543. fundur 27. febrúar 2020 kl. 15:30 - 20:47 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund.

Formaður bar fram þá tillögu að tekinn yrði á dagskrá með afbrigðum dagskrárliðurinn Forkaupsréttur - Helgi SH-235, sem yrði 12. liður á dagskrá. Aðrir liðir færast aftur sem því nemur.

Samþykkt samhljóða.

Gengið var til dagskrár.

1.Framkvæmdir 2020

Málsnúmer 1912003Vakta málsnúmer


Í upphafi fundar fór bæjarráð í Grunnskóla Grundarfjarðar og skoðaði aðstöðu fyrir heilsdagsskóla, í fylgd með skólastjóra og umsjónarmanni fasteigna.

Farið yfir lausnir að bættri aðstöðu fyrir heilsdagsskóla og útfærslur á slíkum framkvæmdum, en gert er fyrir fjármunum í verkefnið á fjárhagsáætlun ársins.

2.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1801048Vakta málsnúmer


Bæjarstjóri sagði frá vinnu menningarnefndar og hugmyndum v. tillögu sem er í mótun um starfsemi og aðstöðu í Sögumiðstöð.

3.Lausafjárstaða

Málsnúmer 2001004Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

4.Bókað útsvar 2019

Málsnúmer 1904023Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn sem sýna staðgreiðsluuppgjör sveitarfélaga vegna útsvars sem bókað er árið 2019, hlutfallsbreytingu á staðgreiðslu sveitarfélaga milli áranna 2018 og 2019 og yfirlit yfir greidda staðgreiðslu Grundarfjarðarbæjar árin 2018 og 2019.

5.Greitt útsvar 2020

Málsnúmer 2002001Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar í janúar 2020. Skv. yfirlitinu lækkar greitt útsvar í janúar um 18,5% milli ára. Jafnframt farið yfir samskipti bæjarstjóra við RSK og skriflegar óskir til stofnunarinnar um upplýsingagjöf um útsvarsgreiðslur til sveitarfélagsins, sbr. fyrri umræður í bæjarráði.

Bæjarráð felur skrifstofustjóra að leita skýringa hjá RSK á lækkun útsvars.

6.Snæfellingshöllin - Erindi Hesteigendafélagsins um eignarhald

Málsnúmer 2002021Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn vegna Snæfellingshallarinnar. Eigendafundur um fjárhagslegt uppgjör og ákvarðanir er fyrirhugaður 2. mars nk. og óskað hefur verið eftir tveimur fulltrúum frá Grundarfjarðarbæ.

Lagt til að Björg Ágústsdóttir og Hinrik Konráðsson verði fulltrúar Grundarfjarðarbæjar á fundinum. Gert er ráð fyrir að stjórnarmenn Snæfellingshallarinnar ehf. verði jafnframt þátttakendur í fundinum.

Bæjarráð lítur svo á að um upplýsingafund sé að ræða. Ákvarðanir sem taka þarf í félaginu um þau atriði sem lúta að fjármálum og uppgjörum þarf alltaf, hvað varðar eignarhlut Grundarfjarðarbæjar, að leggja fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til ákvörðunar.

Bæjarráð óskar eftir ársreikningum Snæfellingshallarinnar ehf. frá upphafi til ársins 2017.

Samþykkt samhljóða.

7.Tímabundinn afsláttur á gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2001011Vakta málsnúmer


Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 13. febrúar sl. tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum tiltekinna lóða. Íbúðarhúsalóðir voru taldar upp í samþykktinni.
Við Ölkelduveg eru tvær auðar lóðir vestan við parhúsið nr. 25 og 27 merktar nr. 27 og 29 í deiliskipulagi, en ættu að vera nr. 29 og 31.

Bætt verði við upptalninguna lóð nr. 31 við Ölkelduveg (sem í deiliskipulagi er númeruð 29).

Samþykkt samhljóða.

8.Byggðakvóti 2019-2020

Málsnúmer 1910023Vakta málsnúmer

RG vék af fundi undir þessum lið. HK tók við stjórn fundarins.

Lagt fram bréf atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins dags. 30. desember 2019, um byggðakvóta 2019-2020, sem áður hefur verið lagt fram, ásamt skýringum ráðuneytisins dags. 31. janúar 2020, á lægri úthlutun byggðakvóta en árið á undan.

Bæjarráð samþykkir samhljóða óbreyttar reglur við úthlutun kvótans, sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 nr. 676/2019.

RG tók aftur sæti sitt á fundinum og við stjórn hans.

9.Stykkishólmsbær - Íþróttastefna Stykkishólmur

Málsnúmer 2002026Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Stykkishólmsbæjar dags. 13. febrúar sl. þar sem lagt er til að sett verði sameiginleg íþróttastefna fyrir Snæfellsnes.

Bæjarráð lýsir yfir áhuga sínum á sameiginlegri íþróttastefnu á Snæfellsnesi og felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

10.Hrannarstígur 18, íbúð 101

Málsnúmer 2002017Vakta málsnúmer


Íbúð 101 að Hrannarstíg 18 var auglýst laus til umsóknar. Ein umsókn barst um íbúðina, frá Tryggva Gunnarssyni og Kristínu Lilju Nóadóttur.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta íbúðinni til umsækjenda og felur skrifstofustjóra að ganga frá samningi.

Jafnframt lögð fram umsókn umsækjenda um bílastæði í bílakjallara. Íbúðir að Hrannarstíg 18 eru átta talsins, en bílastæði eru sex og öll í útleigu eins og stendur.

11.Golfklúbburinn Vestarr - umræður um starfsemi og uppbyggingu

Málsnúmer 2001030Vakta málsnúmer



Lagður fram tölvupóstur frá Golfklúbbnum Vestarr dags. 7. febrúar sl. með ósk um viðræður við bæjarráð vegna byggingar vélaskemmu við Bárarvöll.

Bæjarráð þykir þetta spennandi hugmynd sem vert er að skoða og vísar erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2021. Hafi stjórn golfklúbbsins hugmyndir að því hvernig unnt er að veita klúbbnum liðsinni að öðru leyti, er bæjarráð tilbúið til viðræðna.

Samþykkt samhljóða.

12.Forkaupsréttur - Helgi SH-235

Málsnúmer 2002039Vakta málsnúmer

RG vék af fundi undir þessum lið. HK tók við stjórn fundarins.

Lagt fram erindi frá Guðmundi Runólfssyni hf. varðandi það hvort Grundarfjarðarbær muni nýta sér forkaupsrétt á fiskiskipinu Helga SH-235, skipaskráningarnúmer 2017, í samræmi við lög um stjórn fiskveiða nr. 116/2006, vegna kauptilboðs, sem borist hefur í bátinn. Fyrir liggur að enginn kvóti er á bátnum.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt Grundarfjarðarbæjar á Helga SH-235.

RG tók aftur sæti sitt á fundinum og við stjórn hans.

13.Skotfélag Snæfellsness - Umræður um starfsemi og uppbyggingu

Málsnúmer 2001031Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Skotfélaginu Skotgrund dags. 8. febrúar sl., þar sem kynnt er að undirbúningur sé hafinn á alþjóðlegu riffilskotmóti sem haldið verður á skotsvæði félagsins í Kolgrafafirði.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju með starfsemi félagsins og þá miklu uppbyggingu sem hefur verið á svæðinu. Hafi stjórn skotfélagsins hugmyndir að því hvernig unnt er að veita félaginu liðsinni við undirbúning og framkvæmd riffilskotmótsins, er bæjarráð tilbúið til viðræðna.

Samþykkt samhljóða.

14.Golfklúbburinn Vestarr - Ársreikningur 2018-2019

Málsnúmer 2002003Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Golfklúbbsins Vestarrs 2018-2019.

15.Félag eldri borgara í Eyrarsveit - Ársreikningur 2018-2019

Málsnúmer 2002004Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Félags eldri borgara 2018-2019.

16.Grundargata 69 - Húsaleigusamningar

Málsnúmer 1802022Vakta málsnúmer


Lagðir fram til kynningar húsaleigusamningar um Grundargötu 69, annars vegar milli Leigufélagsins Bríetar ehf. og Grundarfjarðarbæjar og hins vegar milli Grundarfjarðarbæjar og Astu Jakiene.

17.Fundur almannavarnanefndar 6. febrúar 2020

Málsnúmer 2002015Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar minnispunktar Almannavarnarnefndar á Vesturlandi frá 6. febrúar sl.

18.Byggðastofnun - Samstarfssamningur

Málsnúmer 2001019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samstarfssamningur Byggðastofnunar og Grundarfjarðarbæjar vegna þjónustukorts.

19.Stefna Grundarfjarðarbæjar vegna eineltis, áreitni og ofbeldis

Málsnúmer 1908017Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar uppfærð stefna Grundarfjarðarbæjar varðandi einelti, kynferðisleg eða kynbundin áreiti og ofbeldi á vinnustað, ásamt viðbragðsáætlun.

20.Félags- og skólaþjónusta - Málþing FSS

Málsnúmer 2002019Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar kynning á málþingi FSS, félagsmálanefndar Snæfellinga og velferðarnefnda aðildarsveitarfélaga. Yfirskrift málþingsins er "Lífsgæði fatlaðs fólks á Snæfellsnesi" og verður haldið haustið 2020.

21.Rarik ohf - Götulýsing í Grundarfjarðarbæ

Málsnúmer 1905019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur Rarik ohf. og Grundarfjarðarbæjar um afhendingu götulýsingarkerfis til eignar í Grundarfjarðarbæ.

22.SSV - Styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2020

Málsnúmer 2002024Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi v/Sóknaráætlunar Vesturlands og Grundarfjarðarbæjar um verkefni í Þríhyrningi. Styrkfjárhæð er 200.000 kr.

23.Heildarstefna fyrir Grundarfjarðarbæ

Málsnúmer 1903009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar nýjustu drög Capacent að heildarstefnu fyrir Grundarfjarðarbæ.

24.Umhverfisstofnun - Endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í sveitarfélaginu

Málsnúmer 2001016Vakta málsnúmer


Lögð fram til kynningar gögn frá Íslenska gámafélaginu ehf., sem er svarbréf við fyrirspurn bæjarins vegna rangra upplýsinga í bréfi Umhverfisstofnunar dags. 10. janúar sl. sem lagt var fram á fundi bæjarstjórnar þann 17. febrúar sl. Hið rétta er að endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í Grundarfirði er nálægt 50% en ekki innan við 5%, eins og kom fram í bréfi Umhverfisstofnunar.

Bæjarstjóra falið að koma réttum upplýsingum á framfæri við Umhverfisstofnun.

Samþykkt samhljóða.

25.Til umsagnar 262. mál frá nefndasviði Alþingis - Skógarstrandarvegur

Málsnúmer 2002031Vakta málsnúmer


Lögð fram til kynningar og umsagnar tillaga umhverfis- og samgöngunefndar til þingsályktunar v/hagkvæmniathugunar á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, 262 mál.

26.Samband íslenskra sveitarfélaga - Umsögn um frv. um eignarhald og nýtingu bújarða

Málsnúmer 2002032Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til forsætisráðuneytisins dags. 21. febrúar sl. varðandi umsögn um frumvarp um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarhald og nýtingu fasteigna, mál S-34/2020.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:47.