279. fundur 11. janúar 2024 kl. 16:30 - 19:49 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Davíð Magnússon (DM)
    Aðalmaður: Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra frá 2022

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti fór yfir fundi og viðburði sem framundan eru.

Rædd var tillaga um að setja af stað stýrihópa sem styðji við stærstu skipulagsverkefnin sem í vinnslu eru á vegum bæjarins og séu til stuðnings skipulagsfulltrúa í starfi með skipulagsráðgjöfum. Gert er ráð fyrir að tveir fulltrúar, frá bæjarstjórn og skipulagsnefnd, séu með hverju verkefni. Þau verkefni sem sérstaklega verði studd eru þrjú;
Framnes - deiliskipulagsgerð
iðnaðarsvæði við Kverná - deiliskipulag og breyting á aðalskipulags
nýtt verkefni sem er Ölkeldudalur - breytingar á deiliskipulagi og aðalskipulagi.

GS sagði frá skoðunarferð til Brunavarna Árnessýslu, sem farin var nýlega á Selfoss. Ferðin var á vegum starfshóps SSV um samstarf slökkviliða á Vesturlandi og með í för voru slökkliðsstjórar af Vesturlandi.

GS ræddi jafnframt um Skíðasvæði Snæfellsness.

3.Skipulags- og umhverfisnefnd - 255

Málsnúmer 2312004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 255. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til kynningar fundargerð 4. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 21. nóvember 2023. Skipulags- og umhverfisnefnd - 255
  • Byggingarfélagið Djúpá ehf. sækir um lóð við Grundargötu 90 fyrir einbýlishús.

    Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði sem í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 er skilgreint sem íbúðarsvæði (ÍB-4). Í skipulagsskilmálum fyrir ÍB-4 segir að "[heimilt sé] að byggja íbúðarhús sem falla vel að þeirri byggð sem fyrir er s.s. hvað varðar hæð húsa."

    Í 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir jafnframt að "Þegar sótt [sé] um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn [...] ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Þegar um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skal skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu, sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr."
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta umsækjanda lóðinni við Grundargötu 90 til íbúðarbyggingar, sbr. samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og skilmála um afslátt af gatnagerðargjöldum frá 14. desember 2023.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að byggingaráform verði grenndarkynnt þegar þau liggja fyrir skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Nefndin samþykkir að grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum eftirfarandi fasteigna: Grundargötu 69, 84, 86, 88, 92 og 94.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Byggingarfélagið Djúpá ehf. sækir um lóð við Grundargötu 82 fyrir einbýlishús.

    Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði sem í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 er skilgreint sem íbúðarsvæði (ÍB-4). Í skipulagsskilmálum fyrir ÍB-4 segir að "[heimilt sé] að byggja íbúðarhús sem falla vel að þeirri byggð sem fyrir er s.s. hvað varðar hæð húsa."

    Í 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir jafnframt að "Þegar sótt [sé] um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn [...] ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Þegar um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skal skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu, sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr."
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta umsækjanda lóðinni við Grundargötu 82 til íbúðarbyggingar, sbr. samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og skilmála um afslátt af gatnagerðargjöldum frá 14. desember 2023.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að byggingaráform verði grenndarkynnt þegar þau liggja fyrir skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Nefndin samþykkir að grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum eftirfarandi fasteigna: Grundargötu 65, 67, 69, 76, 78, 80, 84 og 86.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Framness og hafnarsvæðis var samþykkt til auglýsingar í bæjarstjórn 28. september sl. í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst 11. október með athugasemdafresti til og með 24. nóvember sl. Samhliða var auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðis (mál 2301003).

    Óskað var eftir umsögnum frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Veðurstofu Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Breiðafjarðarnefnd, Rarik (barst ekki), Veitum ohf. (barst ekki) og Slökkviliði Grundarfjarðar (barst ekki). Vegna breytingar á aðalskipulagi var einnig óskað eftir umsögn Svæðisskipulagsnefndar Snæfellsness (barst ekki), Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms.

    Lagðar eru fram til kynningar og afgreiðslu umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillagnanna auk samantektar skipulagsfulltrúa um gögnin.
    Ennfremur lögð fram tillaga að svörum/viðbrögðum við umsögnum.

    Framangreint verður einnig lagt fyrir hafnarstjórn og bæjarstjórn.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um framlagðar umsagnir og athugasemdir. Nefndin samþykkir tillögu að svörum/viðbrögðum við þeim skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Nefndin felur skipulagsfulltrúa að uppfæra tillögu að breytingu aðalskipulags með þeim minniháttar lagfæringum sem felast í framangreindum svörum/viðbrögðum nefndarinnar, senda í gegnum skipulagsgátt svör nefndarinnar til þeirra sem gert höfðu athugasemdir, og að fenginni staðfestingu í bæjarstjórn að senda Skipulagsstofnun gögnin og ljúka tilheyrandi birtingum, sbr. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar, en um bókun vísast til málsins sem er sérstakur dagskrárliður á bæjarstjórnarfundinum.
  • Tillaga að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðis var samþykkt til auglýsingar í bæjarstjórn 28. september sl. í samræmi við 1. og 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og auglýst 11. október með athugasemdafresti til og með 24. nóvember sl. Var það gert samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags fyrir Framnes og hafnarsvæði, sbr. mál nr. 2301004, eins og fram kemur í dagskrárlið 4 hér fyrir framan.

    Við gildistöku nýs deiliskipulags fyrir norðurhluta hafnarsvæðis mun falla úr gildi deiliskipulag „Framness, austan Nesvegar“. Deiliskipulagsmörk fyrir „miðsvæði hafnar“ breytast einnig þar sem hluti þess svæðis mun tilheyra deiliskipulagi hafnarsvæðis norður.

    Óskað var eftir umsögnum frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Veðurstofu Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Breiðafjarðarnefnd, Rarik (barst ekki), Veitum ohf. (barst ekki) og Slökkviliði Grundarfjarðar (barst ekki). Vegna breytingar á aðalskipulagi var einnig óskað eftir umsögn Svæðisskipulagsnefndar Snæfellsness (barst ekki), Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms.

    Lagðar eru fram til kynningar og afgreiðslu umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillagnanna auk samantektar skipulagsfulltrúa um gögnin.
    Ennfremur lögð fram tillaga að svörum/viðbrögðum við umsögnum.

    Framangreint verður einnig lagt fyrir hafnarstjórn og bæjarstjórn.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um framlagðar umsagnir og athugasemdir. Nefndin samþykkir tillögu að svörum/viðbrögðum við þeim skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Nefndin felur skipulagsfulltrúa að uppfæra deiliskipulagstillögu með þeim minniháttar lagfæringum sem felast í framangreindum svörum/viðbrögðum nefndarinnar, senda í gegnum skipulagsgátt svör nefndarinnar til þeirra sem gert höfðu athugasemdir, og að fenginni staðfestingu í bæjarstjórn að senda Skipulagsstofnun gögnin og ljúka tilheyrandi birtingum, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar, en um bókun vísast til málsins sem er sérstakur dagskrárliður á bæjarstjórnarfundinum.
  • Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri gerðu grein fyrir framvindu deiliskipulagsvinnunnar frá síðasta fundi nefndarinnar. Skipulags- og umhverfisnefnd - 255
  • Lögð fram til afgreiðslu samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingartíma skipulagslýsingar 29.11-27.12.2023 ásamt tillögu skipulagsfulltrúa að svörum nefndarinnar.

    Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 23. nóvember 2023 að auglýsa skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi og heildarendurskoðunar á deiliskipulagi iðnaðar- og athafnasvæðis vestan Kvernár í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Auglýst var 29. nóvember og var athugasemdafrestur vegna skipulagslýsingarinnar til og með 27. desember 2023. Opið hús var haldið til kynningar tillögunni í Ráðhúsi Grundarfjarðar, þann 20. desember sl.

    Skipulagssvæðið stækkar úr 4,1 ha í 10,1 ha. Einnig verður skoðað hvort skipulagsmörk við aðveitustöð breytist.

    Í aðalskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir að efnistökusvæði (E-3) verði fellt út og allt svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði (I-3), sem stækkar sem því nemur. Svæðið stækkar einnig til vesturs þar sem efnistaka hefur farið lítillega út fyrir skilgreint efnistökusvæði inn á reit fyrir opið svæði (OP-5), sem minnkar sem því nemur.

    Í samræmi við gildandi aðalskipulag, verður lögð áhersla á vel skipulagt og aðlaðandi atvinnusvæði svo að atvinnulíf fái að þrífast sem best og að gerðar verði strangar kröfur um frágang enda sé svæðið staðsett við aðkomu að þéttbýlinu.

    Meginmarkmið deiliskipulagsins eru að fjölga lóðum á vestur- og suðurhluta svæðisins þar sem efni hefur verið tekið úr námu. Áhersla verður lögð á sveigjanleika og fjölbreytileika í lóðastærðum og byggingarheimildum og stuðla þannig að betri landnýtingu og framboði lóða fyrir fjölbreytta starfsemi. Gerðar verða breytingar á gatnakerfi m.a. til þess að opna á aðgengi að nýjum lóðum. Gert verður ráð fyrir göngu- og hjólastíg meðfram Snæfellsnesvegi og mön lagfærð og fegruð með gróðri. Jafnframt verður hugað að innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna á svæðinu.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um innsendar umsagnir og samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa um viðbrögð við þeim. Höfð verður hliðsjón af þeim við mótun skipulagstillagna í samræmi við gr. 4.2.4. og 5.2.4. í skipulagsreglugerð.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti þann 23. nóvember sl. að auglýsa sameiginlega skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi og vegna nýs deiliskipulags í tengslum við frekari uppbyggingu verslunar og þjónustu á Grund 2 í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýst var 29. nóvember og var athugasemdafrestur vegna skipulagslýsingarinnar til og með 27. desember 2023. Opið hús var haldið til kynningar tillögunum í Ráðhúsi Grundarfjarðar, þann 20. desember 2023.

    Skipulagssvæðið tekur til um 1,7 ha úr landi Grundar 2 og um 3,8 ha úr landi Grundar eða samtals um 5,5 ha. Í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 eru Grund og Grund 2 skilgreind sem landbúnaðarland. Með aðalskipulagsbreytingunni verður landnotkun breytt í verslun og þjónustu.

    Ekki hefur áður verið unnið deiliskipulag fyrir svæðið og er meginmarkmið þess að útfæra nánar svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ) til viðbótar við núverandi ferðaþjónustu, nánar tiltekið nýtt gistiheimili, tjaldsvæði, leiksvæði og önnur aðstaða fyrir ferðafólk.

    Beiðni um umsögn var send til Ferðamálastofu (barst ekki), Veðurstofu Íslands (barst ekki), RARIK (21.12.2023), Svæðisskipulagsnefndar (barst ekki), Vegagerðarinnar (06.12.2023), Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (12.12.2023), Minjastofnunar Íslands (12.12.2023), Umhverfisstofnunar (13.12.2023), Landsnets (22.12.2023) og Skipulagsstofnunar (18.12.2023).

    Lögð er nú fram til afgreiðslu samantekt umsagna sem bárust við skipulagslýsingu ásamt tillögu skipulagsfulltrúa að svörum skipulags- og umhverfisnefndar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um innsendar umsagnir og samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa um viðbrögð við þeim. Nefndin beinir því til framkvæmdaraðila að hafa umsagnirnar til hliðsjónar við mótun skipulagstillagna í samræmi við gr. 4.2.4. og 5.2.4. í skipulagsreglugerð.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram samantekt og tillaga um að rýna og undirbúa mögulega breytingu á deiliskipulagi Ölkeldudals.

    Um er að ræða hugmynd sem rædd var á sameiginlegum vinnufundi bæjarstjórnar og skipulags- og umhverfisnefndar Grundarfjarðarbæjar þann 27. nóvember sl. um skipulagsmál, lóðir, framtíðarverkefni og tækifæri.

    Á 277. fundi bæjarstjórnar þann 14. desember sl. samþykkti bæjarstjórn að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi við Ölkeldudal og fól skipulags- og umhverfisnefnd að hefja þá vinnu.

    Rýndir verði kostir þess að þróa svæði við Ölkelduveg og Hrannarstíg, í Paimpolgarði, sem skjólsælt og aðlaðandi svæði til útivistar og íbúðar. Um yrði að ræða spennandi forgangssvæði til uppbyggingar nálægt skóla- og íþróttamannvirkjum, með áherslu á gæðin sem felast í opnu svæði (Paimpolgarður) en þó með hliðsjón af þörf fyrir uppbyggingu skólahúsnæðis/skólasvæðis til framtíðar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í tillögu bæjarstjórnar og felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að fá skipulagsráðgjafa til aðstoðar við vinnuna og hefja hana.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Orkusalan ehf. leggur fram ósk/tillögu um mögulega staðsetningu á hraðhleðslustöð, við Grundargötu 57.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í framlagðar tillögur og felur skipulagsfulltrúa að vinna að nánari útfærslu á staðsetningu og fjölda hleðslustöðva, í samvinnu við umsækjanda.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Halldór Páll Halldórsson, einn landeigenda að Spjör, óskar eftir stofnun lóðar í landi Spjarar, sem mun bera nafnið Húsalækur. Fyrir liggur undirritað samþykki meðeigenda. Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði lóðin Húsalækur í landi Spjarar og felur skipulagsfulltrúa frekari frágang málsins.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til afgreiðslu umsókn landeigenda Árbrekku (L-220580) í landi Hamra (L-136613) um byggingu bílskúrs með íbúðarherbergi. Um er að ræða 60-65 m2 hús með hallandi þaki og verður það klætt stálplötum.

    Þann 25. ágúst sl. spurðust landeigendur fyrir um afstöðu skipulags- og umhverfisnefndar til byggingar bílageymslu og gestahúss við núverandi íbúðarhús sbr. meðfylgjandi skissu. Í svarbréfi skipulagsfulltrúa 31. ágúst sl. gerir skipulagsfulltrúi ekki athugasemdir við fyrirhugaða byggingu bílgeymslu og gestahúss.

    Skipulagsfulltrúi hvatti landeigendur til þess að láta vinna deiliskipulag fyrir jörðina þannig að frekari uppygging þróist með skýrum og heildrænum hætti til framtíðar og minnti á að sækja þarf um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu vega, sem þurfi að vera í samræmi við skipulag.

    Í framhaldi af samskiptum sem fram fóru milli embættisins og umsækjenda/eigenda Árbrekku um flokkun og skráningu hússins, óskuðu umsækjendur eftir því að byggingin verði skráð sem tveir matshlutar, þ.e. bílskúr (skráningarfl 504) og íbúðarherbergi (skráningarfl 511) og að hún teljist vera í beinum tengslum við íbúðarhús þeirra sem fyrir er.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrirhuguð byggingaráform og að byggingin verði skráð sem bílskúr (skráningarfl 504) og íbúðarherbergi (skráningarfl 511). Byggingin er í tengslum við núverandi íbúðarhús í Árbrekku. Nefndin felur byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi/heimild að öllum skilyrðum byggingarreglugerðar uppfylltum.

    Nefndin tekur undir orð skipulagsfulltrúa um mikilvægi þess að láta vinna deiliskipulag fyrir jörðina þannig að frekari uppbygging þróist með skýrum og heildrænum hætti til framtíðar.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Skipulagsfulltrúi fór lauslega yfir önnur mál sem eru í vinnslu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd ræddi um fyrirkomulag við úthlutanir lóða.
    Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að taka til skoðunar Samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði frá árinu 2006. Einkum verði skoðuð grein 1.2. um úthlutun eldri lóða með það fyrir augum að stytta ferli við úthlutun lóða, t.d. hvort fela megi byggingarfulltrúa umboð skv. samþykkt til að úthluta eldri lóðum, á lóðalista, með fyrirtöku á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 255 Bókun fundar Forseti vekur máls á tillögu nefndarinnar.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og skrifstofustjóra að gera tillögu um breytingu á samþykktum um úthlutun lóða í Grundarfjarðarbæ, í þá veru sem nefndin leggur til.

4.Gjaldskrár 2024

Málsnúmer 2309033Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að viðbótarbreytingum á gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs og gjaldskrá vegna sundlaugar.



Einnig rætt um gjaldskrár um hunda- og kattahald, þar sem lagt er til að verðbótaþætti verði bætt inn.

Allir tóku til máls.

Framlagðar breytingartillögur samþykktar samhljóða.

5.Fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2309002Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað með bókunum nokkurra sveitarfélaga vegna þjóðarsáttar um gerð kjarasamninga til næstu ára.



Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar fylgist náið með viðræðum Samtaka atvinnulífsins og landssambanda og stærstu stéttarfélaga innan ASÍ. Eitt mikilvægasta verkefnið í kjaraviðræðunum er að ná niður verðbólgu og háu vaxtastig. Slíkar hækkanir hafa komið afar illa niður á sveitarfélögum, heimilum og fyrirtækjum.

Bæjarstjórn telur að samstillt átak allra þurfi til að ná niður verðbólgu og háu vaxtastigi. Til þess þurfa ríki, sveitarfélög, aðilar vinnumarkaðarins og fyrirtæki landsins að leggjast á eitt og enginn getur skorast undan ábyrgð.

Bæjarstjórn vill leggja sitt af mörkum svo nást megi þjóðarsátt allra aðila og er tilbúin að endurskoða gjaldskrárhækkanir náist þjóðarsátt.

Samþykkt samhljóða.

6.Sorpmál - breytingar 2023, ný samþykkt um meðhöndlun úrgangs - 2. umræða

Málsnúmer 2212021Vakta málsnúmer

Í nóvember sl. voru lögð fram drög að nýrri sorpsamþykkt Grundarfjarðarbæjar og rædd við fyrri umræðu.



Samþykktin fór í yfirlestur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og hefur síðan í desember verið í samþykktarferli í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Bæjarstjórn samþykkir samþykktina við aðra umræðu og felur skrifstofustjóra að senda ráðuneytinu samþykktina til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

7.Framnes og hafnarsvæði - Breyting á aðalskipulagi 2023

Málsnúmer 2301004Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Framness og hafnarsvæðis var samþykkt til auglýsingar í bæjarstjórn 28. september sl. í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst 11. október með athugasemdafresti til og með 24. nóvember sl. Samhliða var auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðis (mál 2301003).



Óskað var eftir umsögnum frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Veðurstofu Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Breiðafjarðarnefnd, Rarik (barst ekki), Veitum ohf. (barst ekki) og Slökkviliði Grundarfjarðar (barst ekki). Vegna breytingar á aðalskipulagi var einnig óskað eftir umsögn Svæðisskipulagsnefndar Snæfellsness (barst ekki), Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms.



Fyrir liggja til yfirferðar og afgreiðslu umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillagnanna auk samantektar skipulagsfulltrúa um gögnin. Einnig lögð fram tillaga að svörum/viðbrögðum við umsögnum.

Allir tóku til máls.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að svörum/viðbrögðum við umsögnum/athugasemdum sem bárust, skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ljúka frágangi tillögu að breytingu aðalskipulags og senda svör nefndarinnar til þeirra sem gert höfðu athugasemdir, senda Skipulagsstofnun gögnin og ljúka tilheyrandi birtingum, sbr. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

8.Deiliskipulag Hafnarsvæðis 2023

Málsnúmer 2301003Vakta málsnúmer

Tillaga að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðis var samþykkt til auglýsingar í bæjarstjórn 28. september sl. í samræmi við 1. og 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og auglýst 11. október með athugasemdafresti til og með 24. nóvember sl. Var það gert samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags fyrir Framnes og hafnarsvæði, sbr. mál nr. 2301004, eins og fram kemur í dagskrárlið 4 hér fyrir framan.



Við gildistöku nýs deiliskipulags fyrir norðurhluta hafnarsvæðis mun falla úr gildi deiliskipulag „Framness, austan Nesvegar“. Deiliskipulagsmörk fyrir „miðsvæði hafnar“ breytast einnig þar sem hluti þess svæðis mun tilheyra deiliskipulagi hafnarsvæðis norður.



Óskað var eftir umsögnum frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Veðurstofu Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Breiðafjarðarnefnd, Rarik (barst ekki), Veitum ohf. (barst ekki) og Slökkviliði Grundarfjarðar (barst ekki). Vegna breytingar á aðalskipulagi var einnig óskað eftir umsögn Svæðisskipulagsnefndar Snæfellsness (barst ekki), Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms.



Lagðar eru fram til kynningar og afgreiðslu umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillagnanna auk samantektar skipulagsfulltrúa um gögnin. Einnig lögð fram tillaga að svörum/viðbrögðum við umsögnum, í samræmi við afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

Allir tóku til máls.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að svörum/viðbrögðum við umsögnum og athugasemdum sem bárust, skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ljúka frágangi deiliskipulagsins og senda svör til þeirra sem gert höfðu athugasemdir, senda Skipulagsstofnun gögnin og ljúka tilheyrandi birtingum, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

9.Sorpmál - breytingar 2023

Málsnúmer 2212021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing á útboði sorphirðu sem Ríkiskaup annast fyrir Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ. Tilboð verða opnuð 24. janúar nk.

10.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á olíukostnaði vegna húshitunar grunnskóla og íþróttamannvirkja 2016-2023. Árið 2016 var olíunotkun 92.544 lítrar og kostnaður á verðlagi þess árs 8,7 millj. kr. Árið 2023 var notkunin 128.941 lítrar og kostnaður 28,3 millj. kr.

Bæjarstjóri sagði frá gangi verkframkvæmda. Framkvæmdir halda áfram á morgun á útisvæðinu, þar sem til stendur að setja niður lagnakistu og halda áfram að tengja inn í hana. Í undirbúningi er að gera rennslismælingar með dælu í vatnsmestu holunni. Baddi verkefnisstjóri hefur verið í sambandi við RARIK um þeirra vinnu við að leggja nýjan spenni vegna framkvæmdanna.

11.SSV - Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta

Málsnúmer 2401007Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt SSV varðandi sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónustu.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga - Kostnaður og tekjur í úrgangsstjórnun - verkefnisþátttaka

Málsnúmer 2401009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsókn og svar um þátttöku í verkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga um kostnað og tekjur í úrgangsstjórnun. Grundarfjarðarbær og Snæfellsbær sóttu um þátttöku en voru ekki valin í úrtak verkefnisins.

13.Sorpurðun Vesturlands hf. - Gjaldskrá 2024

Málsnúmer 2401012Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands hf. fyrir árið 2024.

14.Sorpurðun Vesturlands hf. - Fundargerðir stjórnar

Málsnúmer 2401011Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sorpurðunar Vesturlands hf. frá 10. maí, 12. júní og 16. nóvember 2023.

15.SSV - Fundargerðir 2023

Málsnúmer 2309009Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar SSV; fundargerð 177. fundar sem haldinn var 3. október 2023 og fundargerð 178. fundar sem haldinn var 29. nóvember 2023.

16.Heilbrigðisnefnd Vesturlands - Fundargerð 187. fundar

Málsnúmer 2401008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 187. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 4. desember 2023. Einnig lögð fram ársskýrsla 2022 ásamt bókun Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi vegna skýrslu starfshóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.



17.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2023

Málsnúmer 2302005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 940. fundar stjórnar Sambandsins sem haldinn var 15. desember 2023.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga - Samantekt samstarfs sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu

Málsnúmer 2401013Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. janúar sl., með samantekt á samstarfi sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu.

19.Samband íslenskra sveitarfélaga - Íslenskur ungmennafulltrúi á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins 2024

Málsnúmer 2401014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 15. desember 2023, varðandi tilnefningu íslensks ungmennafulltrúa á Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins 2024.

20.Innviðaráðuneytið - Vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og dóms Héraðsdóms Reykjavíkur

Málsnúmer 2401015Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf innviðaráðherra vegna frumvarps um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, þar sem fram kemur að afgreiðsla frumvarpsins frestast vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem dæmt var Reykjavíkurborg í vil gegn ríkinu varðandi framlög úr Jöfnunarsjóði.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:49.