561. fundur 03. desember 2020 kl. 16:30 - 19:37 á fjarfundi
Nefndarmenn
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Aukið bæjarráð - vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021.

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2020

Málsnúmer 2001004Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2020

Málsnúmer 2002001Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar fyrstu ellefu mánuði ársins ásamt uppfærðri tekjuáætlun. Skv. yfirlitinu er greitt útsvar 2,1% lægra en á sama tímabili árið 2019.

3.Stígamót - Beiðni um framlag til Stígamóta 2020

Málsnúmer 2011039Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Stígamótum dags. 9. nóvember sl., þar sem óskað er eftir fjárstuðningi.

Bæjarráð getur því miður ekki orðið við erindinu.

Samþykkt samhljóða.

4.Fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2009045Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárfestingaáætlun ársins 2021.

Bæjarráð vísar tillögu að fjárfestingaáætlun ársins 2021 til annarrar umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

5.Gönguvænn Grundarfjörður - hönnun gangstétta og stíga

Málsnúmer 2012003Vakta málsnúmer

Herborg Árnadóttir hjá Alta sat fundinn undir þessum lið.

Farið yfir stöðu vinnunnar við hönnun gangstétta og stíga. Herborg sýndi glærukynningu með hugmyndum og tillögum sem nýtast við forgangsröðun verkþátta.

Bæjarráð leggur til að verkþættir verði kostnaðarmetnir. Bæjarstjóra falið að láta kostnaðarmeta verkþætti verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Herborg Árnadóttir - mæting: 16:35

6.Grundarfjarðarbær - stytting vinnuvikunnar skv. kjarasamningum

Málsnúmer 2009046Vakta málsnúmer

Ragnheiður Agnarsdóttir sat fundinn undir þessum lið.

Hún fór yfir stöðu vinnu við styttingu vinnuvikunnar. Bæjarráði gerð grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið í vinnutímanefndinni, en í henni sitja fulltrúar starfsfólks og vinnuveitanda.

Bæjarstjóra og skrifstofustjóra falið umboð til að vinna áfram fyrir hönd bæjarins að þessu verkefni.

Niðurstaða atkvæðagreiðslu starfsfólks um tillögurnar verður síðan lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Ragnheiður Agnarsdóttir - mæting: 17:15

7.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Farið yfir erindi frá Eflu, verkfræðistofu, um varmaskiptaverkefnið. Styrkur hefur fengist úr Orkusjóði til að leggja af olíukyndingu í grunnskóla, íþróttahúsi og sundlaug.

Bæjarstjóra falið að semja við Eflu um aðstoð við vinnuna.

Samþykkt samhljóða.

8.Orkuveita Reykjavíkur

Málsnúmer 1506017Vakta málsnúmer

Lögð fram eldri gögn og þau síðustu vegna samskipta við Orkuveitu Reykjavíkur vegna samnings við Grundarfjarðarbæ frá árinu 2005.

Fram kom á bæjarstjórnarfundi þann 26. nóvember sl. að forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri hefðu rætt við lögmann bæjarins vegna málsins. Farið yfir stöðu og næstu skref.

Bæjarráð mun taka málið áfram í upphafi nýs árs.

Samþykkt samhljóða.

9.Sameiginlegt embætti skipulags- og byggingarfulltrúa á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2011052Vakta málsnúmer

Lögð fram undirbúningsgögn og drög að skýrslu HLH ehf., sem unnið er að fyrir Grundarfjarðarbæ, Stykkishólmsbæ, Helgafellssveit og Eyja- og Miklaholtshrepp.

Lagt til að bæjarstjóra sé falið að vinna áfram að undirbúningi. Skýrsla HLH ehf. verði lögð fyrir bæjarráð/bæjarstjórn þegar hún verður fullbúin.

Samþykkt samhljóða.

10.Grundarfjarðarbær - Opinber birting gagna með fundargerðum

Málsnúmer 2011055Vakta málsnúmer

Rætt um setningu vinnureglna sveitarfélaga varðandi opinbera birtingu gagna með fundargerðum.

Lagt til að skrifstofustjóra verði falið að afla vinnureglna hjá öðrum sveitarfélögum fyrir janúarfund bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

11.Byggðasamlag Snæfellinga - Fundur í stjórn Byggðasamlags 23.11.2020

Málsnúmer 2011051Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fjárhagsáætlanir 2021 vegna Norska hússins, Earth Check verkefnisins og persónuverndarfulltrúa, sem lagðar voru fram á fundi stjórnar Byggðasamlags Snæfellinga 23. nóvember sl.

12.Sorpurðun Vesturlands hf. - Fundargerðir starfshóps um stöðu og stefnu úrgangsmála á Vesturlandi

Málsnúmer 2011034Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir starfshóps um stöðu og stefnu úrgangsmála á Vesturlandi, sem haldnir voru 28. september og 12. október sl. Jafnframt lögð fram skýrsla um matarsóun og tillögur til úrbóta.

13.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1801048Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar undirritaður verksamningur Grundarfjarðarbæjar við Ildi ehf.

14.Grundarfjarðarbær - Eigið eldvarnareftirlit - forvarnarsamstarf

Málsnúmer 2009050Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samstarfssamningur Grundarfjarðarbæjar og Eldvarnarbandalagsins um auknar eldvarnir. Samningurinn er gerður í tengslum við endurnýjaðan samning við VÍS, eftir útboð vátrygginga.

15.Hesteigendafélag Grundarfjarðar - Ársreikningur 2019

Málsnúmer 2011037Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Hesteigendafélags Grundarfjarðar vegna ársins 2019.

16.Björgunarsveitin Klakkur - Ársreikningur 2019

Málsnúmer 2011057Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Björgunarsveitarinnar Klakks vegna ársins 2019.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:37.