbúningur fyrir breytingar innanhúss í íþróttahúsi, búnaðarkaup o.fl.

Bæjarstjóri sagði frá að beðið sé eftir niðurstöðum úr tveimur sjóðum vegna styrkumsókna bæjarins í verkefnið.

Gestir

  • Sigurbjartur Loftsson, verkefnisstjóri - mæting: 09:47
  • Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 09:47

11.Framkvæmdir 2023

Málsnúmer 2301007Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar sem sýna breytta legu götunnar Hjallatúns, unnar af Eflu, sbr. umræður í bæjarráði sl. vor.

Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inn á fundinn gegnum síma undir þessum lið.

Hún fór yfir stöðu deiliskipulagsverkefna sem eru í gangi. Deiliskipulagsbreyting iðnaðarsvæðis við Kverná er í lokameðferð hjá Skipulagsstofnun, komin er tillaga að breyttri hæð í götunni Hjallatúni, deiliskipulag hafnarsvæðis er langt komið og deiliskipulag Framness er áfram í vinnslu.

Gestir

  • Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi - mæting: 10:41

12.Snjómokstur

Málsnúmer 2309004Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um kostnað við snjómokstur áranna 2011-2022.

Valgeir Magnússon, verkstjóri áhaldahúss, kom inn á fundinn undir þessum lið gegnum síma. Farið yfir reynslu og framkvæmd á fyrirkomulagi snjómoksturs síðustu tveggja vetra, en fyrirkomulagið var með þeim hætti að verktökum var boðið til samningsviðræðna um snjómokstur með mögulegri þátttöku allra að verkinu.

Samið var við tvo verktaka sem unnu saman að snjómokstri í bænum, að undanskildu hafnarsvæði, sem Grundarfjarðarhöfn sér um. Fram kom að reynslan var góð af fyrirkomulagi síðustu vetra.

Byggingarfulltrúa og verkstjóra áhaldahúss falið að leita eftir samningsgerð við verktaka í bænum með svipað fyrirkomulag í huga varðandi snjómokstur næsta vetrar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Valgeir Magnússon, verkstjóri áhaldahúss - mæting: 09:19

13.Skipulagsfulltrúi - um verklag við umsagnir um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn, sbr. umræðu í bæjarstjórn 11. maí sl.

Umræður um málið.

Bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu fundarins.

Samþykkt samhljóða.

14.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Ums.b. rekstrarleyfi G.II-Hafnaríbúðir, Grundargötu 12-14, Grundarfj.

Málsnúmer 2309005Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn við umsókn Hafnaríbúða ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II vegna þriggja íbúða að Grundargötu 12, en svæðið er skilgreint sem íbúðarbyggð í aðalskipulagi.



Jafnframt lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa um málið þar sem fram kemur tillaga um grenndarkynningu.



Fyrir liggja úttektir slökkviliðsstjóra og byggingarfulltrúa.



Bæjarráð samþykkir að gerð verði grenndarkynning vegna umsagnar bæjarins um framlagða umsókn í samræmi við tillögu skipulagsfulltrúa. Kynnt verði fyrir eigendum Grundargötu 10, 11, 13, 13a og 16, sem og eigendum íbúða í húsinu Grundargötu 12-14.

Samþykkt samhljóða.

15.Grundargata 8 - Breytt rekstrarleyfi

Málsnúmer 2308002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning frá sýslumanni um breytingu á áður útgefnu rekstrarleyfi Bjarg apartment ehf, sem gildir nú aðeins fyrir íbúð á neðri hæð hússins.

16.Sveitarfélagið Stykkishólmur - Ágangur búfjár

Málsnúmer 2309001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs Sveitarfélagsins Stykkishólms frá 21. ágúst sl. um ágang búfjár ásamt upplýsingum landbúnaðarnefndar sveitarfélagsins frá 12. júlí sl.

Bæjarráð samþykkir að gögnin verði lögð fram til kynningar hjá skipulags- og umhverfisnefnd, sem fer með landbúnaðarmál.

17.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - Aðalfundur SSKS 22.09.2023

Málsnúmer 2308004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð um aðalfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) sem haldinn verður 22. september nk.

Bæjarstjóri mun sitja fundinn. Bæjarfulltrúum er sömuleiðis heimilt að sitja fundinn.

18.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - Haustfundur 4. okt. 2023 í Reykholti

Málsnúmer 2309006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um haustþing SSV 2023 sem haldið verður 4. október nk.

19.EBÍ - Tilkynning um aðalfund fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 6. október n.k.

Málsnúmer 2308005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning fulltrúaráðs Eingarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands um aðalfund sem haldinn verður 6. október nk.

Bæjarstjóri verður með erindi á þessum fundi.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:45.