646. fundur 30. október 2025 kl. 14:00 - 19:29 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Hjallatún 2 - Lóðablað

Málsnúmer 2510030Vakta málsnúmer

Lagt fram nýtt lóðarblað og merkjalýsing fyrir Hjallatún 2, landnr. L201174, sem á eftir að undirrita af merkjalýsanda.



Lóðinni var úthlutað á síðasta ári, en gerð lóðablaðs kemur í kjölfar gildistöku nýs deiliskipulags iðnaðarsvæðisins vestan Kvernár. Lýsingin tilgreinir rétt lóðamörk út frá deiliskipulagi, en auk þess hefur lóðarhafi beðið um stækkun lóðar til vesturs um 2 bil (metralóðir), þ.e. 10 metra, og verður lóðin þá 1.758 fermetrar að stærð eftir þessar breytingar.



Endanleg lóðaúthlutun miðast við útgáfu þessarar merkjalýsingar, sem einnig er grunnur lóðarleigusamnings sem gerður verður þegar merkjalýsandi hefur lokið yfirferð.

Bæjarráð staðfestir framlagða útgáfu merkjalýsingar og nýs lóðarblaðs fyrir lóðina Hjallatún 2.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri - mæting: 14:00

2.Hjallatún 3 - Lóðablað

Málsnúmer 2510031Vakta málsnúmer

Lagt fram nýtt lóðarblað og merkjalýsing fyrir Hjallatún 3, landnr. L190037, sem á eftir að undirrita af merkjalýsanda.



Lóðinni var úthlutað á síðasta ári, en formleg stofnun hennar fer nú fram, út úr landi Grafarlands, L190037. Stærð lóðarinnar er 2.903 ferm. og lega hennar og afmörkun líkt og fram kemur á meðfylgjandi uppdrætti og minnkar stærð upprunalandsins sem því nemur í 41.404 ferm.

Bæjarráð staðfestir framlagða útgáfu merkjalýsingar og nýs lóðarblaðs fyrir lóðina Hjallatún 3.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri - mæting: 14:10

3.Framkvæmdir 2025

Málsnúmer 2501025Vakta málsnúmer

Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi er gestur fundarins undir þessum lið.

Hinrik fór yfir tilboð sem hann fékk í rennibraut ofan í vaðlaug og útfærslu með handriðum.

Bæjarráð samþykkir þessi kaup.

Samþykkt samhljóða.

Rætt um framkvæmdir við tengigang milli grunnskóla og íþróttahúss. Fyrirhuguð er viðgerð á vegg tengigangs, þeirri hlið sem snýr út í sundlaugargarð.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 14:40

4.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2026

Málsnúmer 2509019Vakta málsnúmer

Framhaldsumræða um styrkumsóknir sem hafa borist og liggja fyrir ásamt samantektarskjali.



Umsóknir yfirfarnar og lagðar fram tillögur að styrkveitingum næsta árs. Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunum til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

SG vék af fundi undir umfjöllun um styrki til Fellaskjóls og Listvinafélagsins.
GS vék af fundi undir umfjöllun um styrki til Golfklúbbsins Vestarr.

5.Fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2509013Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2026, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2027-2029. Lögð fram launaáætlun 2026, ásamt samanburði við árið 2025 niður á deildir. Jafnframt lagt fram yfirlit sem sýnir áætlun 2026 í samanburði við áætlun 2025 niður á málaflokka. Að auki var lagt fram yfirlit yfir kostnað við skólamat 2011-2025.

Farið yfir framangreind gögn og drög að fjárhagsáætlun 2026-2029. Drögunum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Hinrik og Pálmi sátu fundinn undir umræðu um fjárfestingar hvað varðar þeirra stofnanir.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 15:00
  • Pálmi Jóhannsson, forstöðumaður menningar- og markaðsmála - mæting: 15:20

6.Beiðni um þriggja mánaða einkarétt á kostgæfnisathugun á lóð í eigu Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2509008Vakta málsnúmer

Lagðar fram viðbótarspurningar frá málsaðila.



Halldór Jónsson hrl. var gestur fundarins undir þessum lið.

Farið yfir spurningar í framlögðu erindi, m.t.t. afstöðu bæjarstjórnar til þeirra.

Lagt til að fulltrúar bæjarins hitti málsaðila á fundi fljótlega.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Halldór Jónsson hrl. - mæting: 16:45

7.Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Hellnafellsvegar

Málsnúmer 2510028Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Vegagerðarinnar um að til standi að fella niður veghald á Hellnafellsvegi þar sem veginum hafi verið lokað með hliði eða merkingu um að hann sé einkavegur.

Bæjarráð samþykkir að leita umsagnar eiganda hússins áður en tekin er afstaða til erindis Vegagerðarinnar.

8.Anna Fjóla Gísladóttir - Réttir landsins

Málsnúmer 2510029Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi með beiðni um útgáfustyrk/kaup á bókum.

Bæjarráð getur því miður ekki orðið við erindinu.

Samþykkt samhljóða.

9.Snjómokstur 2025-2028 verðkönnun

Málsnúmer 2509023Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð um opnun tilboða í snjómokstur.



Þann 25. september sl. var með tölvupósti sett af stað verðkönnun vegna snjómoksturs í þéttbýli Grundarfjarðar fyrir árin 2025-2028, með möguleika á framlengingu um ár í viðbót. Þremur aðilum var boðið að gera tilboð. Tilboð voru opnuð 2. október sl.

10.Heilbrigðisnefnd Vesturlands - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 198. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 13. október sl.

11.Fellaskjól - Ársreikningur 2024 og nýkjörin stjórn

Málsnúmer 2510025Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fellaskjóls fyrir árið 2024 ásamt upplýsingum um nýja stjórn heimilisins.

12.Svæðisgarðurinn Snæfellsnes - Ársreikningur 2024

Málsnúmer 2510002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársreikningur Svæðisgarðsins Snæfellsness fyrir árið 2024.

13.Björgunarsveitin Klakkur - Ársuppgjör 2024

Málsnúmer 2510021Vakta málsnúmer

Lagð fram til kynningar ársuppgjör Björgunarsveitarinnar Klakks fyrir árið 2024.

14.SSV - Minnisblað vegna fundar 27. okt n.k. RE Samráðsvettvangur Breiðafjarðar

Málsnúmer 2510026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað, dags. 14. október sl., um stöðu verkefna skv. tillögum í skýrslu um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar.

15.HMS - Fundaröð HMS um stöðu og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar og mannvirkjamála

Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur HMS, dags. 14. október sl., varðandi fundaröð um stöðu og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar og mannvirkjamála.

16.Samband íslenskra sveitarfélaga - Innheimta kostnaðar vegna virðismatsvegferðar Sambandsins og ríkisins með KÍ

Málsnúmer 2510011Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 5. september sl., um innheimtu kostnaðar vegna virðismatsvegferðar Sambandsins og ríkisins með KÍ.

17.Umhyggja-félag langveikra barna - Umhyggju - Fjórða vaktin; álag og örmögnun.

Málsnúmer 2510022Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Umhyggju - félags langveikra barna, dags. 20. október sl., um málþing sem haldið verður 3. nóvember nk. um álagið sem hvílir á foreldrum langveikra og fatlaðra barna.

18.Mennta- og barnamálaráðuneyti - Framlag ríkisins 2025 vegna barna með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2510024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 16. október sl., um framlag ríkisins vegna barna með fjölþættan vanda ásamt upplýsingum um áætlaðan kostnað vegna langvarandi vistunar utan heimilis 2025.

19.Nýheimar Þekkingarsetur - Byggðafesta ungs fólks á landsbyggðinni - MÁLÞING

Málsnúmer 2510012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar kynningarbréf Nýheima þekkingarseturs um málþing sem haldið var 23. og 24. september sl. um byggðafestu ungs fólks á landsbyggðinni.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:29.