547. fundur 28. maí 2020 kl. 16:30 - 19:43 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða

Málsnúmer 2001004Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Fjárhagsáætlun 2020

Málsnúmer 1909023Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð skipulags- og byggingafulltrúa ásamt kostnaðaráætlun vegna frágangs snúningsplans og baklóða við Fellabrekku 15-21.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins, til að mæta kostnaði við frágang snúningsplans og baklóða við Fellabrekku 15-21, uppá 7,5 millj. kr. Fjárveiting var ekki ákveðin til verksins í lok árs 2019 vegna óvissu um kostnað.

Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn, að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2020, til að mæta kostnaði við endurnýjun á dælu fyrir slökkviliðið, og heimild til að mæta kostnaði við kaup á bifreið fyrir áhaldahús, ef hagstæð kjör á hentugri bifreið fást nú á næstu vikum. Í viðauka sem lagður verði fyrir bæjarstjórnarfund í júní verði tilgreindar fjárhæðir fyrir þessa liði.

Ennfremur var rætt um framkvæmdir ársins vegna utanhússviðhalds grunnskólans. Bæjarráð mun fylgjast með kostnaðaráætlun verksins.

Bæjarstjóri kynnti fram komnar hugmyndir arkitektastofu um uppsetningu milliveggs í leikskóla.

Samþykkt samhljóða.

3.Sumarstörf fyrir námsmenn - Átaksverkefni

Málsnúmer 2005018Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir þeim umsóknum sem borist hafa um sumarstörf fyrir námsmenn. Lagður fram kostnaðarútreikningur vegna starfanna.

Einnig lagður fram til kynningar, tölvupóstur frá Gunnari Njálssyni f.h. Skógræktarfélags Eyrarsveitar varðandi verkefni í sumar.

4.Vinnuskóli 2020

Málsnúmer 2005038Vakta málsnúmer


Lagt til að bæjarstjóri megi auglýsa störf í vinnuskóla fyrir börn úr 7. bekk, ef aðsókn 8.-10. bekkinga verður með þeim hætti að svigrúm skapist fyrir að ráða 7. bekkinga inn.

Samþykkt samhljóða.

5.Reglur um styrki til námsmanna í starfi hjá Grundarfjarðarbæ

Málsnúmer 2005052Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um styrki til starfsmanna leik- og grunnskóla sem stunda fjarnám.

Bæjarráð fór yfir drögin og felur skrifstofustjóra og bæjarstjóra að gera breytingar á þeim í samræmi við umræður á fundinum. Drögin, þannig breytt, verði lögð fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

6.Jafnréttisáætlun Grundarfjarðarbæjar, endurskoðuð

Málsnúmer 2005042Vakta málsnúmer


Lögð fram drög að endurskoðaðri jafnréttisáætlun Grundarfjarðarbæjar.

Bæjarráð tekur drögin til skoðunar á fundi sínum í júní.

Samþykkt samhljóða.

7.Fellabrekka 21 - frágangur við baklóð

Málsnúmer 1707004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar niðurstaða verðkönnunar sem fram fór um frágang snúningsplans í Fellasneið og baklóða við Fellabrekku 15-21. Tveir skiluðu inn verðtilboðum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi mun ganga frá samningi við lægstbjóðanda, Þ.G. Þorkelsson verktaka ehf.

8.Hesteigendafélag Grundarfjarðar - Nýr samningur og skilmálar hesthúsahverfis

Málsnúmer 1910014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að nýjum beitarsamningi við Hesteigendafélag Grundarfjarðar.

Bæjarráð yfirfór drögin og samþykkir þau fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða.

9.SSV - Staða atvinnumála í Grundarfirði vegna Covid-19

Málsnúmer 2004027Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjórða útgáfa Hagvísis, sem gefinn er út af SSV.

10.Vinnumálastofnun - Atvinnuleysi

Málsnúmer 2005031Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit Vinnumálastofnunar yfir atvinnuleysi.

11.Yfirlit um aðgerðir ríkisstjórnar og Alþingis í tengslum við Covid-19 sem lúta að sveitarfélögum

Málsnúmer 2005029Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir aðgerðir ríkisstjórnar og Alþingis í tengslum við Covid-19 sem snúa að sveitarfélögum.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga - minnisblað 26.05.2020 um endurgreiðslu vsk á byggingarstað

Málsnúmer 2005044Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 26. maí sl. varðandi endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað.

13.Ísland ljóstengt - Aukaúthlutun 2020

Málsnúmer 2005023Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning stjórnarráðsins vegna aukaúthlutunar framlaga fyrir dreifbýlið í verkefninu "Ísland ljóstengt" ásamt áhugakönnun um þátttöku í aukaúthlutuninni.

14.Minjavörður Vesturlands - Átak í húsvernd, leitað tillagna, tp. 11.05.2020

Málsnúmer 2005016Vakta málsnúmer


Lögð fram til kynningar svör minjavarðar Vesturlands við fyrirspurn bæjarstjóra um verkefni í minjavernd, sbr. umræður í bæjarstjórn 14. maí sl.

Bæjarráð leggur til að endurbætur/breytingar á Samkomuhúsi Grundarfjarðar verði tilnefndar sem verkefni vegna átaks Minjastofnunar í húsverndarmálum.

Samþykkt samhljóða.

15.Aðalfundur SSV 2020

Málsnúmer 2005026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar SSV sem haldinn verður 15. júní nk.

16.Umhverfisstofnun - Endurskoðun - lokunarfyrirmæli urðunarstaða

Málsnúmer 1905001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svar bæjarstjóra til Umhverfisstofnunar dags. 15. maí sl. ásamt greinargerð um áform vegna lokunarfyrirmæla.

17.Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

Málsnúmer 2005032Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing heilbrigðisráðherra vegna takmörkunar á samkomum vegna farsóttar, dags. 22. maí sl. sem tók gildi 25. maí sl.

18.Ný útboð verkefna á sviði jarðhita og vatnsaflvirkjanna á vegum Uppbyggingarsjóðs EES

Málsnúmer 2005033Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um útboð verkefna á sviði jarðhita og vatnsaflsvirkjana á vegum Uppbyggingarsjóðs EES.

19.Umhverfisstofnun - Landvarsla við Breiðafjörð

Málsnúmer 2005047Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Umhverfisstofnunar um landsvörslu við Breiðafjörð fyrir árið 2019.

20.Tómas Freyr Kristjánsson - Samningur um ljósmyndun 2020

Málsnúmer 2005051Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Tómas Frey Kristjánsson vegna ljósmynda af viðburðum í Grundarfirði árið 2020.

21.Sjómannadagsráð Grundarfjarðar - Ársuppgjör 2019

Málsnúmer 2005035Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs Grundarfjarðar vegna ársins 2019.

22.Setbergssókn - Ársreikningur 2019

Málsnúmer 2005036Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Setbergssóknar árið 2019.

23.UMFG - Ársreikningur 2019

Málsnúmer 2005037Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG árið 2019.

24.Þjóðskrá Íslands - Forsetakosningar 2020 og útgáfa kjörskrárstofns

Málsnúmer 2005048Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Þjóðskrár Íslands vegna forsetakosninga 2020 og útgáfu kjörskrárstofns.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer nú fram í Ráðhúsi Grundarfjarðar, skv. samkomulagi Sýslumannsembættisins við Grundarfjarðarbæ. Opið verður kl. 10-14 alla virka daga frá 9. júní nk.

Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:43.