604. fundur 28. apríl 2023 kl. 07:00 - 11:31 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2023

Málsnúmer 2301020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2023

Málsnúmer 2302010Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar í janúar til mars 2023. Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 9,9% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Launaáætlun 2023

Málsnúmer 2304026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit sem sýnir samanburð á útgreiddum launum Grundarfjarðarbæjar janúar-mars 2023. Farið yfir niðurbrot launaáætlunar og raunlauna eftir deildum. Raunlaun eru undir áætlun.

4.Gjaldskrár 2023

Málsnúmer 2209025Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga leikskólastjóra um "kortersgjald" í samræmi við fyrri umræðu í skólanefnd og bæjarstjórn, í því skyni að ná betri yfirsýn yfir þörf fyrir starfsfólk í aukakorter, þ.e. fyrir og eftir reglulegan dvalartíma.

Bæjarstjórn vísaði umræðu um gjaldskrárbreytingu til bæjarráðs, að undangenginni umræðu sem fram fór í skólanefnd.

Lagðar fram upplýsingar um kortersgjald hjá nokkrum sveitarfélögum. Jafnframt lagt fram yfirlit um hlutfall kostnaðar foreldra af nettókostnaði við rekstur leikskóla, sem er 9% á móti 91% kostnaði bæjarins.

Lagt til að tekið verði upp kortersgjald á Leikskólanum Sólvöllum og Leikskóladeildinni Eldhömrum í samræmi við framkvæmd hjá öðrum sveitarféllögum. Gjaldið verði 1.000 kr. á mánuði fyrir korterið, þ.e. fyrir kl. 8:00 að morgni og eftir kl. 16:00. Breyting á gjaldskrá tekur gildi nk. haust, frá og með nýju skólaári.

Samþykkt samhljóða.

5.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Gestir fundarins eru Óli Þór Jónsson, verkfræðingur hjá Eflu, Sigurbjartur Loftsson, verkefnisstjóri, báðir gegnum fjarfund, og Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstndafulltrúi Grundarfjarðarbæjar.

Skóla- og íþróttamannvirki bæjarins, þar með talin sundlaug og heitir pottar, eru kynt með olíu. Unnið hefur verið að undirbúningi þess að skipta út olíukatli og setja upp varmadælubúnað, fyrir nýjan orkugjafa mannvirkjanna.

Fyrr á árinu var leitað tilboða í borun á varmadæluholum og var fyrirtækið Borlausnir ehf. með lægsta tilboð. Um miðjan maí nk. er von á fyrirtækinu til að bora holurnar, sem munu liggja sunnan við íþróttahús, á svæðinu neðan (austan) við ærslabelginn. Leitað hefur verið tilboða í varmadælubúnað sem hentar og verður settur upp fyrir mannvirkin. Ætlunin er að framkvæmdir fari fram á þessu ári, að mestu, ef allt gengur eftir með niðurstöður úr borun og fleira.
Sparnaður við framkvæmdina er áætlaður um 20 millj. kr. á ári, skv. fyrirliggjandi forsendum í greinargerð með styrkumsókn sem send var til Orkusjóðs.

Óli Þór og Sigurbjartur fóru yfir stöðu verkefnisins og þær ákvarðanir sem þarf að taka í tengslum við fyrirkomulag á varmadælum.

Farið var yfir fyrirhugaða borun á holum og rætt um varmadælubúnað, sem komið er tilboð í. Rætt um leyfismál, sem eru í farvegi. Fram kom hjá bæjarstjóra að sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi fyrir borun á allt að 12 varmadæluholum, í samræmi við verðkönnunargögn og skýringaruppdrætti, sem liggja fyrir fundinum.

Farið yfir valkosti varðandi staðsetningu og rými fyrir varmadælubúnað í eða við íþróttamannvirki. Rými/húsnæði fyrir varmadælurnar sjálfar þarf að vera 20-30 m2 að stærð. Farið var yfir valkosti og grófar kostnaðarhugmyndir við þá.

Bæjarráð samþykkir að Sigurbjartur teikni upp þá tillögu sem rædd var á fundinum og geri kostnaðaráætlun fyrir þá útfærslu, til skoðunar hjá bæjarráði/bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Gestum var þakkað fyrir komuna á fundinn og góðar upplýsingar og umræður.

Gestir

  • Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 08:00
  • Sigurbjartur Loftsson, W7, byggingafræðingur og verkefnisstjóri - mæting: 08:00
  • Óli Þór Jónsson, verkfræðingur hjá Eflu, Akureyri - mæting: 08:00

6.Hrannarstígur 38 - Úthlutun

Málsnúmer 2304027Vakta málsnúmer

BÁ vék af fundi undir þessum lið.

Íbúð fyrir eldri borgara að Hrannarstíg 38 var auglýst laus til umsóknar í apríl. Þrjár umsóknir bárust. Við mat á umsóknum og gögnum með hliðsjón af reglum Grundarfjarðarbæjar um úthlutun íbúða fyrir eldri borgara, var leitað til Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga um frekara mat á umsækjendum.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta íbúðinni til Maríu Gunnarsdóttur. Skrifstofustjóra falið að ganga frá samningum.

BÁ tók aftur sæti sitt á fundinum.

7.Félag kraftamanna - Víkingurinn 2023

Málsnúmer 2304017Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Félags kraftamanna um styrk vegna gerðar sjónvarpsþáttarins Víkingsins 2023, um keppni sem haldin verður í sumar. Upptökur munu þá fara að hluta til fram í Grundarfirði. Óskað er eftir 250 þús. kr. fjárstyrk, auk gistingar og máltíða.

Bæjarráð samþykkir samhljóða umbeðna styrkbeiðni.

8.Golfklúbburinn Vestarr - Golfarinn á Stöð 2

Málsnúmer 2304016Vakta málsnúmer

GS vék af fundi undir þessum lið.

Lögð fram beiðni Golfklúbbsins Vestarr um styrk vegna sjónvarpsþáttagerðar um golf, þar sem upptökur færu fram á Bárarvelli. Óskað er eftir 250 þús. kr. fjárstyrk.

Bæjarráð samþykkir samhljóða umbeðna styrkbeiðni að fjárhæð 250 þús. kr.

GS tók aftur sæti sitt á fundinum.

9.Framkvæmdir 2023

Málsnúmer 2301007Vakta málsnúmer

Farið yfir framkvæmdaverkefni tengd tjaldsvæði, skólalóð, gatnagerð, sem og önnur framkvæmdaverkefni.

Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi skoðuðu nýlega salernisgám til kaups fyrir tjaldsvæðið, sbr. framlagðar ljósmyndir. Bæjarráð samþykkir kaup á gámnum skv. fyrirliggjandi tilboði.

Fyrir fundinum lágu tillögur arkitekts um lóð grunnskóla og íþróttahúss, en vinnan er byggð á framlagi starfshóps, nemenda og starfsfólks.
Starfshópur um skólalóðina mun fara yfir tillögurnar og ljúka við tillögugerð í næstu viku.

Rætt um gatnagerð og gerð gangstíga. Kristín fór yfir vinnu sem Landslag, arkitektastofa, hefur unnið varðandi gangstétt/stíg á efri hluta Hrannarstígs í samræmi við aðalskipulag og fyrri tillögur um göngustíga/stéttir. Hún fór yfir þann hluta sem mögulegt væri að framkvæma á þessu ári. Rætt sérstaklega um hönnun fyrir neðri hluta Hrannarstígs, sem er hluti af „miðbæjarsvæði“ þar sem göngusvæði og göturými munu hafa annað útlit og efnisval. Tillögur um það svæði eru væntanlegar í næstu viku og verða til umræðu síðar.
Farið yfir forgangsröðun í framkvæmdum og sett niður gróft plan, sem bæjarráð mun staðfesta á næsta fundi.

SGG vék af fundi kl. 9:55. JÓK tók við stjórn fundarins.

Gestir

  • Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs - mæting: 09:38

10.Iðnaðarsvæði - tillaga að deiliskipulagi

Málsnúmer 2101038Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn frá vinnufundi bæjarstjórnar um deiliskipulag iðnaðarhverfisins, sem haldinn var þann 25. apríl sl.
Rætt um framgang deiliskipulagsverkefnisins og um lóðafyrirkomulag.

Vegna fyrirspurna um lóðir á iðnaðarsvæðinu var rætt um mögulegar frekari breytingar á deiliskipulagi svæðisins og að þær breytingar verði hluti af deiluskipulagsbreytingum í yfirstandandi áfanga.

Sviðsstjóra falið umboð til að láta gera nauðsynlega útreikninga í tengslum við gatnagerð á svæðinu, sbr. umræður á fundinum og vinnufundi bæjarstjórnar með skipulagsráðgjöfum fyrr í vikunni.

Samþykkt samhljóða.

Kristínu var þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar.


Gestir

  • Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs - mæting: 10:15

11.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Eftirlitsskýrsla grunnskóli

Málsnúmer 2304001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á Grunnskóla Grundarfjarðar, eftir úttekt dags. 28. mars sl.

12.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Eftirlitsskýrsla Þríhyrningur

Málsnúmer 2304005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á Þríhyrningi, eftir úttekt dags. 29. mars sl.

13.Slökkvilið Grundarfjarðar - Skýrsla vegna máls nr 22-8380 - Borgarbraut 17

Málsnúmer 2304006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Slökkviliðs Grundarfjarðar; niðurstöður úr eldvarnaskoðun á húsnæði grunnskóla, íþróttahúss og kjallara, sem framkvæmd var 21. mars sl.

14.FSS - Fundarboð aðalfundar og ársreikningur

Málsnúmer 2304022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga sem haldinn verður 2. maí nk.

Jafnframt lagður fram ársreikningur FSS vegna ársins 2022.

15.Innviðaráðuneytið - Samtökin ´78 - Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga

Málsnúmer 2304012Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur innviðaráðuneytisins þar sem kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga er boðið til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 munu sjá um fræðsluna.

16.Samtökin 22 - Erindi til Fjölskyldu-og fræðslunefndar

Málsnúmer 2304023Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Samtakanna 22, dags. 11. apríl sl., varðandi hinsegin fræðslu í Grunnskóla Grundarfjarðar.

17.SSV - Fræðsluferð til Skotlands 2023

Málsnúmer 2304024Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað SSV um fræðsluferð til Skotlands fyrir sveitarstjórnarfulltrúa á Vesturlandi og Norðurlandi vestra, en stefnt er að ferðinni í lok sumars.
Frestur er gefinn til 10. maí (framlengdur frá því sem fram kemur í bréfi) til að skrá í ferðina.

Samþykkt að kanna áhuga bæjarfulltrúa á þátttöku.

18.Forsætisráðuneyti - Fundarferð forsætisráðherra til að kynna Grænbók um sjálfbært Ísland

Málsnúmer 2304020Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur forsætisráðuneytis varðandi fundarferð forsætisráðherra til að kynna Grænbók um sjálfbært Ísland, ásamt auglýsingu um tímasetningar og staðsetningu fundanna víða um land.

19.Umhverfis-,orku- og loftslagsráðuneytið - Orkuskipti - Samtal um nýtingu vindorku

Málsnúmer 2304025Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, dags. 21. apríl sl., um fundi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um nýtingu vindorku, ásamt auglýsingu um tímasetningar og staðsetningar fundanna víða um land.
Fylgiskjöl:

20.Samband íslenskra sveitarfélaga - Orkufundur 2023

Málsnúmer 2304028Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 26. apríl sl., um Orkufund 2023 sem haldinn verður í Reykjavík þann 10. maí nk.

21.Hopp Snæfellsnes - Umsókn um rekstur á rafskútum, samstarfsyfirlýsing

Málsnúmer 2302021Vakta málsnúmer

Lögð fram undirrituð samstarfsyfirlýsing Grundarfjarðarbæjar og Snæhopp ehf. um rafhjólaleigu í Grundarfirði, í samræmi við afgreiðslu bæjarstjórnar þann 13. apríl sl.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:31.