583. fundur 02. febrúar 2022 kl. 16:30 - 21:56 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2022

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2022

Málsnúmer 2202005Vakta málsnúmer

Lagðar fram bráðabirgðatölur um greitt útsvar í janúar 2022.

3.Íbúðir við Hrannarstíg 18 og 28-40

Málsnúmer 2201007Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um sundurliðun kostnaðar íbúða eldri borgara niður á hverja íbúð og samantekt á húsum. Jafnframt lögð fram drög að samningi (sýnishorn) um íbúð eldri borgara.

Sett niður frekari atriði sem eru til skoðunar hjá bæjarráði og umræðu vísað til næsta fundar.

4.Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Húsnæðisáætlun 2022

Málsnúmer 2202001Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun 2022, sem send hefur verið til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til skoðunar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi áætlun og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

5.Marta Magnúsdóttir - Hundagerði

Málsnúmer 2009011Vakta málsnúmer

Marta Magnúsdóttir sat fundinn undir þessum lið, gegnum fjarfundabúnað, vegna erindis sem hún sendi inn um mögulegan stað fyrir hundagerði. Framhald umræðu frá síðustu fundum bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Umræður urðu um mögulega staðsetningu hundagerðis og kostnað við uppsetningu. Marta taldi að hundagerði þyrfti að vera staðsett í göngufæri við þéttbýlið.

Mörtu var þakkað fyrir komuna á fundinn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um að kanna mögulega staðsetningu fyrir hundagerði.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Marta Magnúsdóttir - mæting: 18:00

6.Nýir íbúar - kynningarmál

Málsnúmer 2202008Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirhugaða kynningarfundi fyrir nýja íbúa, erlenda sem innlenda, sem eru í undirbúningi.

Lagt er til að útbúið verði kynningarefni fyrir nýja íbúa, þar sem kynnt er helsta þjónusta bæjarins. Einblöðungur sem sendur yrði á hvern nýjan íbúa sem flytur í bæinn.

Bæjarráð óskar eftir því við menningarnefnd að hún taki málefnið til umfjöllunar og geri tillögur að útfærslu.

Samþykkt samhljóða.

7.Fjarskiptasamband í Grundarfirði

Málsnúmer 2202004Vakta málsnúmer

Bæjarráð ræddi um fjarskiptasamband innanbæjar. Borið hefur á truflunum að undanförnu og óviðunandi netsambandi í hluta bæjarins. Bæjarstjóri hefur leitað skýringa hjá Símanum. Áður hefur verið rætt um óviðunandi farsímasamband á þjóðvegum.

Málið er til frekari skoðunar og kemur til ályktunar hjá bæjarstjórn að undangenginni frekari upplýsingaöflun.

8.Samþykkt um stjórn Grundarfjarðarbæjar og erindisbréf nefnda

Málsnúmer 2201015Vakta málsnúmer

Umræða og yfirferð um breytingar á samþykktum um stjórn Grundarfjarðarbæjar og erindisbréfum nefnda, en bæjarstjórn óskaði eftir tillögum frá fastanefndum og ráðum.

9.Drómi Ómar Hauksson - Aðstoð við útskriftarmynd

Málsnúmer 2201025Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Dróma Ómars Haukssonar um fjárstyrk og aðstoð við að vinna stuttmynd sem útskriftarverkefni.

Bæjarráð hefur nú þegar úthlutað fjárstyrkjum ársins 2022, en mun vera umsækjanda innan handar ef þörf krefur, í samráði við starfsfólk bæjarins.

Samþykkt samhljóða.

10.Hrannarstígur 18 íbúð 108

Málsnúmer 2102036Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um íbúð fyrir eldri borgara nr. 108 að Hrannarstíg 18. Íbúðin hefur staðið auð í ellefu mánuði.

Bæjarráð samþykkir að úthluta umsækjanda íbúðinni í samræmi við reglur um úthlutun íbúða eldri borgara og felur skrifstofustjóra að ganga frá samningi.

Samþykkt samhljóða.

11.Heildarstefna fyrir Grundarfjarðarbæ

Málsnúmer 1903009Vakta málsnúmer

Lögð fram heildarstefna fyrir Grundarfjarðarbæ sem bæjarstjórn sendi til skoðunar hjá nefndum og ráðum.

Bæjarráð fór yfir framlagt vinnuskjal frá stýrihópi um heildarstefnu. Bæjarráð hefur ábendingu um eitt atriði inní skjalið - sem komið verður á framfæri.

12.HMS - Úttekt á starfsemi Slökkviliðs Grundarfjarðar

Málsnúmer 2107013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf HMS dags. 13. júlí 2021 um úttekt á Slökkviliði Grundarfjarðar 2021. Í úttektinni er listi yfir atriði sem kallast "frávik" frá reglum. Bæjarstjóri hefur óskað eftir yfirliti slökkviliðsstjóra og rýni á hvert atriði. Yfirlit hans verður lagt fyrir bæjarráð.

13.Umboðsmaður barna - Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn

Málsnúmer 2201034Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Umboðsmanns barna dags. 28. janúar sl. um mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt þeirra til þátttöku og áhrifa.

Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar og úrvinnslu hjá umsjónarmanni verkefnisins um barnvænt sveitarfélag og tilvonandi stýrihópi.

Samþykkt samhljóða.

14.Samband íslenskra sveitarfélaga - Stofnfundur húsnæðissjálfseignarstofnunar fyrir landsbyggð

Málsnúmer 2202003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð umræðuhóps um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar sem þjóni sveitarfélögum á landsbyggð, sem haldinn var 26. janúar sl. Stofnfundurinn verður haldinn 15. febrúar nk.

Málið kemur til ákvörðunar hjá bæjarstjórn í næstu viku.

15.Bjarg íbúðafélag - Samstarf um uppbyggingu leiguíbúða

Málsnúmer 2201038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Bjargs, íbúðafélags, dags. 31. janúar sl., um samstarf um uppbyggingu leiguíbúða, ásamt kynningu Bjargs, íbúðafélags 2022.

16.Umsókn Grundarfjarðarbæjar um styrk til fráveituframkvæmda 2021

Málsnúmer 2104020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri sagði frá greiðslu fjárstyrks sem fenginn var vegna fráveituframkvæmda 2020 og 2021. Fjárstyrkurinn, 30%, fékkst vegna kostnaðar við framkvæmdir sem tilheyra blágrænum ofanvatnslausnum í göturýmum og hófust á árinu 2021.

17.Vegagerðin, Vesturlandsumdæmi - Samningur um veghald þjóðv. í þéttbýli 2021

Málsnúmer 2112026Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Vegagerðina um veghald þjóðvegar í þéttbýli 2021.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga - Skrá yfir störf undanþegin verkfallsheimild

Málsnúmer 2201029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing Grundarfjarðarbæjar með lista yfir störf sem undanskilin eru verkfallsheimild.

19.Wise lausnir - Vinnslusamningur

Málsnúmer 2112020Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar vinnslusamningur við Wise lausnir, eftir yfirferð persónuverndarfulltrúa bæjarins.

20.One Systems - Vinnslusamningar

Málsnúmer 2112021Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar vinnslusamningur við One Systems, eftir yfirferð persónuverndarfulltrúa bæjarins.

21.Stefna ehf - Vinnslusamningur

Málsnúmer 2112019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar vinnslusamningur við Stefnu ehf., eftir yfirferð persónuverndarfulltrúa bæjarins.

22.Grundarfjarðarbær - stytting vinnuvikunnar - starfsmannakönnun

Málsnúmer 2009046Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður könnunar vegna styttingar vinnuvikunnar sem gerð var á haustmánuðum.

Könnunin var lögð fyrir um miðjan september og var opin fram í miðjan október. Alls 44 starfsmenn fengu senda könnunina og tóku 33 þátt, sem er 75% svarhlutfall. Af þeim sem tóku afstöðu taldi meirihluti styttingu vinnutíma hafa aukið starfsánægju sína og lífsgæði. Þá kom fram að meiri hluti starfsmanna taldi hafa tekist vel til um styttingu vinnutíma á sínum vinnustað.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 21:56.