223. fundur 02. desember 2020 kl. 16:15 - 17:45 á fjarfundi
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM) varaformaður
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Eymar Eyjólfsson (EE)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulags- og byggingafulltrúi
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) starfsmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður skipulags- og byggingarfulltrúaembættis
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

Nefndarmenn taka þátt í fundinum sem er fjarfundur, haldinn skv. heimild í samþykkt bæjarráðs.
Bæjarstjóri situr fundinn undir liðum 3 - 5.

1.Byggingarleyfi - Hlíðarvegur 5

Málsnúmer 1902012Vakta málsnúmer

Á 222. fundi nefndarinnar fól hún byggingarfulltrúa að grenndarkynna breytingu á þaki sbr. 2.3.4. gr. byggingarreglugerðar. Grenndarkynning stóð til 20. nóvember 2020 - engar athugasemdir bárust á umsagnartíma. Ein ábending barst.
Í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var grenndarkynning send út 21. október og frestur til athugasemda var til 20. nóvember 2020 - engar athugasemdir bárust á umsagnartíma.

Byggingarfulltrúi gaf út byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu að höfðu samráði við skipulags- og umhverfisnefnd.

Byggingarleyfi staðfest.

2.Ölkelduvegur 23 - Byggingarleyfi

Málsnúmer 2012001Vakta málsnúmer

Lagt fram byggingarleyfi og teikningar vegna Ölkelduvegar 23.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á Ölkelduvegi 23.
Framlagðar teikningar falla vel inn í gildandi deiliskipulag.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

3.Tillaga að breytingu á deiliskipulagi að Hálsi

Málsnúmer 1803060Vakta málsnúmer

Farið yfir gögn málsins og stöðu sbr. bókun á 193. fundi nefndarinnar.
Málið er til frekari skoðunar hjá byggingarfulltrúa og nefndinni.
Máli frestað

4.Deiliskipulag Ölkeldudals, breyting

Málsnúmer 2003015Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála vegna breytingar á deiliskipulagi í Ölkeldudal, þar á meðal stækkunar deiliskipulagssvæðis á Ölkelduvegi og Hjaltalínsholti.
Lögð fram til kynningar gögn frá skipulagsráðgjafa um hugsanlega breytingu á deiliskipulagi Ölkeldudals.

5.Grundargata 30 - Fyrirspurn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2008013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar teikningar af breytingum af efri hæð að Grundargötu 30.
Fyrir nefndinni liggja teikningar af breytingum á efri hæð á Grundargötu 30.

Nefndin hafði áður samþykkt fyrirhugaða framkvæmd á 220. fundi og leggur byggingarfulltrúi fram fullunnar teikningar til upplýsinga.

Grundargata 30 er í sölu- og skiptaferli milli Grundarfjarðarbæjar og Helgrinda ehf.

Þegar kaup og skipti hafa verið frágengin felur skipulags- og umhverfisnefnd skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

6.Grundargata 30 n.h. - Framkvæmdir

Málsnúmer 2012002Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri leggur fram til kynningar breytingar á alrými á n.h. á Grundargötu 30. Fyrir liggja teikningar af rými á 1. hæð með breytingum af húsnæðinu.
Byggingarfulltrúa er falið að ganga frá teikningum í samræmi við núverandi notkun á húsnæði.

7.Hámarkshraði í þéttbýli - Fyrirspurn

Málsnúmer 2011056Vakta málsnúmer

Fyrirspurn barst varðandi hraðatakmarkanir í og við þéttbýli í bæjarfélaginu.
Erindi lagt fram til umsagnar hjá nefnd.
Byggingarfulltrúa falið að koma því á framfæri við Vegagerðina að leiðbeinandi skilti vestan við Grundarfjörð sem sýnir 50 km/h verði fjarlægt og að hámarkshraði á Kvíabryggjuafleggjara verði lækkaður til samræmis við vegaðstæður.

8.Höfnin - Viðbygging við spennistöðvarhús

Málsnúmer 2011028Vakta málsnúmer

Vegna tengingar heimtaugar á Norðurgarði Grundarfjarðarhafnar, þarf að byggja við spennistöðvarhúsið á hafnarsvæðinu. Umrædd framkvæmd fellur undir h. lið 2.3.5. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og er því ekki byggingarleyfisskyld. Þar sem viðbygging er 7,5 m2 að stærð og hefur ekki áhrif á ásýnd hafnarsvæðis.

Lagt fram til kynningar.
Lagt fram

9.Skipulagsstofnun - Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar

Málsnúmer 2011031Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn felur skipulags- og umhverfisnefnd umfjöllun og umsögn ofangreinds máls.
Lögð fram tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 8. janúar 2021.

Afgreiðslu máls frestað til 3. janúar 2021 þar sem nefndin mun skila niðurstöðu sinni á þeim fundi.

10.Mál frá skipulags- og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2009012Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi fer yfir þau mál sem legið hafa fyrir hjá embættinu.
Byggingarfulltrúi fer yfir þær rekstrarleyfisúttektir sem hefur verið farið í. Lokaúttekt á Vélsmiðju Grundarfjarðar, Rafræna skráningu hjá hms.is.

Áætlað er að fara í vettvangsskoðun í dreifbýli í samræmi við umhverfisrölt eins og farið var í innan þéttbýlis í vor.
Fundargerð var sýnd á sameiginlegum skjá fundarmanna, lesin upp og samþykkt í heyranda hljóði, auk þess sem rafrænt samþykki fundarmanna við fundargerðinni lá fyrir.

Fundargerð þessi er birt með fyrirvara um afgreiðslu í bæjarstjórn

Fundi slitið - kl. 17:45.