224. fundur 27. janúar 2021 kl. 16:15 - 17:15 í Samkomuhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM) varamaður
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Eymar Eyjólfsson (EE)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulags- og byggingafulltrúi
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) starfsmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður embættis skipulags- og byggingafulltrúa
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Grundargata 28 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2101035Vakta málsnúmer

Eigandi að Grundargötu 28, miðhæð og efri hæð, óskar eftir leyfi nefndar til að setja í nýja glugga - viðbót - á norðvesturhlið hússins.
Lagðar fram teikningar ásamt umsókn um leyfi vegna útlitsbreytingar á húsi að Grundargötu 28. Um er að ræða ísetningu nýrra glugga á norðvesturhlið hússins, á miðhæð og efrihæð.


Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir að umrædd framkvæmd verði grenndarkynnt fyrir nærliggjandi lóðarhöfum þar sem breyting telst ekki óveruleg vegna innsýnar, sjá leiðbeiningarblað 8a gefið út af Skipulagsstofnun, sbr. 2.3.4. gr. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Einnig skuli liggja fyrir samþykki allra eigenda fjölbýlishússins fyrir umræddri breytingu sbr. 1. mgr. 30. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús.

Byggingarleyfi samþykkt að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

2.Fellabrekka 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2101036Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi v/Fellabrekku 5 ásamt tillögu að teikningum að húsi.
Valdimar Ásgeirsson og Rósa Guðmundsdóttir leggja fram teikningar af einbýlishúsi til byggingar á lóðinni Fellabrekku 5 ásamt umsókn um byggingarleyfi.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaða byggingu á lóðinni til nærliggjandi lóðarhafa eða þeirra sem gætu átt hagsmuni að gæta sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða eigendur að Fellabrekku 3 og Hellnafell 2 og 4.

3.Iðnaðarsvæði - Breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2101038Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarstjórnar þann 14. janúar sl. fól bæjarstjórn skipulags- og umhverfisnefnd að skoða gildandi deiliskipulag á iðnaðarsvæði.
Í minnisblaði um stöðu efnis í efnisnámu í Lambakróarholti, dags. 14.01.2021, var fjallað um iðnaðarsvæðið (merkt I-1 í nýja aðalskipulaginu) og um Lambakróarholtsnámu (merkt E-3 í aðalskipulaginu nýja) og sagði m.a.:

"Lagt er til að deiliskipulagið verði endurskoðað og það stækkað þannig að það nái yfir báða landnotkunarreitina í heild þ.e. I-1 og E-3. Þannig verður hægt að tryggja heildarsýn varðandi uppbyggingu til framtíðar, sveigjanlegt iðnaðarhúsnæði, gatna- og veitukerfi sem gengur upp og hagkvæma nýtingu þessa dýrmæta og vel staðsetta iðnaðarsvæðis.

Um þetta bókaði bæjarstjórn að hún samþykkti að fela skipulags- og umhverfisnefnd að skoða skipulagið m.t.t. þessarar ábendingar.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að hefja vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði.

4.Tillaga að breytingu á deiliskipulagi að Hálsi

Málsnúmer 1803060Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd frestaði málinu á 193. fundi sínum.
Eftir nánari skoðun á breytingu á deiliskipulagi að Hálsi er ekki gerð athugasemd við afgreiðslu þess. Óskað er eftir samþykkt nefndar um að klára deiliskipulagið.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að klára breytingu á deiliskipulagi.

5.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1801048Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar uppkast að breytingum innanhúss í Sögumiðstöðinni.

Bæjarstjóri fól skipulags- og byggingarfulltrúa að rýna gögnin og gefa leiðbeiningar um leyfisskyldu og kröfur um teikningar.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í framlagðar hugmyndir að breytingu á Sögumiðstöð og hugmynd Inga Hans að samfélagsmiðstöð. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur óskað eftir teikningum og verða þær lagðar fram fyrir nefnd þegar þær berast.

6.Hallbjarnareyrarland - stofnun lóða

Málsnúmer 2101010Vakta málsnúmer

Óskað er eftir stofnun lóða í landi Hallbjarnareyrar, breytingu á nöfnum eldri lóða ásamt uppfærslu á stærðum og mörkum í landeignaskrá / Þjóðskrá.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipulagsstofnun - Umsögn vegna tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026

Málsnúmer 2011031Vakta málsnúmer

Skipulagsstofnun óskaði eftir umsögn um tillögu að viðauka við landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem auglýst var til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010.
Umsögn lögð fram eins og hún var send, eftir umsögn nefndarmanna í byrjun janúar.
Lagt fram til kynningar.

8.HMS - Heimild fyrirtækja og stofnana til að bera ábyrgð sem byggingastjóra

Málsnúmer 2101013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar, ábendingar frá HMS um ábyrgð byggingarstjóra og heimild fyrirtækja til að starfa sem slíkir.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:15.